Vaktin: Átökin breiðast enn út Samúel Karl Ólason, Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Eiður Þór Árnason skrifa 3. mars 2026 09:35 Björgunarsveitarmenn bera lík manns úr byggingu í Beirút í Líbanon eftir loftárás Ísraela í gærkvöldi. AP/Hussein Malla Átökin í Mið-Austurlöndum halda áfram að breiða úr sér. Bandaríkjamenn og Ísraelar varpa enn sprengjum á skotmörk í Íran og Íranir halda áfram að svara fyrir sig með dróna- og eldflaugaárásum á nágrannaríki sín. Hezbollah lýsti í gær yfir stríði við Ísrael og gerðu Ísraelar nýja innrás í Líbanon í morgun. Útlit er fyrir að árásir Írana hafi aukist í gærkvöldi. Fleiri skotflaugum og drónum hefur verið skotið þaðan og á fleiri ríki en áður. Þá hafa Íranir gert umfangsmiklar árásir á Ísrael, í samfloti við Hezbollah í Líbanon. Helstu tíðindi: Rauði hálfmáninn í Íran segir að minnsta kosti 787 hafa fallið þar í landi í árásum síðustu daga. Tugir eru einnig látnir í Líbanon og í öðrum ríkjum Mið-Austurlanda. Ráðamenn í Íran þvertaka fyrir að til greina komi að semja við Bandaríkjamenn og heita því að berjast áfram. Ali Larijani, æðsti embættismaður Íran hvað varðar varnarmál, sagði í gærkvöldi að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, væri veruleikafirrtur og sagði Írani undirbúna fyrir langvarandi stríð. Ríki Mið-Austurlanda hafa gengið verulega á forða sinn á flugskeytum fyrir loftvarnarkerfi til að skjóta niður dróna og eldflaugar frá Íran. Greinendur vara við því að framleiðsla anni ekki eftirspurn. Bandaríkjamenn og Ísraelar leggja sérstakt kapp á að finna skotpalla Írana og eldflaugar og granda þeim. Fylgst er með gangi mála í Vaktinni hér að neðan. Ef hún birtist ekki er ráð að endurhlaða síðunni.
Útlit er fyrir að árásir Írana hafi aukist í gærkvöldi. Fleiri skotflaugum og drónum hefur verið skotið þaðan og á fleiri ríki en áður. Þá hafa Íranir gert umfangsmiklar árásir á Ísrael, í samfloti við Hezbollah í Líbanon. Helstu tíðindi: Rauði hálfmáninn í Íran segir að minnsta kosti 787 hafa fallið þar í landi í árásum síðustu daga. Tugir eru einnig látnir í Líbanon og í öðrum ríkjum Mið-Austurlanda. Ráðamenn í Íran þvertaka fyrir að til greina komi að semja við Bandaríkjamenn og heita því að berjast áfram. Ali Larijani, æðsti embættismaður Íran hvað varðar varnarmál, sagði í gærkvöldi að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, væri veruleikafirrtur og sagði Írani undirbúna fyrir langvarandi stríð. Ríki Mið-Austurlanda hafa gengið verulega á forða sinn á flugskeytum fyrir loftvarnarkerfi til að skjóta niður dróna og eldflaugar frá Íran. Greinendur vara við því að framleiðsla anni ekki eftirspurn. Bandaríkjamenn og Ísraelar leggja sérstakt kapp á að finna skotpalla Írana og eldflaugar og granda þeim. Fylgst er með gangi mála í Vaktinni hér að neðan. Ef hún birtist ekki er ráð að endurhlaða síðunni.
Íran Ísrael Bandaríkin Hernaður Líbanon Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Erlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fleiri fréttir Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Sjá meira