„Ég hef bara miklar áhyggjur af þessu“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. mars 2026 09:32 Hjálmar Örn Jóhannsson ræddi við Messuna um ástandið í herbúðum Tottenham. Sýn Sport Tottenham hefur ekki enn unnið deildarleik á árinu 2026 og nálgast nú hratt harða fallbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar. Sunnudagsmessan vildi heyra í þekktasta Tottenham-stuðningsmanni landsins, Hjálmari Erni Jóhannssyni og fá hans mat á stöðunni.
Hjálmar horfði á Tottenham tapa 2-1 á móti Fulham í ensku úrvalsdeildinni í gær. „Maður er orðinn virkilega stressaður núna,“ sagði Hjálmar. Tottenham er nú bara fjórum stigum á undan West Ham sem situr í fallsæti. Kjartan Atli Kjartansson, umsjónarmaður Sunnudagsmessunnar, spurði Hjamma hreint út hvort að honum fyndist vera raunveruleg hætta á því að Tottenham falli úr ensku úrvalsdeildinni í vor. Þetta er bara agalegt „Eftir leikinn í dag, já. Þetta er bara agalegt og þetta var svo hræðilegt að það var rosalegt. Ég hef bara miklar áhyggjur af þessu og ég get alveg sagt ykkur að við gætum orðið fyrsta liðið til að spila í Meistaradeildinni og í Championship-deildinni,“ sagði Hjálmar en það gengur mun betur hjá enska liðinu í Meistaradeildinni. „Það er enginn sem kemur og bjargar okkur,“ sagði Hjálmar og rifjaði upp þegar Jurgen Klinsmann kom sterkur inn undir lok síðustu aldar. Áttum bara að fá stemningsmann inn „Ég held að það verði mistök að ráða [Igor] Tudor. Við áttum að fá mann, bara stemningskall inn. Einhver taktík, innköst eða eitthvað formation kjaftæði skiptir engu máli. Við áttum bara að fá stemningsmann inn. Þetta var algjört klúður,“ sagði Hjálmar. Hann hafði líka áhyggjur af því að allt hafi farið að ganga á afturfótunum þegar hann fór að syngja Tottenham-lagið sitt sem hann gaf smá sýnishorn af í viðtalinu. Það má sjá allt viðtalið við Hjálmar hér fyrir neðan. Klippa: Ræddu við Hjamma í beinni frá London
Enski boltinn Messan Tottenham Hotspur Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjá meira