Mannréttindasvikarar Ása Lind Finnbogadóttir skrifar 27. febrúar 2026 07:02 Stemming nútímans er afar sérstök að mínu mati. Ýmislegt hefur verið gert að skammaryrði eins og það að styðja mannréttindi ýmissa jaðarhópa. Við erum að tala um hópa eins og fátæka, fatlaða, þeldökka, hinsegin fólks og jafnvel kvenna. Sem auðvitað eru a.m.k. helmingur mannkyns. Þetta er í raun ákveðið einelti gagnvart lýðræðislegum gildum um mannréttindi. Algeng nöfn fyrir þessa mannréttindabaráttu eru „libbar“ og „vók“ og „góða fólkið“ Ný stjórn Sósíalistaflokks Íslands eru háværir í þessu einelti ásamt Miðflokknum. Sjálfstæðisflokkur reynir að teika umræðuna. Persónulega finnst mér þessi umræða hávær og virkilega sorgleg. Að heyra ofbeldisfulla lygi 100 sinnum gerir hana ekki sanna. Hún reynir að láta sjálfsagða mannréttindabaráttu þar sem barist er fyrir réttindum minnihlutahópa sem vind um eyru þjóta. Nýr Sósíalistaflokkur telur fátæka hinn eina „rétta“ minnihlutahóp til að berjast fyrir án þess að gera sér grein fyrir því að fatlaðir, brúnir og hinsegin fólk er einmitt oftar fátækir en aðrir hópar. Þau eru auðvitað að reyna að vera marxistar en átta sig ekki á að Karl Marx var forréttindapési, hvítur, miðaldra ófatlaður karlmaður. Fyndið. Auðvitað er ekki allt í mannréttindabaráttu fullkomið. Ýmsir fara yfir strikið eða a.m.k. þykja hafa gert það. Oftast eru það þolendur ofbeldis sem augljóslega eru reiðir yfir því að dómskerfið okkar tali ekki máli þolenda. En það er önnur umræða. Ég heyrði nemandi í dag segja „helvítis vókistar“ þegar ég var að tala um andstöðu sumra gagnvart kynfræðslu í skólum. Hann ruglaði háværu ranghugmyndunum um kynfræðslu og tengdi það aðal skammaryrði samtímans „vókisma“. Auðvitað eru það vókistar sem berjast fyrir heilbrigðri kynfræðslu í skólum þar sem nemendur eru æfðir í að setja mörk. Aðeins teprur og kynferðisbrotamenn geta verið á móti þessari fræðslu. Sérstaklega þegar litið er til þeirrar staðreyndar að strákar og stelpur frá 10 ára aldri sjá reglulega mjög óheilbrigt og skaðlegt klám. Ekki vera kind í hjörðinni. Hugsaðu sjálfstætt. Stattu með mannréttindum jaðarhópa þar sem að það er forsendan fyrir alvöru lýðræði. Höfundur er heimspekikennari í framhaldsskóla og meðlimur vinstrisins í sveitarstjórnarkosningum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun Skoðun Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Erum við í hættu? Ólgan kringum gervigreind Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Sjá meira
Stemming nútímans er afar sérstök að mínu mati. Ýmislegt hefur verið gert að skammaryrði eins og það að styðja mannréttindi ýmissa jaðarhópa. Við erum að tala um hópa eins og fátæka, fatlaða, þeldökka, hinsegin fólks og jafnvel kvenna. Sem auðvitað eru a.m.k. helmingur mannkyns. Þetta er í raun ákveðið einelti gagnvart lýðræðislegum gildum um mannréttindi. Algeng nöfn fyrir þessa mannréttindabaráttu eru „libbar“ og „vók“ og „góða fólkið“ Ný stjórn Sósíalistaflokks Íslands eru háværir í þessu einelti ásamt Miðflokknum. Sjálfstæðisflokkur reynir að teika umræðuna. Persónulega finnst mér þessi umræða hávær og virkilega sorgleg. Að heyra ofbeldisfulla lygi 100 sinnum gerir hana ekki sanna. Hún reynir að láta sjálfsagða mannréttindabaráttu þar sem barist er fyrir réttindum minnihlutahópa sem vind um eyru þjóta. Nýr Sósíalistaflokkur telur fátæka hinn eina „rétta“ minnihlutahóp til að berjast fyrir án þess að gera sér grein fyrir því að fatlaðir, brúnir og hinsegin fólk er einmitt oftar fátækir en aðrir hópar. Þau eru auðvitað að reyna að vera marxistar en átta sig ekki á að Karl Marx var forréttindapési, hvítur, miðaldra ófatlaður karlmaður. Fyndið. Auðvitað er ekki allt í mannréttindabaráttu fullkomið. Ýmsir fara yfir strikið eða a.m.k. þykja hafa gert það. Oftast eru það þolendur ofbeldis sem augljóslega eru reiðir yfir því að dómskerfið okkar tali ekki máli þolenda. En það er önnur umræða. Ég heyrði nemandi í dag segja „helvítis vókistar“ þegar ég var að tala um andstöðu sumra gagnvart kynfræðslu í skólum. Hann ruglaði háværu ranghugmyndunum um kynfræðslu og tengdi það aðal skammaryrði samtímans „vókisma“. Auðvitað eru það vókistar sem berjast fyrir heilbrigðri kynfræðslu í skólum þar sem nemendur eru æfðir í að setja mörk. Aðeins teprur og kynferðisbrotamenn geta verið á móti þessari fræðslu. Sérstaklega þegar litið er til þeirrar staðreyndar að strákar og stelpur frá 10 ára aldri sjá reglulega mjög óheilbrigt og skaðlegt klám. Ekki vera kind í hjörðinni. Hugsaðu sjálfstætt. Stattu með mannréttindum jaðarhópa þar sem að það er forsendan fyrir alvöru lýðræði. Höfundur er heimspekikennari í framhaldsskóla og meðlimur vinstrisins í sveitarstjórnarkosningum.
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar