Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Agnar Már Másson skrifar 13. mars 2026 20:39 Ísraelsk herþota á flugi yfr norðanverðu Ísrael. AP Bandaríkin senda nú um 2.500 bandaríska landgönguliða til Mið-Austurlanda. Enn halda árásir Bandaríkjamanna og Ísraelsmanna á Íran áfram og Íranir hafa ekki látið af árásum sínum á olíuflutningaskip í Persaflóa.
AP greinir frá þessu og hefur eftir ónafngreindum heimildarmanni að Bandaríkin sendi nú hluta úr landgönguliðssveit og herskip fyrir landgönguliða til Mið-Austurlanda. AP segir þó að þetta þurfi ekki að þýða að landhernaðaraðgerð sé yfirvofandi eða muni eiga sér stað. Á upplýsingafundi í Pentagon á föstudag sagði Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, að nýr æðstiklerkur Írans, Mojtaba Khamenei, „sé særður og líklega afmyndaður“, en færði þó ekki sönnunargögn um það. Ísraelsmenn gruna að Khamenei hafi særst í upphafi stríðsins. Khamenei hefur ekki sést opinberlega síðan hann tók við forystunni eftir andlát föður síns, Ali. Hegseth sagði einnig við fréttamenn að Íranir sýndu fram á „hreina örvæntingu“ á Hormússundi með því að hindra umferð fjölda olíuskipa. „Við höfum verið að takast á við það og þurfum ekki að hafa áhyggjur af því,“ sagði varnarmálaráðherrann þó. Í nótt hrapaði KC-135 áfyllingarflugvél bandaríska hersins í vesturhluta Íraks og eru allir sex áhafnarmeðlimirnir um borð látnir, samkvæmt yfirlýsingu bandaríska hersins, þar sem fram kemur að málið væri til rannsóknar. M Með slysinu er tala látinna Bandaríkjamanna í aðgerðinni „Epic Fury“ komin í að minnsta kosti 13 hermenn. Sjö þeirra féllu í bardaga. Yfir 100 börn eru meðal þeirra 773 sem hafa fallið í árásum Ísraela í Líbanon eftir að bardagar hafa staðið þar yfir við Hezbollah-hryðjuverkasamtökin síðustu 10 daga, að sögn líbanska heilbrigðisráðuneytisins á föstudag. Ísraelsher sagði í dag að árásir myndu halda áfram og aðeins verða harkalegri í Líbanon og Íran.
Íran Bandaríkin Ísrael Líbanon Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Sjá meira