Útskrifuð fyrir fimm mánuðum en neitar að fara Samúel Karl Ólason skrifar 19. mars 2026 16:37 Lögmaður og talsmaður sjúkrahússins neituðu að svara fyrirspurnum um konuna og fimm mánaða veru hennar þar. AP/Anthony Izaguirre Forsvarsmenn sjúkrahúss í Flórída hafa höfðað mál gegn konu sem hefur alfarið neitað að yfirgefa sjúkrahúsið í þá fimm mánuði síðan hún var útskrifuð. Dómari hefur verið beðinn um að veita starfsmönnum sjúkrahússins leyfi til að flytja konuna á brott og það með aðstoð lögreglunnar, reynist það nauðsynlegt.
Samkvæmt AP fréttaveitunni var konan lögð inn á Tallahassee Memorial Healthcare sjúkrahúsið þann 6. október. Síðar um daginn var hún útskrifuð en síðan þá hefur hún neitað að yfirgefa herbergið sem hún var fyrst sett í. Ekki kemur fram í lögsókninni gegn konunni af hverju hún var lögð inn, af hverju hún hefur ekki viljað fara eða hvernig henni hefur tekist að vera á sjúkrahúsinu í fimm mánuði án þess að vera fjarlægð. Þar að auki kemur ekki fram hvað vera hennar á sjúkrahúsinu hefur kostað. Lögmaður og talsmaður sjúkrahússins neituðu að svara fyrirspurnum fréttaveitunnar vegna þess að málið væri í meðferð hjá dómstólum. Konan er ekki með lögmann og er að verja sig sjálf. Ekki hefur tekist að ná sambandi við hana gegnum farsíma eða tölvupóst og þegar reynt var að hringja í herbergið sem hún dvelur í svaraði hún ekki í símann. Málið verður tekið fyrir í dómsal gegnum fjarfundarbúnað seinna í mánuðinum.
Bandaríkin Mest lesið Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Ætlar ekki að láta kúga sig Innlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Innlent Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Innlent Fleiri fréttir Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sögulega óvinsæll Trump en stríðið er óvinsælla Heita milljónum til að leysa fjölda morða og mannshvarfa Saka Svíþjóðardemókrata um að „pissa í eigið tjald“ „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Myrtu fjörutíu manns í kirkju Hyggjast ógilda vegabréfsáritanir allt að 200 þúsund hælisleitenda Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Sjá meira