Haukar - KR | Haukar vörðu deildarmeistaratitilinn

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Haukar KR. Bónus deild kvenna 2025 körfubolti KKÍ.
Haukar KR. Bónus deild kvenna 2025 körfubolti KKÍ.

Ríkjandi Íslandsmeistarar Hauka vörðu deildarmeistaratitilinn í Bónus deild kvenna með 82-67 sigri gegn KR í úrslitaleik í lokaumferðinni.

Haukar voru þarna að vinna sinn sjöunda deildarmeistaratitil og verða með heimavallarréttinn í úrslitakeppninni. Þær þekkja það frá því í fyrra hversu mikilvægur heimavallarrétturinn er en þá unnu þær Íslandsmeistaratitilinn í oddaleik.

KR tókst aftur á móti ekki að verða fyrstu nýliðar sögunnar til að verða deildarmeistarar. Þær duttu niður í þriðja sæti deildarinnar því Njarðvík vann sinn leik.

Þá er líka ljóst að Haukar munu mæta Stjörnunni og KR mun mæta Keflavík í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

Skjálfti í upphafi en KR byrjaði betur

Leikurinn bar þess greinileg merki að í honum væri mikið undir. Liðin byrjuðu bæði frekar illa, sýndu skjálfta í sóknarleiknum og skutu alveg skelfilega. Bæði lið 0 af 6 í þristum eftir fyrsta leikhluta.

KR tókst hins vegar að keyra vel á körfuna og Haukavörnina sem var ekki alveg vöknuð, en eftir leikhlé og smá skammir frá þjálfaranum varð varnarleikurinn skarpari.

Sóknarleikur Hauka var hins vegar frekar einsleitur í upphafi og ef Amandine Toi eða Krystal Freeman sköpuðu sér ekki skot sjálfar þá virtist lítið gerast.

KR var þannig með yfirhöndina í upphafi leiks. 17-20 forystu eftir fyrsta leikhluta og eftir að hafa loksins sett þriggja stiga skot stækkaði forystan í 22-26 í upphafi annars leikhluta.

Allt í einu hrökk allt í gang hjá Haukum

Haukarnir sættu sig ekki við stöðuna og spýttu skyndilega í lófana.

Allt í einu hrökk bara allt í gang, vörnin varð betri, Amandine og Krystal voru samar við sóknarlega en aðrir leikmenn komust líka vel inn í leikinn. Þóra Kristín, sem hafði látið fara lítið fyrir sér, setti mikilvæg skot og staðan stóð 38-32 fyrir Haukum í hálfleik.

Villuvandræði og meira vesen hjá KR

Í upphafi seinni hálfleik jukust vandræði KR því Rebekka Rut og Jiselle Thomas, sem höfðu verið hvað öflugastar og stigahæstar hjá KR í fyrri hálfleik, fengu sínar þriðju villur og settust á bekkinn. Mikið mæddi þá á Molly Kaiser en hún komst ekki almennilega inn í leikinn.

Haukar gengu á lagið 

Haukar nýttu heldur betur tækifærið og gjörsamlega kaffærðu KR í þriðja leikhlutanum. Leikurinn varð bara að einhverri Haukaveislu og það var vel við hæfi að afmælisbarnið Sólrún Inga setti þrjá þrista í röð til að loka stórkostlegum þriðja leikhluta hjá Haukum.

Staðan þá 69-47 og vonir KR um að verða fyrstu nýliðar sögunnar til að vinna deildarmeistaratitilinn voru nánast horfnar.

Eftir að hafa varla hitt úr skoti fyrir aftan línuna byrjaði KR allt í einu að hitta úr þristum í fjórða leikhluta. Þannig tókst að minnka muninn aðeins en Haukarnir héldu KR-ingum alltaf í hæfilegri fjarlægð.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira