Hetjan mætti í vígahug í viðtal: „Algjört kjaftæði“ Aron Guðmundsson skrifar 15. mars 2026 10:52 Anthony Gordon var hetja Newcastle í gær og nýtti tækifærið í viðtali eftir leik til þess að svara fyrir sig. Vísir/Getty Anthony Gordon, leikmaður Newcastle United, lét sparkspekinga og þar á meðal Newcastle goðsögnina Alan Shearer, heyra það eftir að hafa reynst hetja Newcastle United í sigri liðsins gegn Chelsea í gær.
Gordon skoraði eina mark leiksins á Stamford Bridge í gær og tryggði sínu liði mikilvæg þrjú stig og í viðtali eftir leik hafði hann þörf fyrir því að tjá sig um umræðu sem hafði blossað upp fyrir leikinn um hann. Newcastle United spilaði gegn Barcelona í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu um miðja viku og vakti það athygli að Gordon var þá á meðal varamanna í liði Newcastle. Englendingurinn var að glíma við veikindi á þeim tíma og gat því ekki byrjað leikinn þrátt fyrir að vilja það. Sparkspekingar létu vel í sér heyra eftir að komið hafði í ljós að Gordon væri á meðal varamanna í liði Newcastle og efaðist Roy Keane meðal annars um það hvort Gordon væri í raun og veru veikur fyrst hann gat komið inn á í seinni hálfleik en ekki byrjað leikinn. Alan Shearer bætti við að það hefði þurft eitthvað mikið til að halda honum frá keppni í þessum leik og Wayne Rooney var einnig í hópi gagnrýnenda. Gordon svaraði fyrir sig í viðtali eftir leikinn gegn Chelsea í gær. Hann hafði verið veikur í þrjá daga fyrir leikinn gegn Barcelona og þrátt fyrir að hann hefði treyst sér til þess að byrja þann leik var það ákvörðun knattspyrnustjórans Eddie Howe að láta hann byrja á bekknum. „Það að halda því fram að ég hafi ekki viljað spila í stærsta leik míns ferils til þessa er algjört kjaftæði,“ sagði Gordon í viðtali eftir leikinn gegn Chelsea. „Þeir verða að standa sig betur í starfi sínu.“ Sigurmark Gordon í leik gærdagsins má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Enski boltinn Newcastle United Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Tielemans tók vítið með Bruno Enski boltinn Hver var í flottustu treyjunni? Íslenski boltinn Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Fleiri fréttir Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Sjá meira