Spegillinn sem ég límdi sjálfur Sigurður Árni Reynisson skrifar 20. febrúar 2026 17:02 Það er mín reynsla að spurningar um lífið koma ekki alltaf af sjálfu sér. Margir ganga í gegnum lífið án þess að spyrja sig í alvöru hverjir þeir séu, hvernig þeir lifi eða hvort þeir vilji breyta einhverju. Við lifum í heimi sem verðlaunar hraða, afköst og ytra útlit. Það er auðvelt að týnast í hávaða hversdagsins, í verkefnum sem bíða og væntingum sem við teljum okkur þurfa að uppfylla. Sumir velja jafnvel meðvitað að opna ekki þær dyr sem snúa inn á við, því þeir vita, kannski án þess að setja það í orð, að þegar þær opnast er ekki hægt að loka þeim aftur. Það er ákveðið öryggi í því að spyrja ekki of mikið, ákveðin deyfing í því að láta strauminn bera sig. Maður getur lifað þannig og jafnvel dáið þannig, án þess að horfast nokkurn tíma í augu við sjálfan sig í einlægni og kyrrð. Ég tók einhvern tímann ákvörðun um að gera það ekki. Ég ætlaði ekki að ganga í gegnum lífið sem farþegi í eigin tilveru. Ég vildi skilja hvers vegna ég bar með mér ákveðnar tilfinningar sem virtust ekki eiga heima í núinu, hvers vegna ákveðin viðbrögð voru sjálfvirk og hvers vegna sum sár neituðu að gróa. En ég gerði mér ekki grein fyrir því hvað myndi fylgja í kjölfarið. Þegar samviskan vaknar og meðvitundin opnast, þá opnast ekki bara skilningur, þar opnast líka vinna, vinna sem er oft þung og einmana. Því þegar maður byrjar að sjá, þá sér maður ekki bara það sem er fallegt. Maður sér líka brotin, mynstrin sem maður hefur endurtekið eins og bilaða plötu, orð sem særðu og sár sem maður hefur borið lengi án þess að nefna þau. Þegar við vöknum til meðvitundar hætta spurningarnar að vera heimspekilegar pælingar yfir kaffibolla, þær verða að innri rödd sem fylgir manni hvert sem maður fer. Þær spyrja mann í miðri vinnu, í miðjum samræðum og í þögninni fyrir svefninn: „Er þetta þú? Er þetta það sem þú vilt?“ Þegar maður vex upp í brotnu eða ótryggu umhverfi lærir maður fyrst og fremst að lifa af, ekki endilega að lifa heill. Að lifa af krefst þess að maður sé alltaf með loftnetin úti, að skanna umhverfið fyrir hættum eða skapi annarra. Smám saman myndast varnarlög utan um mann, eins og brynja sem er smíðuð í flýti til að verjast áfallahöggum sem maður skilur ekki til fulls á þeim tíma. Þessi brynja bjargar manni þegar maður er barn eða unglingur, hún verndar mjúka kjarnann fyrir kulda og höfnun. Vandinn er hins vegar sá að enginn kennir manni hvernig eigi að taka hana af þegar hættan er liðin hjá. Maður heldur áfram að bera þetta þunga járn inn í fullorðinsárin, ástarsambönd og foreldrahlutverkið. Við erum fullorðin að utan, með ábyrgð og skyldur, en brynjan er enn þarna, að verja sama viðkvæma og ef til vill óörugga kjarnann sem varð til fyrir löngu síðan. Þegar við neitum að horfast í augu við okkur sjálf, erum við í raun að leyfa brynju fortíðarinnar að stjórna nútíðinni. Ég hugsa stundum um sjálfan mig sem spegil sem brotnaði snemma. Þetta var ekki eitt stórt áfall, heldur röð af litlum áföllum og árekstrum. Þegar spegill brotnar eru eðlislæg viðbrögð okkar að reyna að setja hann saman aftur. Við viljum sjá heillega mynd. En í mörg ár gerði ég það ekki sjálfur, ég leyfði öðrum að halda á límtúbunni. Þetta er lúmsk gildra. Við leyfum væntingum annarra að ákveða hvaða brot af okkur séu „viðeigandi“ og hvaða brotum eigi að fleygja. Sumum brotum var ýtt til hliðar vegna þess að þau pössuðu ekki í myndina sem fjölskyldan eða samfélagið vildi sjá. Önnur voru sett á rangan stað, hreinlega til að yfirborðið liti betur út fyrir utanaðkomandi. Fólk hjálpar oft í góðri trú, foreldrar okkar og vinir vilja að okkur vegni vel, en þeirra skilgreining á velgengni er oft mótuð af þeirra eigin brotum og brynju. Þeir segja manni hvernig best sé að vera, hvað sé styrkur og hvað sé veikleiki. Og maður samþykkir það, stundum af hreinni þreytu en oftast af meðvirkni. Það er nístandi einmanaleiki í því að líta vel út í augum annarra. Það er einmanaleiki sem engin samfélagsleg viðurkenning getur fyllt. Það er eins og að búa í fallegu húsi þar sem undirstöðurnar eru að fúna, enginn sér það nema sá sem býr þar. Og stundum þarf mikinn sársauka til að átta sig á því að svona er ekki hægt að halda áfram. Ég er ekki að meina fallegan sársauka, eða sársauka sem hægt er að yrkja um eða setja í myndrænan búning. Ég er að tala um hráa líðan, ógeðstilfinningu á því að reyna að vera útgáfa af sjálfum sér sem maður kannast ekki við. Þetta er sársaukinn við að gera sér grein fyrir því að maður hefur verið að lifa eftir handriti sem einhver annar skrifaði. Það kemur augnablik þar sem maður skilur að ef ekkert breytist, þá mun þessi tómleikatilfinning fylgja manni í gröfina. Vendipunkturinn í mínu lífi kom ekki sem skyndileg uppljómun í sólarupprás. Hann kom vegna þess að ég gat hreinlega ekki gengið skrefinu lengra undir þyngd eigin blekkingar. Í þeim sársauka sá ég loksins það sem hafði verið falið, límtúban var ekki í mínum höndum. Ég hafði verið áhorfandi að minni eigin viðgerð. Þá fyrst fór ég að skilja að frelsi snýst ekki um að vera óbrotinn eða fullkominn. Frelsi snýst um að taka ábyrgð á brotunum sjálfur, sama hversu ljót þau kunna að virðast. Það var óttaslegið augnablik þegar ég tók límtúbuna úr höndum skaparanna. Með því fylgdi nefnilega sú ábyrgð að ég gat ekki lengur kennt öðrum um hvernig líf mitt var eða hvernig mér leið. Ef myndin var skökk, var það ég sem hafði sett brotið þannig saman. Ég þurfti að horfa á öll brotin, líka þau sem báru með sér skömm, reiði eða ótta. Sum þeirra særðu enn þegar ég snerti þau, önnur virtust ekkert eiga heima í nýju myndinni, en þegar ég rýndi betur sá ég að þau voru hluti af grunni mínum, það er ekki hægt að sleppa því erfiða og hafa bara fallegu brotin. Smám saman fór eitthvað að breytast. Ekki þannig að sprungurnar hyrfu, þær eru hluti af sögunni, heldur þannig að spegillinn fór loksins að endurspegla þann sem ég er í raun. Ég fór að sjá manninn sem þorir að segja nei, manninn sem þorir að viðurkenna sársauka, og manninn sem þarf ekki lengur að vera sterkur fyrir alla aðra á kostnað sjálfs sín. Þar fann ég frelsi sem ég hafði aldrei þekkt. Það er frelsið til að vera ófullkomin, en sannur. Margir spyrja: „Hefurðu í raun breyst?“ Svarið er flókið. Ef með breytingu er átt við að ég sé orðinn að nýrri manneskju án fortíðar, þá er svarið nei. En ef breyting þýðir að ég hafi breytt afstöðu minni til sjálfs míns, þá er svarið afgerandi já. Í dag sé ég enn spegil sem hefur verið límdur saman. Sprungurnar eru þarna enn, líkt og æðar í steini, og þær munu alltaf sjást. En þær hræða mig ekki lengur. Þær eru vitnisburður um það sem ég hef lifað og það sem ég hef lært. Raunveruleg breyting er kannski ekki að verða ný manneskja, heldur að verða sá sem þorir loksins að eiga sjálfan sig. Það er ferli sem lýkur aldrei. Á hverjum degi þarf maður að velja að halda á límtúbunni, að leyfa ekki gömlum venjum eða væntingum annarra að stela henni aftur. Því ef maður tekur ekki sjálfur þátt í að móta sitt eigið líf, þá gera aðrir það óhjákvæmilega fyrir mann. Þeir munu gera það af kærleika, af stjórnsemi eða af vanþekkingu, en niðurstaðan verður alltaf sú sama: þú endar á að lifa í mynd sem var aldrei þín. Það er fegurð í því að þora að vera brotinn. Það losar mann undan þeirri óbærilegu kvöð að þurfa að vera fullkominn. Þegar við hættum að fela sprungurnar, gefum við öðrum leyfi til að gera það sama. Við hættum að vera glansmyndir og verðum að manneskjum. Í dag veit ég að lífið snýst ekki um að forðast sár eða að fela brotin. Það snýst um að vera sá sem raðar þeim saman. Ég er hættur að flýja sjálfan mig. Ég horfi í spegilinn og þótt myndin sé ekki alltaf slétt, þá er hún mín. Og kannski felst æðsta frelsið einmitt í þessu: ekki í því að vera óbrotinn, heldur í þeirri rósemd sem fylgir því að vita að það er ég og enginn annar sem heldur á límtúbunni. Höfundur er mannvinur og kennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurður Árni Reynisson Mest lesið Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Skoðun Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Sjá meira
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun