„Ég skammast mín“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. febrúar 2026 10:03 Corinne Stoddard datt í enn eitt skiptið á Ólympíuleikunum og var algjörlega niðurbrotin á eftir. Getty/Henk Jan Dijks Bandaríska skautakonan Corinne Stoddard skrifaði hjartnæma færslu á samfélagsmiðla eftir vonbrigðaúrslit á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina. Hún biður vini sína og fjölskyldu afsökunar á frammistöðu sinni á Ólympíuleikunum í ár.
Hin 24 ára gamla Stoddard missti þar af verðlaunum eins og fyrir fjórum árum þegar hún nefbrotnaði við fall í 500 metra skautasprettinum en hún keppir í skautaati. Nú þurfti hún enn og aftur að sætta sig við fall. Mætti með miklar vonir og drauma „Ég kom til Ólympíuleikanna 2026 með miklar vonir og drauma um að koma heim með mörg verðlaun, miðað við hversu vel mér gekk á heimsbikartímabilinu. Það hefur því miður ekki gengið eftir,“ skrifaði Stoddard. Það þarf lítið til að detta í hamaganginum í skautaatinu og hér steinliggur Corinne Stoddard í 1000 metra sprettinum.Getty/ Sarah Stier Hún hafði unnið ellefu verðlaun á heimsbikarnum á tímabilinu 2025-26 og vann tólf verðlaun tímabilið á undan. Hún vann líka eitt silfur og tvenn bronsverðlaun á heimsmeistaramótinu 2024. „Ég er ekki viss um hvað hefur verið í gangi. Hluti af mér heldur að ég hafi ekki ráðið við pressuna og væntingarnar sem ég setti á sjálfa mig. Hinn hlutinn af mér finnur fyrir svo mikilli líkamlegri þreytu í hvert skipti sem ég reyni að keppa,“ skrifaði Stoddard. Kiknað á Ólympíusviðinu, aftur og aftur „Öll þessi reynsla hefur verið ótrúlega óheppileg og ég skammast mín fyrir hversu oft ég hef dottið, sérstaklega þar sem ég er ekki íþróttamaður sem er þekktur fyrir að detta oft. Ég skammast mín líka fyrir hversu oft ég hef kiknað undan álagi á Ólympíusviðinu, aftur og aftur. Þetta er ekki það sem ég ætlaði að sýna heiminum að ég gæti,“ skrifaði Stoddard. Hún á samt eftir eina keppni á þessum leikum. „Ég bið vini mína og fjölskyldu afsökunar á því að hafa horft á mig þjást svo oft síðustu vikuna. Ég á eitt síðasta tækifæri þann 20. febrúar (1500 m) og þá lýkur Ólympíuleikunum 2026 fyrir mitt leyti. Takk allir sem hafið haldið áfram að vera til staðar fyrir mig. Fyrirgefðu að ég hef ekki verið ég sjálfur,“ skrifaði Stoddard. View this post on Instagram A post shared by Corinne Stoddard (@c0rie815)
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Skautaíþróttir Mest lesið Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Fótbolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Körfubolti Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Fleiri fréttir Meistaradeildin að slá markamet Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Dagskráin: Meistaradeildin og Körfuboltakvöld kvenna „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Liverpool með fjögurra marka endurkomu Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur Sjá meira