Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Agnar Már Másson skrifar 1. mars 2026 15:15 Frá árás Ísraelsmanna í „hjarta“ Tehran í dag. AP Þrír bandarískir hermenn féllu og fimm hermenn særðust alvarlega í tengslum við átök Írans við Ísrael og Bandaríkjamenn, að sögn Bandaríkjahers. Auk þess létu hið minnsta níu Ísraelsmenn lífið í árás á í ísraelsku borginni Beit Shemesh í dag, að sögn viðbragðsaðila.
Aðgerðarstjórn Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum greinir frá andlátum bandarískra hermanna í færslu á X en tilgreinir ekki hvar eða hvernig andlátin áttu sér stað. Fleiri eru sagðir minna særðir. Írönsk stjórnvöld hafa í dag haldið áfram að varpa sprengjum að Ísrael og Persaflóaríkjum í Mið-Austurlöndum eftir að Ísraelsmenn og Bandaríkin réðust á skotmörk víða í Íran í gær og bönuðu þar Ayatollah Ali Khamenei æðstaklerk. Viðbragðsaðilar í Ísrael greina frá því í samtali við Al Jazeera að níu manns hafi látið lífið og tuttugu særst, þar af tveir alvarlega, í flugskeytaárás Írana í Beit Shemesh sem komst í gegnum svokallaða járnhvelfingu Ísraelshers, sem loftvarnarkerfi landsins er kallað. Leit stendur yfir að fleiri hugsanlegum fórnarlömbum í Beit Shemesh, að sögn Ísraelshers. Ísrael skaut eldflaugum inn í „hjarta“ írönsku höfuðborgarinnar fyrr í dag. Að sögn íranska Rauða hálfmánans eru 201 manns látnir og um 750 særðir eftir árásir Ísraelsmanna og Bandaríkjamanna á Íran. Fjöldi hefur einnig særst og látið lífið í hefndarárásum Írana, sem hafa teygt sig til hið minnsta sex landa á svæðinu auk Ísraels. Að sögn katarska miðilsins Al Jazeera eru tveir taldir látnir í Írak og fimm særðir. Einn er sagður látinn í Kúveit og 32 særðir, fjórir eru sagðir látnir í Barein, sextán særðir í Katar og fimm særðir í Óman. Þá eru þrír sagðir látnir í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og 58 særðir. Auk hinna níu sem létust í árásinni í Ísrael í dag lést ein kona í árás í gærnótt en auk þess eru um 121 særður í landinu.
Íran Ísrael Bandaríkin Kúveit Óman Barein Sameinuðu arabísku furstadæmin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira