Einhverfugreining og hvað svo? Elín Anna Baldursdóttir skrifar 4. mars 2026 14:30 Rannsóknir benda til þess að algengi einhverfurófsraskana sé um 1–3% meðal barna, eða um það bil 1 af hverjum 30–50 börnum. Fylgiraskanir hjá börnum á einhverfurófi eru algengar og jafnvel frekar reglan en undantekningin. Þar má nefna tilfinningaraskanir eins og kvíða, þunglyndi eða aðrar taugaþroskaraskanir eins og ADHD, málþroskaraskanir og þroskahömlun. Börn á einhverfurófi er því stór hópur í okkar samfélagi sem oft á tíðum glímir við margar áskoranir. Börn á einhverfurófi eru margfalt líklegri til að þróa með sér skólaforðun en önnur börn. Í Kveik í gærkvöldi var varpað ljósi á þann ójöfnuð sem fólk á einhverfurófi getur mætt í geðheilbrigðisþjónustu, þar sem einstaklingum er stundum vísað frá eða þeir fá ekki þá meðferð sem þeir þurfa á að halda. Það er alvarlegt þegar kerfið sem á að styðja fólk bregst. Oft er sagt að ef þú hefur hitt einn einstakling með einhverfu þá hafir þú hitt einn einstakling með einhverfu. Fólk á einhverfurófi er jafn misjafnt og við hin. Að vera á einhverfurófi setur fólk ekki í ákveðna staðalímynd eða box. Hver einstaklingur er einstakur, alveg eins og þú og ég. Ég þekki þetta vel úr starfi mínu þar sem ég vinn meðal annars með fólki á einhverfurófi. Það sem skiptir mestu máli er að mæta einstaklingnum þar sem hann er staddur. Í grunninn sitjum við saman, ein manneskja að hjálpa annarri manneskju. Það skiptir miklu máli að við aukum þekkingu okkar á einhverfu og þeim áskorunum sem henni geta fylgt, en ekki síður á styrkleikum sem margir á einhverfurófi búa yfir. Auðvitað geta fylgt ákveðnar hindranir sem tengjast taugaþroskafrávikum og krefjast aðlögunar í umhverfi eða meðferð. En einhverfa ætti ekki að vera ástæða fyrir því að einstaklingur fái ekki viðeigandi meðferð. Rannsóknir sýna til dæmis að hugræn atferlismeðferð getur borið góðan árangur við kvíða hjá börnum á einhverfurófi. Meðferðin getur þó þurft aðlögun, til dæmis með meiri þátttöku foreldra, sjónrænt skipulag eða lengri meðferð. Sem dæmi reynir oft á í mínu starfi með einstaklingum á einhverfurófi að greina á milli þess sem veldur vanlíðan. Stundum er um að ræða kvíða, en stundum tengist vanlíðanin frekar skynúrvinnsluvanda sem oft fylgir einhverfu, til dæmis þegar ákveðin hljóð, birta eða fjölmenni valda miklu álagi. Það sem skiptir mestu máli er að við greinum vandann vel og kortleggjum hann út frá einstaklingnum, svo við getum fundið réttar leiðir til að styðja við hann. Fólk á einhverfurófi á rétt á sömu geðheilbrigðisþjónustu og aðrir. Verkefni okkar sem samfélags er að tryggja að kerfið loki ekki dyrum heldur finni leiðir til að mæta fólki með skilningi, þekkingu og lausnum hvort sem það er með viðeigandi meðferð eða aðlögun umhverfis. Við getum öll gert betur og byrjað strax í dag með því að gefa okkur tíma til þess að kynna okkur einhverfu. Mikið af góðum upplýsingum er t.d. að finna á heimasíðu einhverfusamtakana: https://www.einhverfa.is. Höfundur er sálfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Einhverfa Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun Skoðun Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Erum við í hættu? Ólgan kringum gervigreind Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar