Lego án leiðbeininga Elva Rakel Jónsdóttir skrifar 25. febrúar 2026 20:02 Leikum okkur aðeins með orðið sjálfbær; það að geta borið sjálfan sig uppi. Við höfum sennilega öll heyrt vitnað í Bjart nokkurn í Sumarhúsum sem birtist okkur í einum af skáldsögum Halldórs Laxness. Bjartur vill helst ekki þurfa að vera neinum háður, sem sumum hefur þótt eftirsóknarverður eiginleiki, þótt hann hafi reyndar lítið grætt á því nema óþarfa harðræði og einsemd. Spólum áfram til dagsins í dag þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttur skrifar nýlega grein um ”Efnahagslegar landvarnir”. Þar rekur hún hvernig heimsmálin séu nú það breytt að þjóðir heims þurfi ekki eingöngu að leggja lag sitt við aðra þegar kemur að varnar- og öryggismálum heldur einnig í gerð viðskiptasamninga, til að auka seiglu og girða fyrir varnarleysi og efnahagslega berskjöldun. Á sama tíma og Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, hvetur millistórar þjóðir til að styrkja böndin í því skyni að hafa stjórn á matseðlinum sem stórþjóðir bera á borð fyrir alþjóðasamfélagið, þá eykst þörf einstaklinga, fyrirtækja og þjóðríkja fyrir að búa yfir lágmarks viðbúnaði gegn áhættum. Fólk er hvatt til að koma sér upp viðlagakassa og íslenska ríkið brýtur heilan um hvernig það getur styrkt sæstrengi og stafrænt sjálfstæði grunninnviða. Fyrirtæki skynja vel þörf samtímans fyrir að greina áhættur framtíðarinnar og bregðast við þeim í tæka tíð. Samkvæmt Alþjóðaefnahagsráðinu eru áhættur rekstraraðila næstu ára margar og ólíkar svo sem upplýsingaóreiða, virðiskeðjurof, hækkandi verð aðfanga, truflun á rekstri vegna öfgaveðurfars eða skemmdir á innviðum. Svo eru aðrar sem snúa að því hvort gervigreindin verði búin að gjörbreyta ákveðnum störfum í náinni framtíð og hvort breytingar á sjávarstraumum gætu mögulega gert Ísland óbyggilegt. Nýjar áhættur mæta gömlum viðbrögðum Þegar áhættur virðast glænýjar af nálinni og áður óþekktar þá eru það mannleg varnarviðbrögð að gera lítið úr þeim og einbeita sér frekar að þeirri áhættu sem við kunnum að tala um, verkefni sem við eigum orð yfir og höfum áratuga reynslu af að karpa um. Hvernig eru verðbólguvæntingar? Af hverju er reglugerðarbyrði lítilla fyrirtækja svona mikil? Þarf Ísland að gleypa allt hrátt sem kemur í gegnum Evrópulöggjöfina? Af hverju er loðnukvótinn ekki hærri? Funduð þið þægindastrauminn hríslast niður bakið þegar þið lásuð þetta? Þetta eru margreynd og sönnuð ágreiningsefni, sem alls ekki er meiningin að gera lítið úr. Allir helstu hagsmunaaðilar landsins þekkja sína afstöðu í þessum málum sem og fleiri „klassíkerum“ sem klikka aldrei á að skapa efni í góðar rökræður í einhverjum af fréttaþáttum miðlanna eða hlaðvörpum alnetsins. Okkur skortir hins vegar áþreifanlega tungutak og hefðir fyrir því að tala um þær nýju áskoranir sem bætast við í breyttum heimi loftslagsbreytinga, gervigreindar, tegundadauða og uppgangs heimsvaldastefnu stórvelda. Þess vegna láta flestir það bara eiga sig. Halda áfram að fókusera á það sem þau þekkja og vita hvaða hljómgrunn fær. Gera jafnvel lítið úr áhættunum og draga forsendur í efa. Bjartur þekkir sín skilaboð og er ekkert að breyta út af sínum vana þó umheimurinn taki stakkaskiptum. Það er best að halda bara floti á sínu heiðarbúi og láta umheiminn eða stærri strauma sem vind um eyru þjóta. Að hanna burðarþol til framtíðar Aftur að hugtakinu sjálfbærni. Að standa undir sjálfum sér. Hvað telst nægilegur burður til að standa undir okkur sjálfum, undir samfélaginu? Erum við yfirhöfuð dómbær á það og kunnum við að mæla það? Búum við yfir þekkingu til að tala um það sem mestu máli skiptir fyrir framtíðarafkomu fyrirtækja og almennings? Kannski er best að byrja að spyrja, hvað þarf til að okkur líði vel og séum í stakk búin til að elta uppi velsæld og árangur? Hugtakið sjálfbærni reynir að ná utan um þetta. Skoðið bara hina litglöðu myndrænu framsetningu á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna; við þurfum heilsu, öryggi, frelsi, félagsskap, menntun, heilnæmt umhverfi, traustar náttúrulegar auðlindir o.s.frv. Sjálfbærnin spyr einfaldlega: Erum við að tryggja þessa hluti fyrir okkur sjálf og börnin okkar eða erum við að grafa undan okkur sjálfum? Er burðarþol þessa samfélags rétt reiknað eða gæti það riðað til falls vegna skorts á innviðum, samvinnu og framsýni? Ég fylgdist í morgun með syni mínum byggja úr Lego við stofuborðið. Það þykir flestum krökkum gaman að sjá eitthvað verða til úr engu og ef leiðbeiningum er fylgt geta stakir litlir kubbar breyst í ógnarstórar furðuverur, kastala og farartæki. En við sem erum ekki með neinar leiðbeiningar, en erum samt að reyna að byggja betri heim, hvað gerum við? Jú, við lokum ekki augunum fyrir nýjum tegundum af áhættum, við