Stöndum með Grænlendingum Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar 20. febrúar 2026 07:30 Undanfarna mánuði hefur staða Grænlands verið með ólíkindum. Bandaríkin, eitt mesta stórveldi heims, hafa með óbilgirni krafist yfirráða og eignarhalds á landi þar sem býr sjálfstæð þjóð, með eigin sögu og eigin framtíð. Slík krafa á sér vart fordæmi í orðræðu vestrænna stjórnmála í næstum hundrað ár. Hún gengur gegn alþjóðalögum; sjálfum stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna og þeim hornsteini og grundvallarhugmynd alþjóðaréttar að þjóðir ráði sér sjálfar. Hún er fordæmalaus í frekju sinni og ókurteisi og sýnir algert virðingarleysið fyrir vinaþjóð okkar. Sumir spyrja: Breytir það einhverju að sýna stuðning? Skiptir máli að flagga? Svarið er já, og ekki vegna þess að fáni einn og sér stöðvi stórveldi heldur vegna þess að þögnin gerir ekkert. Saga mannkyns kennir okkur að verstu hörmungar hennar urðu ekki aðeins vegna þess að vont fólk framkvæmdi voðaverk. Þær urðu líka vegna þess að of margt gott fólk kaus að líta undan. Baráttan fyrir mannréttindum og mannlegri reisn er ekki landfræðileg. Hún er samtvinnuð örlögum okkar allra. Virðingarleysi fyrir lífi fólks og sjálfsákvörðunarrétti bitnar á öllum. Það er víða pottur brotinn í þeim efnum. Á mörgum stöðum sitja í valdastöðum einstaklingar sem virða hvorki lýðræði né sjálfstæði þjóða. Þeir líta á landakort eins og taflborð og fólk sem peð í valdabrölti sínu. . Í slíkum heimi er það hlutverk kjörinna fulltrúa og allra sem láta sig réttlæti varða, að standa vörð um gildin sem gerðu okkur að þjóð. Að segja skýrt hvar við stöndum þegar grundvallarreglur eru brotnar. Þegar fáni Grænlands verður dreginn að húni við Ráðhús Reykjavíkur í dag er það ekki dyggðaskreyting. Það er yfirlýsing um samstöðu með sjálfsákvörðunarrétti þjóða. Með þeirri einföldu en dýrmætu hugsjón að hver þjóð eigi rétt á að ráða eigin landi, eigin auðlindum og eigin framtíð. Yfirlýsing um stuðning við grundvallarmannréttindi. Við Íslendingar vitum hvað það þýðir að berjast fyrir fullveldi okkar. Við vitum hvað það þýðir að fá að flagga eigin fána, ekki sem skrauti heldur sem staðfestingu á sjálfstæði. Þess vegna er það ekki aðeins kurteisi að sýna nágrannaþjóð okkar stuðning. Það er siðferðileg skylda. Að flagga fána Grænlendinga í Reykjavík er líklega það minnsta sem við getum gert. En stundum byrjar stærsta varðstaðan á minnsta verkinu. Blaktandi fáni við Ráðhús Reykjavíkur getur sagt meira en þúsund orð. Hann segir: Við stöndum með ykkur. Við sjáum ykkur. Og við gleymum ekki að frelsi er ekki sjálfgefið heldur gildi sem þarf að verja, aftur og aftur. Sýnum hug okkar í verki og mætum við Ráðhús Reykjavíkur klukkan 12 í dag. Ég vona að við getum sem flest mætt. Höfundur er borgarstjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heiða Björg Hilmisdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Mest lesið Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson Skoðun Skoðun Skoðun Samkeppnishæfni Íslands Ingvar Þóroddsson skrifar Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst? Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Traust er ekki sjálfgefið Hilmar Freyr Gunnarsson skrifar Skoðun Evrópusambandið, skjól frá Bandaríkjunum? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Sjá meira
Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar