Vopnin ekki til að drepa, heldur verja Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 23. febrúar 2026 20:02 Svitlana Pukhova og Oksana Shabatura hafa búið mislengi á Íslandi en eru báðar altalandi á íslensku og vinna báðar við að kenna löndum sínum íslensku. Vísir/Sigurjón Það er þungbært og erfitt að horfa upp á að enn geisi stríð í heimalandinu að sögn úkraínskra kvenna sem búa á Íslandi. Þær eru þakklátar fyrir stuðning Íslendinga, í hvaða mynd sem hann er, en á morgun eru fjögur ár síðan allsherjarinnráð Rússa í Úkraínu hófst.
Oksana Shabatura hefur búið og starfað á Íslandi í rúm tuttugu ár, en Svitlana Pukhova kom hingað sem flóttamaður nokkrum mánuðum eftir að stríðið hófst árið 2022 og var fljótlega byrjuð að vinna og læra íslensku. Á morgun verða fjögur ár liðin síðan allsherjarinnrás Rússa hófst en þær segja erfitt að hugsa til þess að enn sjái ekki sér fyrir endann á stríðinu. Trúðu og vonuðu að Rússar færu heim, en svo varð ekki „Við héldum að þetta myndi vera stutt og að Úkraína myndi vinna stríðið og Rússar myndu fara heim til sín en núna eru fjögur ár búin að líða og þetta gerist ekki. Og það er ekki bjartsýni, því miður, og okkur þykir þetta bara mjög erfitt,“ segir Oksana og Svitlana tekur undir. „Það eru nokkrir í fjölskyldunni minni í stríðinu, þetta er mjög erfitt. Mjög þungt,“ segir Svitlana. Þær starfa báðar meðal annars við íslenskukennslu þar sem aðrir landar þeirra á Íslandi eru meðal nemenda. Svitlana bjó fyrst á Bifröst um tíma eftir að hún kom til Íslands en býr nú í Borgarnesi og keyrir nokkrum sinnum í viku til Reykjavíkur til að kenna íslensku. Oksana kom hingað fyrst til að fara í háskólann þar sem hún lærði ensku- og íslenskukennslu og hefur síðan gegnt fjölbreyttum störfum, nú sem svokallaður brúarsmiður hjá Miðju máls og læsis á skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar. Fengu skjól og tækifæri á Íslandi Þær segjast báðar hafa fengið góðar móttökur á Íslandi, en það sé ekki sjálfgefið að allir skilji eða átti sig á þeim veruleika sem Úkraínumenn búi við í stríðinu. „Íslendingar standa mjög saman og aðstoða alltaf og hugsa um okkur og líka þegar stundum er erfitt að skilja. Stundum er það ekki hægt,“ segir Svitlana, og röddin brestur. Þakklæti er Oksönu einnig ofarlega í huga en hún segist dást að Íslendingum og því hvernig svo lítil þjóð geti tekið höndum saman til að hjálpa stórri þjóð á borð við Úkraínu. Þær Svitlana og Oksana kynntust á Íslandi og hafa fundið stuðning hvor hjá annarri.Vísir/Sigurjón „Fólk sem kom hér þau fengu skjól, þau fengu vinnu, börnin fá tækifæri til að fara í skóla, læra í skólanum. Margir kennarar sem komu fengu staðfestingu til að vinna sem kennarar og leikskólakennarar og fengu vinnu við hæfi. Og fólk sem er duglegt og reynir að gera vel, þau fá tækifæri til að gera vel. Og ég vil bara þakka fyrir,“ segir Oksana. Vopnastuðningur til að verja, ekki drepa Stuðningur Íslands við Úkraínu hefur meðal annars verið í formi mannúðaraðstoðar og á sviði innviða, en stuðningur til vopnakaupa hefur reynst hvað umdeildastur. „Ef þetta myndi vera hjálp til að kaupa vopn og ráðast á önnur lönd, þá væri ég ósammála heldur. En þetta er peningur til að kaupa vopn til að verja landið sitt, húsin sín, börnin sín. Þetta finnst mér bara fallega gert og við viljum bara þakka fyrir það,“ segir Oksana. Þær eiga báðar fjölskyldu og vini sem enn eru í Úkraínu og finnst þyngra en tárum taki að þau búi enn við stríð. Oksana hefur reglulega heimsótt fólkið sitt heima í Úkraínu eftir að hún flutti til Íslands, en það er ekki eins hægt um vik nú eftir að stríðið braust út. Hún segist oft fá spurningar um það hvers vegna margir Úkraínumenn sem hingað koma séu ekki með stöðuga búsetu hér, heldur oft að koma og fara. Fyrir því eru eðlilegar ástæður að sögn Oksönu. „Partur af fjölskyldunni er ennþá úti í Úkraínu. Gamlir foreldrar, menn sem eru úti í stríði, og konur komu fyrst hingað með börnin sín og hugsuðu að þetta myndi vera tímabundið. En þetta tímabundna er ekki búið og þau þurfa líka að hugsa um gamla foreldra, endurnýja vegabréf og pappíra, og fólk bara fer. Þannig er staðan núna.“
Úkraína Innflytjendamál Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Sjá meira