Betri svefn – Betra líf Erla Björnsdóttir skrifar 13. mars 2026 07:01 Í dag er Alþjóðlegi svefndagurinn (World Sleep Day) og þema ársins er Sleep Well, Live Better. Skilaboðin eru einföld en mikilvæg: ef við sofum betur, lífum við betur. Svefn er ein mikilvægasta grunnstoð heilsu og lífsgæða, en samt er svefn oft það fyrsta sem við fórnum þegar lífið verður annasamt. Við verjum um þriðjungi ævinnar sofandi, sem samsvarar um 25–30 árum af lífi okkar. Þó það virðist langur tími er svefninn langt frá því að vera tímasóun. Í svefni fer líkaminn í gegnum mikilvægt enduruppbyggingarferli: ónæmiskerfið styrkist, hormónakerfið jafnast og heilinn vinnur úr upplýsingum dagsins. Heilinn þarf líka hvíld frá áreitum Við hugsum oft um svefn sem tíma þegar heilinn „slekkur á sér“. Raunin er þó önnur. Í svefni er heilinn mjög virkur; hann vinnur úr upplifunum dagsins, styrkir minningar og hreinsar út úrgangsefni sem safnast hafa upp í taugakerfinu. Það sem marga skortir hins vegar í dag er hlé frá stöðugu áreiti yfir daginn. Heilinn okkar tekur stöðugt við nýjum upplýsingum, frá símanum, tölvunni, samfélagsmiðlum og hraða dagsins. Fyrir marga er fyrsta raunverulega stund dagsins án áreita þegar höfuðið legst á koddann á kvöldin. Þá fær hugurinn loksins svigrúm til að vinna úr hugsunum og áhyggjum dagsins og þá fer hugurinn oft á flug. Seint á kvöldin er virkni í framheilanum, sem hjálpar okkur að meta hugsanir á rökrænan hátt, skert. Afleiðingin getur verið sú að áhyggjur magnast upp og halda vöku fyrir fólki. Þess vegna getur verið gagnlegt að gefa heilanum reglulega stutt hlé frá áreitum yfir daginn. Einfaldir hlutir eins og að fara í göngutúr, leggja símann frá sér um stund eða einfaldlega að loka augunum og taka nokkra djúipa andardrætti getur hjálpað huganum að ná betra jafnvægi og þannig einnig stuðlað að betri svefni. Dagsbirta – einfalt og gott svefnráð Eitt vanmetnasta ráð fyrir góðan svefn er dagsbirta. Líkamsklukkan okkar stillist fyrst og fremst af ljósi. Þegar við fáum dagsbirtu á morgnana fær líkaminn skýr skilaboð um að dagurinn sé hafinn og það hjálpar líkamanum að stilla svefninn síðar um kvöldið. Því getur einföld venja, eins og að fara út í 10–20 mínútna göngutúr á morgnana, haft meiri áhrif á svefninn en margir gera sér grein fyrir. Svefninn þarf sinn aðdraganda Svefn gerist sjaldnast með því einu að leggja höfuðið á koddann. Líkami og heili þurfa tíma til að gíra sig niður eftir amstur dagsins. Róleg kvöldrútína getur hjálpað mikið til. Að dempa ljós, leggja frá sér skjátæki, lesa, fara í heitt bað eða hlusta á rólega tónlist sendir líkamanum skýr skilaboð um að dagurinn sé að líða undir lok. Slíkar venjur hjálpa taugakerfinu að slaka á og gera líkamanum auðveldara að undirbúa sig fyrir svefn. Fimm einföld ráð fyrir betri svefn 1. Hafðu reglu á svefntímum Farðu að sofa og vaknaðu á svipuðum tíma alla daga. Það hjálpar líkamsklukkunni að halda jafnvægi. 2. Fáðu dagsbirtu snemma dags Morgunbirta styrkir líkamsklukkuna og getur auðveldað svefn um kvöldið. 3. Gefðu heilanum hvíld á kvöldin Dragðu úr skjánotkun og áreitum síðustu klukkustundina fyrir svefn. 4. Takmarkaðu koffín, nikótín og áfengi Koffín og nikótín eru örvandi efni sem geta haft neikvæð áhrif á svefngæði. Áfengi getur einnig truflað gæði svefns. Best er að takmarka koffín eftir hádegi og forðast nikótín og áfengi fyrir svefn. 5. Gerðu svefnherbergið að griðastað Gæði svefns eru best í köldu, dimmu og rólegu umhverfi þar sem auðvelt er að slaka á. Setjum svefninn í forgang Allir hafa 24 klukkustundir í sólarhringnum og flestir þurfa 7–9 klukkustunda svefn til að líða vel og vera við góða heilsu. Margir lifa annasömu lífi: vinna langan vinnudag, reka heimili og sinna fjölskyldu, vinum og áhugamálum. En þegar við byrjum að klípa af svefninum til að koma öllu öðru fyrir, þá borgum við skattinn einhvers staðar; í minni orku, lakari heilsu eða aukinni vanlíðan. Ef við viljum lifa betur, hugsa skýrar og hafa meiri orku í daglegu lífi, byrjar það oft á einföldu atriði: Að setja svefninn í forgang. Höfundur er sálfræðingur og Doktor í líf- og læknavísindum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Svefn Heilsa Mest lesið Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar