390.000 hektarar af landbúnaðarlandi breytast í skóg og votlendi: Landbúnaður næsta stóra loftslagsverkefni Dana Eyþór Eðvarðsson skrifar 9. mars 2026 15:01 Það má læra margt af Danmörku þegar kemur að loftslagsmálum. Samkvæmt alþjóðlega samanburðarlistanum Climate Change Performance Index (CCPI) er Danmörk í fjórða sæti yfir þau ríki heims sem standa sig best í loftslagsmálum. Í raun situr landið efst á listanum þar sem fyrstu þrjú sætin eru skilin eftir auð. Ástæðan er sú að sérfræðingar CCPI telja að engin þjóð hafi enn náð árangri sem samræmist að fullu markmiðum Parísarsamkomulagsins. Árangur Dana í loftslagsmálum byggir á markvissri stefnu sem nær til nánast allra geira hagkerfisins. Losun gróðurhúsalofttegunda hefur dregist saman um tæp 45% frá árinu 1990 á sama tíma og hagkerfið hefur vaxið og lífskjör aukist. Mikill árangur hefur náðst í orkukerfinu með uppbyggingu vindorku, í samgöngum með orkuskiptum og í iðnaði með aukinni orkunýtni. Nú beinist athyglin í auknum mæli að landbúnaði. Landbúnaður næsta stóra verkefnið Landbúnaður er í dag einn stærsti losunarþáttur Danmerkur (11-12 milljónir tonna CO₂-ígilda) og stendur fyrir um þriðjung af heildarlosun landsins. Um 60% lands Danmerkur er nýtt til landbúnaðar og landbúnaður og matvælaiðnaður skapar 20-25% af heildarútflutningi landsins. Umbreyting landbúnaðar í Danmörku á sér langan aðdraganda. Í áratugi hefur köfnunarefni frá landbúnaði (aðallega svínabúum) haft mjög neikvæð áhrif á vötn og strandsjó landsins. Mikil pólitísk átök hafa verið um áburðarreglur og umhverfismál sem leiddu að lokum til þess að stjórnvöld, bændur og atvinnulíf gerðu hið svokallaða Græna þríhliða samkomulag (Den Grønne Trepart) árið 2024. Hér er um að ræða eitt umfangsmesta loftslagssamkomulag sem gert hefur verið um landbúnað í Evrópu. Samkomulagið felur meðal annars í sér kolefnisverð á landbúnað, stórfellda endurheimt votlendis, breytingar á landnotkun og aukna kolefnisbindingu í jarðvegi. Það gerir bændum einnig kleift að fá bætur fyrir að taka land úr ræktun og fá greitt fyrir að draga úr losun og auka kolefnisbindingu, til dæmis með endurheimt votlendis, skógrækt og breyttri landnotkun. Markmiðið er að draga verulega úr losun og um leið styðja við umbreytingu landbúnaðarins þannig að hann verði sjálfbærari og áfram samkeppnishæfur. Jafnframt er ætlunin að draga úr langvarandi vandamálum vegna köfnunarefnis frá landbúnaði. Samkvæmt hinu Græna þríhliða samkomulagi stefna dönsk stjórnvöld að því að breyta um 390.000 hekturum af landbúnaðarlandi. Þar af eiga 250.000 hektarar að verða nýr skógur og 140.000 hektarar votlendi. Þetta samsvarar um 10% af ræktuðu landi Danmerkur. Stefna Dana er ekki að framleiða minna af mat heldur að umbreyta landbúnaðinum þannig að hann dragi úr losun, verndi náttúruna og skapi meiri verðmæti með minni umhverfisáhrifum. Stuðningur frá Evrópusambandinu Til viðbótar við stuðning danska ríkisins nýtur þessi umbreyting einnig stuðnings frá Evrópusambandinu í gegnum sameiginlega landbúnaðarstefnu sambandsins, Common Agricultural Policy (CAP). Þar er veittur fjárhagslegur stuðningur til að hjálpa bændum að breyta landnotkun, fjárfesta í nýrri tækni og draga úr umhverfisáhrifum framleiðslunnar. Þessi nálgun endurspeglar ákveðna stefnumótandi hugsun. Í stað þess að líta á loftslagsaðgerðir og náttúruvernd sem ógn við landbúnaðinn eru þær nýttar sem tæki til að umbreyta greininni og gera hana sjálfbærari til framtíðar. Bændur eru teknir með í breytingarnar og fá stuðning til að laga reksturinn að nýjum aðstæðum. Stærsta loftslagsáskorun Íslands Hér á Íslandi er bein losun frá landbúnaði um 14-15% af heildarlosun gróðurhúsalofttegunda. Myndin breytist hins vegar verulega þegar framræst land er tekið með í reikninginn. Allt framræst votlendi (þótt ekki allt sé nýtt til landbúnaðar) losar um 6,3 milljónir tonna CO₂-ígilda á ári, sem samsvarar um 55-60% af heildarlosun landsins. Þegar þetta er lagt saman verður ljóst að landbúnaður og landnotkun eru langstærsta loftslagsáskorun Íslands. Þar liggja jafnframt stærstu möguleikarnir til samdráttar í losun. Mögulegur stuðningur við umbreytingu íslensks landbúnaðar Þessi þróun er einnig áhugaverð í ljósi þeirrar umræðu sem nú stendur yfir á Íslandi um mögulegar aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ef Ísland færi í slíkar viðræður væri eðlilegt að landbúnaður yrði eitt af lykilmálunum. Evrópusambandið rekur í dag umfangsmesta stuðningskerfi landbúnaðar í heiminum í gegnum CAPþar sem milljarðar evra renna árlega til bænda og til umbreytingar í landnotkun. Á undanförnum árum hefur þessi stefna í auknum mæli beinst að loftslagsmálum, náttúruvernd og sjálfbærri landnotkun. Í gegnum CAP hafa mörg Evrópulönd fengið fjárhagslegan stuðning til að endurheimta votlendi, breyta ræktunarlandi, auka skógrækt og draga úr losun frá landbúnaði. Þannig hefur kerfið verið notað til að styðja við umbreytingu landbúnaðar á sama tíma og bændum er tryggður fjárhagslegur stöðugleiki. Dæmi um þetta má finna víða í Evrópu. Í Finnlandi hefur stuðningur úr CAP verið nýttur til að greiða bændum fyrir að breyta landnotkun á kolefnisríkum jarðvegi og endurheimta votlendi. Á Írlandi hafa bændur fengið greiðslur fyrir að bæta ástand jarðvegs og draga úr losun frá nautgriparækt. Í Póllandi hefur CAP verið lykiltæki í umbreytingu landbúnaðar eftir að landið gekk í Evrópusambandið, meðal annars með fjárfestingum í nýrri tækni og sjálfbærari landnotkun. Fyrir Ísland, þar sem stærsta loftslagsáskorunin tengist landnotkun og framræstu votlendi, gæti slíkt kerfi opnað nýja möguleika. Þannig væri möguleiki á að fá fjármagn úr CAP til stórra verkefna í endurheimt votlendis, kolefnisbindingu og umbreytingu landbúnaðar á svipaðan hátt og nú er verið að gera í nokkrum nágrannalöndum okkar. Það væri stórt skref í rétta átt. Greinarhöfundur er í loftslagshópnum París 1,5 sem berst fyrir því að Íslandi leggi sitt af mörkum til að takast á við loftslagsvandann. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eyþór Eðvarðsson Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun