Breyta Reykjavík í kvikmyndagallerí út mánuðinn Magnús Jochum Pálsson skrifar 20. mars 2026 10:57 Risavaxin augu mæta gangandi vegfarendum á Lækjartorgi næstu tíu daga í tilefni af Physical Cinema Festival. Vegfarendur um miðborg Reykjavíkur munu út mánuðinn sjá borgina umbreytast í kvikmyndagallerí þegar hreyfimyndum verður varpað á byggingar og skjái víðsvegar í tilefni af Physical Cinema Festival sem tengist Stockfish-kvikmyndahátíðinni.
Stockfish verður haldin í tíunda skiptið í ár og fer fram í Bíó Paradís frá 19. til 29. mars. Á hátíðinni verður írsk kvikmyndagerð í brennidepli og áhersla lögð á verkefni upprennandi hæfileikafólks frá Norðurlöndum sem og kvikmyndir alþjóðlegra leikstjóra sem hafa nýverið hlotið verðlaun á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum. Hreyfimyndahátíðin Physical Cinema Festival fer fram í samstarfi við Stockfish og verða þar sýndar tilraunakvikmyndir, innsetningar og utanhússvarpanir á ýmsum stöðum í miðborginni. Sýningar fara fram í Bíó Paradís, en verk hátíðarinnar birtast einnig á óvæntum stöðum víðsvegar um borgina. Þar á meðal á Lækjartorgi, Ráðhúsi Reykjavíkur, 12 tónum, marvöðu, Á milli, Þulu galleríi, Tjarnarbíói, Hafnartorgi galleríi, Skólavörðustíg, Ingólfsstræti, Hafnarborg og svo líka í heita pottinum í gömlu sundlaug Hafnarfjarðar. Meðal verka er All Eyes eftir Peder Bjurman, Mark Holthusen og Johannes Ferm. Á Lækjartorgi mæta vegfarendur áleitnu augnaráði hundruða andlita sem beina sjónum sínum að þeim með sömu spurningu í huga: Hvað ber framtíðin í skauti sér? Dagskrá hátíðarinnar kannar nýjar leiðir til að upplifa kvikmyndir og brýtur niður mörk milli kvikmynda, tónlistar, myndlistar og gjörninga. Meðal dagskrárliða er Listening Cinema, þar sem tónlist leiðir frásögnina og myndirnar fylgja hljóðinu og einnig verður sérstök dagskrá sem heiðrar brautryðjendur kvenna í tilraunakvikmyndagerð á árunum 1940–1980.
Bíó og sjónvarp Kvikmyndahús Menning Reykjavík Mest lesið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Britney ákærð fyrir ölvunarakstur Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Stór brjóst eru stór Lífið Guðjón Friðriksson heiðursborgari Reykjavíkur Menning Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið Fleiri fréttir Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Patrick Muldoon er látinn Endurlífguðu Kilmer með gervigreind fyrir fornleifamynd „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Cruise tekur á loft í þriðja sinn Gaylord Focker deyr ekki drottni sínum Joy Harmon er látin Höfði í stóru hlutverki í æsispennandi stiklu Tæplega helmingur tilnefndra leikara til Eddunnar erlendur Leikarinn Michael Patrick látinn eftir baráttu við MND Ólétt af fyrsta barni ári eftir andlát fyrrverandi Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Hugmyndir að hámhorfi um páskana Sjá meira