„Er eiginlega bara enn þá að meðtaka þetta“ Stefán Árni Pálsson skrifar 25. mars 2026 07:32 Elísa með verðlaunagripinn eftir hlaupið á Ítalíu. Vísir/bjarni Elísa Kristinsdóttir ætlaði sér að hlaupa í utanvegahlaupi á Tenerife um helgina. En vegna veðurs endaði hún á Ítalíu og vann ótrúlegan sigur í 75 kílómetra hlaupi. Elísa Kristinsdóttir gerði sér lítið fyrir og vann Chianti Ultra Trail hlaupið á laugardaginn. Hún setti um leið nýtt og glæsilegt brautarmet. Elísa hljóp kílómetrana á 6 klukkutímum, 22 mínútum og 31 sekúndu. „
Ég er eiginlega bara enn þá að meðtaka þetta. Þetta er mjög stórt og ég er ekki alveg að átta mig á hversu stórt þetta er,“ segir Elísa í Sportpakkanum á Sýn í gær. „Ég var búin að setja upp plan sem að var upp á 6:30 en ég var líka búin að segja við sjálfa mig að það væri eiginlega óraunhæft. Svo enda á 6:22 klst, eitthvað sem ég var aldrei að búast við,“ segir Elísa sem hljóp nánast allar sex klukkustundirnar í einni beit. „Það eru 3.000 hæðarmetrar í þessu en þetta eru mjög aflíðandi og þægilegar brekkur til þess að hlaupa. Ég hægði bara mjög lítið á mér.“ Frá Tene til Flórens Umrætt hlaup fór fram í Flórens á Ítalíu en hún átti að vera að hlaupa á Tenerife. „Það er alveg ár síðan ég skráði mig í það hlaup og ég var mjög spennt að fara að hlaupa á Tenerife. Ég hljóp þetta hlaup í fyrra á Tenerife og ég villtist í brautinni. Svo er ég að fara út bara á miðvikudagsmorgni og hlaupinu er kanselað á þriðjudagskvöldi. Þannig að ég hef samband við þetta hlaup á Ítalíu og fæ miða þar inn og á miðvikudagsmorgni er ég bara í flugvél á leiðinni til Ítalíu.“ Elísa er með hlaupabretti í stofunni sem getur farið upp í 20% halla. Þar æfir hún sig reglulega.Vísir/bjarni Með sigrinum um helgina hefur hún tryggt sig inn á annað stórt hlaup. „Ég er komin með miða í CCC sem að er stærsta hlaupið í þessari UTMB-seríu. Svo í lok ágúst þá er stærsta hlaupið í 100 kílómetra flokknum sem ég er að fókusera á. Ég er bara mjög þakklát fyrir þau fyrirtæki sem eru að styðja við bakið á mér og gera mér kleift að geta verið að sinna sportinu mínu og ég er með dásamlega þjálfara. Ég er í fjallahlaupaþjálfun og á bara mjög gott samband við Tobba, þjálfara minn, og við tölum saman nánast daglega sem er bara alveg ómetanlegt og hann hjálpar mér alveg ótrúlega mikið.“
Hlaup Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Fleiri fréttir „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Liverpool með fjögurra marka endurkomu Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Sjá meira