styrkjum samstarf þar sem þarf og tryggjum sjálfstæði þar sem við getum. Við æfum okkur í nýju tungutaki þar sem áskoranir eru aðrar en þær sem við þekkjum. Við missum ekki sjónar á að við getum byggt eitthvað stórkostlegt þar sem ný tækifæri opnast, því kostnaðurinn felst í aðgerðarleysi og frestun á viðbúnaði. Við byggjum styrkar stoðir undir okkur sjálf sem þola ágang nútímans og óþekktan veruleika framtíðarinnar. Höfundur er framkvæmdastýra Festu - miðstöðvar um sjálfbærni Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Elva Rakel Jónsdóttir Sjálfbærni Mest lesið Lítil skítseiði Hrafn Jónsson Skoðun Heilbrigðara Ísland Victor Guðmundsson Skoðun Reykjavík töluð niður svo hægt sé að selja eignir hennar Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Hvað hefur gerst í leikskólamálum á kjörtímabilinu? Finnbjörn Hermannsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Sjálfstæðisflokkur ver ofurþéttingu við Birkimel Karólína Jónsdóttir Skoðun Einkabíllinn er mest niðurgreiddi ferðamátinn Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Er engin fréttamennska í þessu landi lengur? Ragnheiður Stephensen Skoðun Það er ekki spurning hvort – heldur hvenær Arnar Helgi Lárusson Skoðun Sköpum samfélag í Garðabæ þar sem við erum öll velkomin Harpa Grétarsdóttir Skoðun Mjóeyrarhöfn og ný tækifæri fyrir Fjarðabyggð Elís Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Óútskýrð veikindi skipstjóra um nótt Kristinn Hrafnsson skrifar Skoðun Keldnaland steinsteypt excelskjal Katrín Haukdal Magnúsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík getur verið þorpið sem við þurfum öll á að halda Viðar Gunnarsson skrifar Skoðun Hleypum fötluðum börnum inn á völlinn! Stefán Pálsson skrifar Skoðun Excel sér ekki barnið sem bíður Anna Kristín Jensdóttir skrifar Skoðun Sterkur rekstur og skýr sýn Helgi Kjartansson,Stefanía Hákonardóttir skrifar Skoðun Árangur í rekstri á að skila sér til heimila Elísabet Ingunn Einarsdóttir skrifar Skoðun Húsnæði er mannréttindi – Húsnæði fyrst. Enginn á heima á götunni Harpa HIldiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð: Hvað er opinn leikskóli? Sigurrós Elddís Huldudóttir skrifar Skoðun „Líttu upp Jóhann Páll“ Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík töluð niður svo hægt sé að selja eignir hennar Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ungmennafélagsandinn í útrýmingarhættu Hjalti Árnason skrifar Skoðun Um rekstur Reykjavíkurborgar 2025 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Er engin fréttamennska í þessu landi lengur? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Hugleiðing um barnamenningu í Mosfellsbæ í aðdraganda kosninga Guðrún Rútsdóttir skrifar Skoðun Hvað hefur gerst í leikskólamálum á kjörtímabilinu? Finnbjörn Hermannsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Félagsmiðstöðvar skipta máli Arndís Bára Pétursdóttir skrifar Skoðun Sköpum samfélag í Garðabæ þar sem við erum öll velkomin Harpa Grétarsdóttir skrifar Skoðun Lítil skítseiði Hrafn Jónsson skrifar Skoðun Um hvað snýst þetta allt saman? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Styðjum betur við börn í Kópavogi Ester Halldórsdóttir skrifar Skoðun Af hverju Viðreisn 16. maí? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkur ver ofurþéttingu við Birkimel Karólína Jónsdóttir skrifar Skoðun Frelsi foreldra og farsæl byrjun – heimgreiðslur til 24 mánaða Birgitta Ragnarsdóttir,María Araceli,Berglind Ósk Guttormsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík er ekki spilaborg Einar Mikael Sverrisson skrifar Skoðun Við stýrum hraða í landi Blikastaða Hilmar Gunnarsson skrifar Skoðun Einkabíllinn er mest niðurgreiddi ferðamátinn Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Það er ekki spurning hvort – heldur hvenær Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Hér er pláss fyrir þig Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Mjóeyrarhöfn og ný tækifæri fyrir Fjarðabyggð Elís Ármannsson skrifar Sjá meira
Hvað hefur gerst í leikskólamálum á kjörtímabilinu? Finnbjörn Hermannsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun
Skoðun Húsnæði er mannréttindi – Húsnæði fyrst. Enginn á heima á götunni Harpa HIldiberg Böðvarsdóttir skrifar
Skoðun Reykjavík töluð niður svo hægt sé að selja eignir hennar Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hvað hefur gerst í leikskólamálum á kjörtímabilinu? Finnbjörn Hermannsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar
Skoðun Frelsi foreldra og farsæl byrjun – heimgreiðslur til 24 mánaða Birgitta Ragnarsdóttir,María Araceli,Berglind Ósk Guttormsdóttir skrifar
Hvað hefur gerst í leikskólamálum á kjörtímabilinu? Finnbjörn Hermannsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun