Regína lætur staðar numið í Mosó Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 20. febrúar 2026 12:29 Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri í Mosfellsbæ. Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri í Mosfellsbæ hefur ákveðið að hætta störfum að loknum sveitarstjórnarkosningum í vor hver sem útkomin verði. Ákvörðunin sé ekki léttvæg en hún vilji að framboð viti að hverju þau gangi nú þegar kosningabaráttan fer í hönd. Regína segir í færslu á Facebook hafa tilkynnt núverandi oddvitum bæjarstjórnarflokkanna í Mosfellsbæ að hún sækist ekki eftir endurráðningu að loknum kosningum, byðist slíkt samstarf. „Þetta er ekki léttvæg ákvörðun þar sem ég hef átt í ótrúlega góðum samskiptum við oddvitana sem og aðra kjörna fulltrúa á kjörtímabilinu, ekki síst í stórum og krefjandi málum en þar hefur bæjarstjórnin öll náð góðri samstöðu.“ Hún hafi velt því á undan sér að gefa afstöðu sína upp. „En mér finnst það hreinlegast að gera það á þessum tímapunkti þannig að framboðin viti að hverju þau ganga þegar þau stilla upp á lista og hefja undirbúning að kosningum.“ Færsluna í heild má sjá að neðan.
Regína segir í færslu á Facebook hafa tilkynnt núverandi oddvitum bæjarstjórnarflokkanna í Mosfellsbæ að hún sækist ekki eftir endurráðningu að loknum kosningum, byðist slíkt samstarf. „Þetta er ekki léttvæg ákvörðun þar sem ég hef átt í ótrúlega góðum samskiptum við oddvitana sem og aðra kjörna fulltrúa á kjörtímabilinu, ekki síst í stórum og krefjandi málum en þar hefur bæjarstjórnin öll náð góðri samstöðu.“ Hún hafi velt því á undan sér að gefa afstöðu sína upp. „En mér finnst það hreinlegast að gera það á þessum tímapunkti þannig að framboðin viti að hverju þau ganga þegar þau stilla upp á lista og hefja undirbúning að kosningum.“ Færsluna í heild má sjá að neðan. Kæru vinir, Í dag tilkynnti ég núverandi oddvitum bæjarstjórnarflokkanna hér í Mosfellsbæ að ég sækist ekki eftir endurráðningu í starf bæjarstjóra eftir kosningarnar í vor, bjóðist mér slíkt samstarf. Þetta er ekki léttvæg ákvörðun þar sem ég hef átt í ótrúlega góðum samskiptum við oddvitana sem og aðra kjörna fulltrúa á kjörtímabilinu, ekki síst í stórum og krefjandi málum en þar hefur bæjarstjórnin öll náð góðri samstöðu. Ég hef velt því aðeins á undan mér að gefa þessa afstöðu upp en mér finnst það hreinlegast að gera það á þessum tímapunkti þannig að framboðin viti að hverju þau ganga þegar þau stilla upp á lista og hefja undirbúning að kosningum. Ég lít gríðarlega stolt tilbaka og er endalaust þakklát fyrir þetta tækifæri, að starfa fyrir Mosfellinga í þessum fallega bæ með einstaklega góðu og hlýju mannlífi. Ég er þó ánægðust með samstarfsfólkið mitt - stjórnendur og starfsmenn Mosfellsbæjar sem leggja sig öll fram um að veita fyrirtaks þjónustu. Frábær hópur! Starf bæjarstjóra er ákveðinn lífsstíll. Þú ert á vaktinni 24/7 og alltaf með augun á boltanum. Ég held að flestir kollega minna viti hvað ég er að tala um. Enda eru launin fín, eins og alþjóð veit. Ég er búin að vera stjórnandi í yfir 30 ár, yfirleitt með mjög mikil mannaforráð. Það er kannski kominn tími á að prófa eitthvað nýtt. Þegar ég tók starfið í byrjun kjörtímabilsins þá var það alltaf til fjögurra ára í mínum huga. Svo koma tilfinningarnar til sögunnar. Vinnufélagarnir svo flottir og verkefnin frábær og maður sjálfur svo ómissandi (að eigin mati) að það verður æ erfiðara að standa við slíka ákvörðun. Kannski bara best að láta slag standa og sjá til hvernig kosningarnar fara? Svona hugsanir dúkka auðvita stöðugt upp. En ákvörðunin er samt þessi. Mosfellsbær hefur öll tækifæri til þess að halda áfram að vaxa og dafna. Það er mikill metnaður í öllum málaflokkum og allt á fleygiferð. Ég hlakka til að sjá nýtt Blikastaðahverfi verða að veruleika, fylgjast með uppbyggingu á nýrri þjónustu- og aðkomubyggingu og félagsaðstöðu að Varmá og sjá nýjan fótboltavöll og frjálsíþróttabraut tekna í gagnið í sumar. Þá er ég endalaust spennt fyrir samstarfsverkefninu okkar í Álafosskvos og það verða ekki bara Mosfellingar, heldur íbúar alls höfuðborgarsvæðisins sem munu njóta kvosarinnar á ný. Þá eru verkefni eins og Börnin okkar og samþætting heimaþjónustu og heimahjúkrunar og mörg, mörg fleiri sem við erum gríðarlega stolt af. Ég gæti skrifað langan pistil um þau en ég er ekki alveg hætt og það bíður því betri tíma. Framtíðin er björt og ég hlakka til nýrra ævintýra!
