Sport

„Einn leikur eftir og því miður erum við ekki með pálmann í höndunum“

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Arnar Daði Arnarsson, þjálfari Stjörnunnar, var feginn að hafa landað stiginu í lokin.
Arnar Daði Arnarsson, þjálfari Stjörnunnar, var feginn að hafa landað stiginu í lokin. Vilhelm Gunnarsson

Það stefndi allt í að Stjarnan næði lífsnauðsynlegum sigri í fallbaráttunni í Olís deild kvenna í kvöld. Fjögurra marka forskot gufaði upp á lokamínútunum gegn Fram og niðurstaðan 34-34 jafntefli. Þrátt fyrir vonbrigðin getur liðið haldið í vonina um að halda sæti sínu í deildinni fyrir lokaumferðina.

„Já takk fyrir að minna mig á það,“ svaraði Arnar Daði Arnarsson, þjálfari Stjörnunnar, þegar hann var spurður hvað hefði farið úrskeiðis á lokamínútunum, þegar liðið missti niður fjögurra stiga forystu og varð að sætta sig við jafntefli.

„Við vorum bara orðnar þreyttar, þetta var baráttuleikur og stutt síðan við spiluðum síðasta leik. Ég er eiginlega bara guðslifandi feginn að hafa náð þessu stigi, maður sá alveg að mjólkursýran var farin að láta til sín sjást hérna undir lokin.“

„Við byrjuðum strax að undirbúa okkur strax eftir síðasta leik fyrir þennan leik og við ætluðum náttúrulega bara að vinna þennan leik. Við vorum hársbreidd frá því, það er eiginlega ekki hægt að segja annað.“

Selfoss og Stjarnan eru bæði með sex stig í sjöunda og áttunda sæti deildarinnar þegar komið er að lokaumferðinni. Stjarnan þarf að minnsta kosti jafntefli og jafnframt að treysta á að ÍR leggi Selfoss að velli ætli liðið að halda sæti sínu í deildinni.

„Þetta stig gefur liðinu trú en það hefur ekki vantað trú hjá mér síðan ég kynntist þessum stelpum. Ég ætla að vona að þetta gefi liðinu eitthvað. Þetta var hörkuleikur og hörkustig á móti góðu liði þegar allt var undir.“

„Það er einn leikur eftir og því miður erum við ekki með pálmann í höndunum okkar. Við þurfum svolítið að treysta á að góðvinur minn Grétar Áki Andersen og stelpurnar hans í ÍR vinni Selfoss í lokaumferðinni. Ég ætla að vona að þær sýni þeim leik smá virðingu, og á sama tíma að Haukar sýni okkur virðingu líka á laugardaginn þrátt fyrir að ekki sé mikið um að keppa.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×