Sjáðu Sveindísi stinga af og leggja upp Sindri Sverrisson skrifar 16. mars 2026 11:31 Sveindís Jane Jónsdóttir nýtti stökkkraftinn sinn þegar leikmenn Angel City fögnuðu marki gegn Chicago Stars. Getty/Liza Rosales Sveindís Jane Jónsdóttir og stöllur hennar í Angel City buðu upp á sýningu í fyrstu umferð bandarísku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í gærkvöld.
Angel City vann Chicago Stars 4-0 á BMO-leikvanginum í Los Angeles. Sveindísi var stillt upp sem fremsta manni í leiknum og hún átti sinn þátt í sigrinum, sérstaklega í fjórða markinu eins og sjá má hér að neðan. Eða eins og lýsandinn orðaði það, þetta mark var allt Sveindísi að þakka. Sveindís fékk sendingu fram völlinn og tók við boltanum með laglegri snertingu sem gerði henni kleift að rjúka strax fram og stinga varnarmennina af. Hún renndi svo boltanum til hliðar, út í teiginn á hina brasilísku Maiara Niehues sem skoraði. Áður hafði Kennedy Fuller skorað fyrsta mark leiksins og lagt upp annað fyrir Evelyn Shores. Ary Borges skoraði svo þriðja markið á 66. mínútu eftir skelfileg mistök gestanna, skömmu áður en Niehues skoraði fjórða markið. Þetta var kærkomin byrjun fyrir Angel City sem missti af úrslitakeppni deildarinnar í fyrra og hafnaði í 11. sæti af 14 liðum. Chicago hafnaði þá í neðsta sætinu en ekki er hægt að falla úr deildinni, líkt og vaninn er í bandarískum íþróttum.
Bandaríski fótboltinn Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Fleiri fréttir Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira