Saga Elvars er ótrúleg Stefán Árni Pálsson skrifar 4. mars 2026 12:00 Hlynur Bæringsson er fyrrum landsliðsfyrirliði Íslands og sérfræðingur Sýnar í körfubolta. Vísir/Hulda/sigurjón Fyrrum landsliðsmaður í körfubolta segir að það hafi verið ótrúlegt að fylgjast með íslenska landsliðinu í sigurleiknum gegn Litháum á föstudagskvöldið. Liðið standi vel að vígi í riðlinum í undankeppni HM.
Ísland vann stórkostlegan sigur á Litháen á föstudagskvöldið er liðið vann eins stigs sigur 86-85 eftir flautukörfu frá Elvari Má Friðrikssyni. Ísland var 19 stigum undir þegar tæplega sex mínútur voru eftir af leiknum en ótrúleg frammistaða Elvars skilaði stigunum tveimur í hús. Elvar með 34 stig í leiknum. Á mánudaginn mættust liðin aftur og þá vann Litháen 17 stiga sigur nokkuð þægilega. Ísland er í þriðja sæti riðilsins með sex stig, jafnmörg stig og Litháar og einu stigi á eftir toppliði Ítala. Bretar reka lestina með fimm stig. Ísland mætir Bretum og Ítölum í næsta glugga í júlí. Þrjú efstu liðin fara áfram í næsta undankeppnisfasa. „Ég held að það að splitta leikjunum gegn Litháum séu bara mjög góð úrslit og meira en ásættanleg. Ég verð að viðurkenna það, ég var á leiknum og ég var eiginlega bara búinn að gefa upp alla von. Tryggvi var farinn út af og við vorum 19 stigum undir. Mér fannst eins og það væri verið að kasta inn handklæðinu. Svo koma bara Hilmar og Tóti inn og við með lítið line-up inni á og við byrjum að ná þessu til baka. Ég hélt að við yrðum í góðum leik á heimavelli. En eins og Litháar voru og eru, þá vissi maður að þetta yrði strögl. Þetta verður lengi í minnum, þessi leikur. Ég held að við munum muna þennan lengi.“ Eins og áður segir var Elvar Már einstakur í leiknum en man Hlynur eftir svona frammistöðu hjá íslenskum landsliðsmanni? „Ég þyrfti nú að fara að grafa sko og er svo sem búinn að gleyma mörgum leikjum. Þetta var eitthvað mjög bara algjörlega stórkostlegt og svo er saga Elvars kannski eitthvað sem þið bara skrifið einhvern tímann seinna. Hún er alveg stórmerkileg. Hvernig hann hefur vaxið. Það er í raun og veru auðvitað fínn leikmaður og góður leikmaður. Hann fer 25 ára til Svíþjóðar og síðan er það bara tröppugangur. Hann er bara fyrirmynd fyrir ungt fólk. Hvernig einhvern veginn á að haga sínum ferli, hvernig það á ekki að gefast upp. Hann er orðinn í dag leikmaðurinn á mjög háu stigi. Þetta var algjörlega ótrúlegt. Að fylgjast með honum þarna. Allt bara allt frá þessum körfum, bara í fagnið og ljósmyndina. Þetta var allt skrifað eins og þú átt að gera það.“
Landslið karla í körfubolta HM 2027 í körfubolta Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Fram - Breiðablik | Tvö af fjórum efstu takast á Íslenski boltinn Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Sport FH - ÍA | Böðvar mættur að auka böl FH-inga Íslenski boltinn Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Handbolti Styrmir nýr formaður hjá Val Íslenski boltinn Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Fótbolti Tilfinningaríkur sigur Littler Sport Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Handbolti Fleiri fréttir Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur | Eru Valskonur hrokknar í gang? Fram - Breiðablik | Tvö af fjórum efstu takast á FH - ÍA | Böðvar mættur að auka böl FH-inga Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Alcaraz fann til með Sinner Doncic flytur félag til Rómar „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Óskar Hrafn á hælana? Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Brann kveður Jón Dag Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Þurfti að yfirgefa liðið fyrir úrslitaleikinn Tottenham bætir í vörnina Fjórir kylfingar fóru holu í höggi fyrstu vikuna í Leirdalnum Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Árangurinn vinnur gegn kvíðanum Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Styrmir nýr formaður hjá Val Verður einn sá dýrasti í sögu KR HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Messi fer á sjötta heimsmeistaramótið Hjalti stýrir Skagamönnum Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Spurs knúðu fram oddaleik Sjá meira