Eva Rún og Jón Kalman tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Magnús Jochum Pálsson skrifar 26. febrúar 2026 11:28 Eva Rún og Jón Kalman hafa verið tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs í ár. Rithöfundarnir Eva Rún Snorradóttir og Jón Kalman Stefánsson eru í hópi þeirra þrettán höfunda sem hafa verið tilnefndir til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2026. Eva Rún er tilnefnd fyrir Eldri konur og Jón Kalman fyrir Himintungl yfir heimsins ystu brún en báðar eru þær gefnar út af Benedikti bókaútgáfu.
Verðlaunahafi bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2026 verður opinberaður 20. október. Verðlaunagripurinn verður veittur í tengslum við Norðurlandaráðsþing í Helsinki hinn 27. október. Verðlaunin nema 300 þúsundum danskra króna. Á meðal hinna tilnefndu eru skáldsögur, ljóðasöfn og smásagnasafn. Í tilkynningu á vef Norðurlandaráðs segir að það sem sameini verkin þrettán sé að þau horfi til fortíðar um leið og þau eru nátengd Norðurlöndum nútímans. Þau fjalli um foreldra og börn, kyn og kynvitund og einstaklinginn sem rekur stefnulaust í fljótandi heimi. „Það sem er óvenjulegt í ár er að bæði norska dómnefndin og dómnefndin fyrir samíska málsvæðið hafa hvert í sínu lagi tilnefnt sama verkið sem í senn er gefið út á norsku og á tornesamísku,“ segir á vef Norðurlandaráðs. Um er að ræða skáldsögu eftir Sigbjørn Skåden sem heitir Planterhaug á norsku og Láŋtdievvá á tornesamísku. Nánar má lesa um verkin þrettán á vef Norðurlandaráðs. Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs hafa verið veitt síðan 1962 fyrir fagurbókmenntaverk sem samið er á einu af norrænu tungumálunum. Það getur verið skáldsaga, leikverk, ljóðabók, smásagna- eða ritgerðasafn sem uppfyllir strangar kröfur um bókmenntalegt og listrænt gildi.
Bókmenntir Norðurlandaráð Danmörk Svíþjóð Finnland Noregur Álandseyjar Færeyjar Grænland Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Lífið HAM boða endalok alls Tónlist Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Fleiri fréttir Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira