Rúv er óháð hagsmunum stjórnmála og einkaaðila Jakob Bjarnar skrifar 11. mars 2026 15:49 Heiðar Örn Sigurfinnsson fréttastjóri segir að um tilraun sé að ræða en fyrirvarinn eigi sér fyrirmynd hjá ríkismiðlum í Svíþjóð. vísir/vilhelm Lesendur vefs Ríkisútvarpsins hafa tekið eftir því að undir hverri einustu frétt sem birtist á vefnum hefur verið settur fyrirvari þar sem fullyrt er að RÚV sé óháð hagsmunum. Heiðar Örn Sigurfinnsson fréttastjóri segir að um tilraun sé að ræða.
Diskleimerinn eða fyrirvarinn er til þess að gera nokkuð fyrirferðarmikill: „Vinnureglur um fréttir og dagskrárefni RÚV er óháð hagsmunum stjórnmála, viðskipta, opinberra aðila og einkaaðila. Fréttaflutningur og dagskrárgerð okkar byggir á trúverðugleika og óhlutdrægni. Starfsfólk RÚV starfar samkvæmt vinnureglum um fréttir og dagskrárefni.“ Þarna mætti spyrja ýmissa spurninga eins og þeirra hvers vegna talin er ástæða til að setja sérstakan fyrirvara? Er þetta ekki svolítið eins og að segja að himinninn sé blár? Á Ríkisútvarpið ekki einmitt að sinna þessum skyldum lögum samkvæmt? Hvernig getur Ríkisútvarpið verið óháð ríkinu, eiganda sínum? Er þarna verið að teikna fréttastofuna upp sem háheilaga, sem þá aðrar fréttastofur eru ekki? Ofgnótt upplýsinga hvolfist yfir mannskapinn Rétti maðurinn til að svara þessum spurningum er Heiðar Örn Sigurfinnsson fréttastjóri. „Fyrirmyndin er sótt til Svíþjóðar, SVT og SR gera þetta. Við viljum aðallega minna lesendur á vinnureglur okkar og af hverju þeir eiga að geta borið traust til okkar,“ segir Heiðar Örn í samtali við Vísi. Heiðar Örn hafnar því að Ríkisútvarpið sé, í ljósi þess að merking þrífst á andstæðu sinni, að teikna sig upp sem heilagari en aðrir miðlar.vísir/vilhelm Að sögn fréttastjórans búum við nú í heimi þar sem mikil ofgnótt upplýsinga frá óritstýrðum fjölmiðlum sem ekki lúta neinum vinnureglum eða siðareglum hvolfist yfir lesendur og menn viti ekki hvað býr að baki. „Við ákváðum að setja þetta inn og köllum tilraun, til að minna lesendur á að það skiptir máli hvaðan upplýsingarnar koma. Þetta er í leiðinni ákveðin pressa fyrir okkur og okkar fólk að starfa í samræmi við þessar reglur, eins og það gerir alltaf, áminning eða brýning.“ Aðrir geta gert þetta líka Spurður hvaðan þetta sé komið segist Heiðar Örn bera ábyrgð á þessari tilraun. En er hann þá að reyna að teikna RÚV upp sem heilagara en aðra miðla, svona í ljósi þess að merking þrífst á andstæðu sinni? „Nei, alls ekki. Ykkur á Vísi er fullkomlega heimilt að fara þessa leið líka. Það að við ákveðum að prófa þetta þýðir ekki að aðrir geti ekki gert það líka.“ En getur þetta ekki hreinlega virkað þreytandi fyrir lesendur, að reka stöðugt augu í þennan fyrirvara? Að þetta geti reynst staglkennt? „Nei, nei. Er það? Af hverju?“ Og við erum svo sem sammála um að nægt pláss sé á netinu.
Fjölmiðlar Ríkisútvarpið Mest lesið Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Enn öðru flugi aflýst Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Fleiri fréttir Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Sjá meira