Frakkar fjölga kjarnavopnum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 3. mars 2026 07:04 Macron hélt ræðu sína á herstöðinni við kjarnorkukafbátinn Le Temeraire. Frakkar eiga um þaði bil 300 kjarnaodda en hyggjast fjölga þeim enn frekar. AP/Yoan Valat „Næstu 50 ár verða tímabil kjarnorkuvopna,“ sagði Emmanuel Macron Frakklandsforseti í ræðu í gær en greint hefur verið frá því að stjórnvöld í Frakklandi hyggist fjölga kjarnavopnum sínum og koma átta ríkjum undir „kjarnorkuregnhlíf“ sína.
Forseti hélt ræðu sína í Ile Longue-herstöðinni, þar sem hann greindi meðal annars frá því að nýr kjarnorkukafbátur, „Hinn ósigrandi“, yrði tekinn í notkun árið 2036. Þá sagði hann að átta Evrópuríki; Bretland, Þýskaland, Pólland, Holland, Belgía, Grikkland, Danmörk og Svíþjóð, hefðu samþykkt að taka þátt í nýrri áætlun sem gengi út á að efla fælingarmátt ríkjanna. Macron sagði ríkin myndu taka þátt í æfingum Frakka og þá yrðu herþotur sem geta borið kjarnorkuvopn staðsettar á herstöðvum í ríkjunum. Frakkar myndu sömuleiðis taka þátt í þróun viðbótargetu, til að mynda kerfa til að skjóta niður eldflaugar og dróna. Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, tjáði sig um málið á X í gær, þar sem hann sagði bandalagsríkin nú vinna að því að efla vopnagetu sína „þannig að óvinir okkar munu aldrei voga sér að ráðast gegn okkur“. Stjórnvöld í Frakklandi hafa ítrekað að „kjarnorkuregnhlífin“ feli ekki í sér eiginlega tryggingu fyrir því að Frakkar muni svara fyrir árás á bandalagsríki með kjarnorkuárás. Þá verði ákvörðunarvald um beitingu kjarnorkuvopna Frakklands áfram í höndum Frakklandsforseta. BBC greindi frá.
Frakkland Kjarnorka Hernaður Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Fleiri fréttir Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Sjá meira