Kæru vinir, Í dag tilkynnti ég núverandi oddvitum bæjarstjórnarflokkanna hér í Mosfellsbæ að ég sækist ekki eftir endurráðningu í starf bæjarstjóra eftir kosningarnar í vor, bjóðist mér slíkt samstarf. Þetta er ekki léttvæg ákvörðun þar sem ég hef átt í ótrúlega góðum samskiptum við oddvitana sem og aðra kjörna fulltrúa á kjörtímabilinu, ekki síst í stórum og krefjandi málum en þar hefur bæjarstjórnin öll náð góðri samstöðu. Ég hef velt því aðeins á undan mér að gefa þessa afstöðu upp en mér finnst það hreinlegast að gera það á þessum tímapunkti þannig að framboðin viti að hverju þau ganga þegar þau stilla upp á lista og hefja undirbúning að kosningum. Ég lít gríðarlega stolt tilbaka og er endalaust þakklát fyrir þetta tækifæri, að starfa fyrir Mosfellinga í þessum fallega bæ með einstaklega góðu og hlýju mannlífi. Ég er þó ánægðust með samstarfsfólkið mitt - stjórnendur og starfsmenn Mosfellsbæjar sem leggja sig öll fram um að veita fyrirtaks þjónustu. Frábær hópur! Starf bæjarstjóra er ákveðinn lífsstíll. Þú ert á vaktinni 24/7 og alltaf með augun á boltanum. Ég held að flestir kollega minna viti hvað ég er að tala um. Enda eru launin fín, eins og alþjóð veit. Ég er búin að vera stjórnandi í yfir 30 ár, yfirleitt með mjög mikil mannaforráð. Það er kannski kominn tími á að prófa eitthvað nýtt. Þegar ég tók starfið í byrjun kjörtímabilsins þá var það alltaf til fjögurra ára í mínum huga. Svo koma tilfinningarnar til sögunnar. Vinnufélagarnir svo flottir og verkefnin frábær og maður sjálfur svo ómissandi (að eigin mati) að það verður æ erfiðara að standa við slíka ákvörðun. Kannski bara best að láta slag standa og sjá til hvernig kosningarnar fara? Svona hugsanir dúkka auðvita stöðugt upp. En ákvörðunin er samt þessi. Mosfellsbær hefur öll tækifæri til þess að halda áfram að vaxa og dafna. Það er mikill metnaður í öllum málaflokkum og allt á fleygiferð. Ég hlakka til að sjá nýtt Blikastaðahverfi verða að veruleika, fylgjast með uppbyggingu á nýrri þjónustu- og aðkomubyggingu og félagsaðstöðu að Varmá og sjá nýjan fótboltavöll og frjálsíþróttabraut tekna í gagnið í sumar. Þá er ég endalaust spennt fyrir samstarfsverkefninu okkar í Álafosskvos og það verða ekki bara Mosfellingar, heldur íbúar alls höfuðborgarsvæðisins sem munu njóta kvosarinnar á ný. Þá eru verkefni eins og Börnin okkar og samþætting heimaþjónustu og heimahjúkrunar og mörg, mörg fleiri sem við erum gríðarlega stolt af. Ég gæti skrifað langan pistil um þau en ég er ekki alveg hætt og það bíður því betri tíma. Framtíðin er björt og ég hlakka til nýrra ævintýra!
Mosfellsbær Sveitarstjórnarkosningar 2026 Vistaskipti Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Bein útsending: Samtal um framtíðina Innlent Fleiri fréttir Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Sjá meira