„Þeir geta klárað þetta án mín“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 5. mars 2026 12:32 Orri verður á hliðarlínunni næstu mánuði en stefnir samt á að verða Íslandsmeistari. vísir Körfuboltamaðurinn Orri Gunnarsson stefnir á það að vera kominn aftur á parketið eftir tíu mánuði. Hann sleit krossband og bíður eftir því að komast í aðgerð en segir Stjörnuliðið fullfært um að verja Íslandsmeistaratitilinn án hans.
Orri var borinn meiddur af velli af æfingu íslenska landsliðsins í síðustu viku. Fljótlega komu krossbandsslit í ljós og hann leikur ekki meira með Stjörnunni í Bónus deildinni á þessu tímabili. „Þetta var náttúrulega bara leiðinlegt, en ég hugsa jákvætt og reyni að gera það besta úr þessu. Kem sterkari til baka, þetta er langt ferli en boltinn er bara svona,“ sagði jákvæður Orri Gunnarsson í viðtali við Stefán Árna Pálsson. „Eins og margir hafa örugglega séð á myndbandinu þá lendi ég á báðum fótum en annað hnéð gefur sig bara. Ég finn bara eitthvað klikk og hneig niður í jörðina. Ég byrjaði bara að panikka og fann alveg að þetta væri eitthvað slæmt, en hélt í vonina að þetta væri ekki neitt,“ sagði Orri um atvikið sem ollu meiðslunum. Þig grunaði strax að þetta væru krossbandsslit? „Já. Fólk sem hefur slitið áður hefur talað um að það fundið þetta klikk. Ég augljóslega fann það og var alveg meðvitaður um að þetta gætu verið slit.“ Byggir upp styrk meðan hann bíður Orri lætur hins vegar ekki deigan síga og var mættur á æfingar með Stjörnuliðinu í þessari viku. Hann bíður enn eftir að bólgurnar hjaðni svo hann komist í aðgerð. „Ég mæti og reyni að vera með liðinu. Ég er að lyfta og láta reyna á efri líkamann bara. Byrja að gera það og svo fer ég að gera einhverjar æfingar fyrir hnéð. Koma hnénu í lag fyrir aðgerð. Orri Gunnarsson og Hilmar Smári Henningsson kampakátir eftir að hafa landað Íslandsmeistaratitlinum í Síkinu síðasta vor. Stjarnan stefnir á að verja titilinn án Orra í ár. Vísir/Hulda Margrét Læknirinn sagði að bólgan þyrfti að fara og ég þyrfti að ná einhverjum styrk í lærvöðvann áður en ég fer í aðgerð. Læknirinn segir að þetta eigi að ganga hratt fyrir sig og ég verði kominn í aðgerð áður en ég veit af. Fólk segir að þetta taki tólf mánuði en ég ætla að reyna að gera allt þess að vera kominn sem fyrst aftur á gólfið. Markmiðið er að snúa aftur um áramótin. Þangað til styð ég liðið og mæti á allar æfingar. Þeir geta klárað þetta án mín,“ sagði Orri. Orri var til viðtals í Sportpakka Sýnar í gærkvöldi. Innslagið má sjá í spilaranum að ofan.
Bónus-deild karla Stjarnan Landslið karla í körfubolta Tengdar fréttir Hraðinn hjá Stjörnunni hentar Orra vel Orri Gunnarsson segir hraðan leikstíl Stjörnunnar henta sér vel og telur hann vænlegan til árangurs gegn Keflavík í kvöld. 17. október 2025 17:32 Mest lesið Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Fótbolti „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Landsliðskona í Val Handbolti Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Fótbolti Tijjani Reijnders farinn Enski boltinn Fleiri fréttir „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Sjá meira
Hraðinn hjá Stjörnunni hentar Orra vel Orri Gunnarsson segir hraðan leikstíl Stjörnunnar henta sér vel og telur hann vænlegan til árangurs gegn Keflavík í kvöld. 17. október 2025 17:32