Erlent

Roert Mueller er látinn

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Mueller starfaði sem sérstakur saksóknari hjá dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna og leiddi hina svokölluðu Rússarannsókn.
Mueller starfaði sem sérstakur saksóknari hjá dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna og leiddi hina svokölluðu Rússarannsókn. AP

Robert S. Mueller, sem stýrði bandarísku alríkislögreglunni í tólf ár og starfaði sem sérstakur saksóknari hjá dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna, er látinn. Hann varð 81 árs.

New York Times greinir frá andláti Mueller og gerir ævi hans og störfum ítarleg skil. Hann lést í gær en dánarorsök hefur enn ekki verið tilgreind.

Mueller hóf störf sem forstjóri alríkislögreglunnar viku fyrir árásirnar á tvíburaturnana 11. september 2001. Hann stóð fyrir miklum skipulagsbreytingum innan FBI sem sneru að því að nútímavæða stofnunina. 

En hans verður best minnst vegna starfa hans sem sérstakur saksóknari hjá dómsmálaráðuneytinu. Hann var skipaður í embættið í maí 2017 í tengslum við hina svokölluðu Rússarannsókn, sem sneri að meintum afskiptum Rússa af kosningabaráttu Trump sem áttu að hafa gefið honum undir fótinn í forsetakosningunum 2016.

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×