Foringinn fagnar endurkomu Norður-Kóreu á HM Ágúst Orri Arnarson skrifar 19. mars 2026 18:00 Norður-Kórea er á leiðinni aftur á HM í fyrsta sinn síðan árið 2011. Montanna Bailey/Getty Images Norður-Kórea er á leiðinni á HM kvenna í fótbolta árið 2027 og segja má að aðdragandinn að þessu afreki hafi verið nokkuð langur.
Hong Son Ok skoraði þrennu í 4-0 sigri Norður-Kóreu gegn Taívan í umspilinu fyrir HM í nótt. Norður-Kórea tryggði sér þar með farseðilinn til Brasilíu á næsta ári en liðið hefur ekki farið á HM síðan árið 2011. Á því móti fundust fimm leikmenn liðsins sekir um ólöglega lyfjanotkun. Norður-Kórea var dæmd í keppnisbann og missti því af næstu mótum, Asíubikarnum árið 2014 og HM árið 2015. Eftir það tóku við frekar mögur ár fyrir Norður-Kóreu, sem hafði lengi verið eitt af tíu bestu landsliðunum á heimslista FIFA, unnið Asíubikarinn margoft og átt áskrift að HM. Liðið komst ekki inn á HM 2019 og tók ekki þátt í undankeppni fyrir HM 2023 vegna COVID takmarkanna. Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu.AP/KCNA En eftir mikla endurnýjun á leikmannahópnum og uppbyggingu í yngri landsliðunum mun Norður-Kóreu snúa aftur á stóra sviðið. Vafalaust hefur æðsti foringi þjóðarinnar, Kim Jong-Un, fagnað mikið. Faðir hans heitinn, Kim Jong-Il, var mikill fótboltaáhugamaður og fór einna fremst í flokknum sem kom HM kvenna upphaflega á laggirnar. Sonurinn er sagður hafa erft áhugann. Svo hefur sannast í gegnum tíðina, eins og rakið er í grein á The Guardian, að fyrir Norður-Kóreu er gríðarlega mikilvægt að vera í fremsta flokki í kvennafótboltanum. Fótboltinn er einn af fáum tækifærum sem einangraða einveldisríkið fær til að fegra vafasama ímynd sína og Kim feðgarnir hafa lagt mikinn metnað í kvennalandsliðið.
HM 2027 í Brasilíu Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Fleiri fréttir Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Sjá meira