Tvær misheppnaðar hryðjuverkaárásir á einum degi Samúel Karl Ólason skrifar 13. mars 2026 09:23 Mikill viðbúnaður var fyrir utan bænahúsið í Michigan í gær. Tvær árásir eru til rannsóknar sem hryðjuverk. AP/Corey Williams Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa tvær meintar hryðjuverkaárásir sem framdar voru í gær til rannsóknar. Í einu tilfelli keyrði maður gegnum dyr á bænahúsi gyðinga í Michigan og hóf þar skothríð. Sá var felldur af öryggisvörðum. Í hinu tilfellinu ruddist maður inn í skólastofu í háskóla í Virginíu og skaut þar til bana yfirmann í bandaríska hernum.
Árásarmaðurinn var svo yfirbugaður og drepinn af nemendum sem voru á námskeiði fyrir varalið í bandaríska hernum. Heimavarnaráðuneyti Bandaríkjanna segir að árásin á bænahúsið hafi verið gerð af 41 bandarískum ríkisborgara sem fæddist í Líbanon. Sá hét Ayman Mohamad Ghazali og ferðaðist hann fyrst til Bandaríkjanna árið 2011 með vegabréfsáritun fyrir erlenda maka bandarískra ríkisborgara. Hann fékk sjálfur ríkisborgararétt árið 2016. New York Times hefur eftir yfirmanni lögreglunnar á svæðinu að tilefni árásarinnar liggi ekki fyrir. Héraðsmiðillinn Detroit Free Press hefur þó eftir nágranna árásarmannsins og bæjarstjóranum þar sem hann bjó að hann hefði misst nokkra fjölskyldumeðlimi í árásum Ísraela á Líbanon á undanförnum dögum. Einn nágranni sagði að bróðir Ghazali hefði verið meðal þeirra fjölskyldumeðlima sem hefðu dáið. Yfirvöld í Líbanon segja hundruð óbreyttra borgara hafa fallið í árásum Ísraela á undanförnum dögum. Reyndi að ganga til liðs við ISIS Hin árásin var gerð af manni sem hét Mohamed Bailor Jalloh en tæp tvö ár eru síðan honum var sleppt úr fangelsi eftir að hann var dæmdur fyrir að reyna að ganga til liðs við Íslamska ríkið. Jalloh ruddist inn í skólastofu í Old Dominion-háskólanum í Virginíu í gær, þar sem verið var að halda námskeið fyrir meðlimi varaliðs Bandaríkjahers. Jalloh skaut einn mann til bana en var yfirbugaður og drepinn af nemendum. Tveir særðust í árásinni, samkvæmt AP fréttaveitunni. Fréttaveitan segir marga, og þar á meðal þingmenn, velta vöngum yfir því hvernig maður sem sat í fangelsi fyrir að reyna að ganga til liðs við hryðjuverkasamtök eins og ISIS, hafði tækifæri til að gera árás sem þessa. Jalloh er upprunalega frá Sierra Leone. Hann þjónaði í þjóðvarðliði Virginíu frá 2009 til 2015 en mun hafa orðið fyrir áhrifum frá Anwar al-Awlaki, þekktum áróðursmanni al-Qaeda. Jalloh játaði í október 2016 að hann hefði stutt hryðjuverkasamtökin og reynt að ganga til liðs við þau. Árið 2017 var hann svo dæmdur til ellefu ára fangelsisvistar en var sleppt í lok árs 2024. Ekki liggur fyrir af hverju honum var sleppt fyrr en til stóð en fyrir því geta verið ýmsar ástæður. Á árum áður viðurkenndi Jalloh fyrir útsendara Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) að hann ætlaði sér að ganga til liðs við ISIS og reyndi hann þar að auki að senda hryðjuverkasamtökunum fimm hundruð dali. Þeir peningar enduðu þó á reikningi FBI. Jalloh viðurkenndi einnig að hann hefði í huga að gera skotárás í Bandaríkjunum. Hann reyndi að kaupa hálfsjálfvirkan riffil en hafði ekki erindi sem erfiði, þar sem hann hafði ekki réttu pappírana. Degi síðar mætti hann aftur í sömu verslun og keypti aðra byssu. Það sem hann vissi þó ekki var að útsendarar FBI höfðu gert byssuna óvirka. Jalloh var síðan handtekinn degi síðar. Saksóknarar fóru fram á að hann yrði dæmdur í tuttugu ára fangelsi og vísuðu til þess að hann hefði gert nokkrar tilraunir til að ganga til liðs við hryðjuverkasamtök og hefði lagt á ráðin um að fremja fjöldamorð. Lögmenn hans fóru fram á sex og hálfs árs fangelsi og að hann yrði vistaður á meðferðarheimili við fíkn.
Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Hryðjuverkastarfsemi Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira