Mayweather og Pacquiao mætast í haust Valur Páll Eiríksson skrifar 24. febrúar 2026 11:32 Mayweather vann Pacquiao í frægum bardaga árið 2015. Þeir endurnýja kynnin í hringnum í haust. Al Bello/Getty Images Floyd Mayweather og Manny Pacquiao munu mætast í annað sinn í hnefaleikahringnum í Las Vegas í haust. Til stendur að bardaginn verði þann 19. september.
Mayweather hafði betur gegn Pacquiao í eina bardaga þeirra sem fram fór í maí 2015. Mikil eftirvænting var fyrir þeirri viðureign sem stóð ekki alveg undir nafni. Þó voru ýmis met slegin, sem höfðu öll með tekjur að gera. 4,6 milljónir manna greiddu fyrir að streyma viðburðinum sem halaði inn yfir 400 milljón dali í tekjur og yfir 70 milljónir í miðasölu. Mayweather hætti hnefaleikaiðkun fertugur að aldri eftir sigur á Conor McGregor árið 2017 en er nú kominn aftur á fullt, tæplega fimmtugur. Hann hefur tekið þátt í sýningarviðureignum við Logan Paul og John Gotti III og þá stendur til að hann mæti Mike Tyson í hringnum síðar á þessu ári. Nú ætli hann að taka hanskana af hillunni, endurhefja atvinnumannaferilinn og mæta Pacquiao í alvöru bardaga í haust. „Ég hef þegar barist við Manny einu sinni og unnið hann. Í þetta skipti verður niðurstaðan sú sama,“ segir í yfirlýsingu Mayweather um komandi bardaga. Á atvinnumannaferli sínum vann Mayweather alla 50 bardaga sem hann tók þátt í. Pacquiao hyggst enda þá sigurhrinu. „Við Floyd gáfum hnefaleikaheiminum stærsta bardaga sögunnar. Aðdáendur hafa beðið nógu lengi og eiga endurtekningu skilið. Ég vil að Floyd lifi með einu tapi á ferli atvinnumannaferli sínum og munu ávallt muna hver lagði hann að velli,“ segir Pacquiao. Viðburðinum verður streymt á Netflix og mun verða fyrsti hnefaleikabardaginn sem fram fer í Sphere-viðburðahöllinni í Las Vegas.
Box Mest lesið Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Löggan þorði ekki að þiggja miða Fótbolti Andrea opnar sig eftir sjálfsniðurrrif: „Andskotinn hafi það“ Sport „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Náði loksins titlinum sem hana dreymdi um Golf Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Fleiri fréttir Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Hetjunni haldið í yfirheyrslu í sjö tíma við komuna á HM Andrea opnar sig eftir sjálfsniðurrrif: „Andskotinn hafi það“ Dagbjartur og Gunnlaugur spila um sæti á risamóti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Nítján ára með athygli heimspressunnar: „Ekki lengur bara undrabarn“ Löggan þorði ekki að þiggja miða Náði loksins titlinum sem hana dreymdi um HM-minning: Fékk ekki þrennuna sína fyrr en þrjátíu árum eftir dauða sinn Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Sigraði sitt fjórða PGA-mót þrátt fyrir óveður Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Dagskráin í dag: Síðasti leikur Frakka fyrir HM Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Ótrúlegur lokasprettur og Aron vann þriðja mótið í röð „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Valskonur styrkja sig Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Hágrét þegar fyrsti risatitillinn var í höfn Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Andrea og Ragnhildur enduðu jafnar Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira