Af sköpunargleði Viðskiptaráðs Jean-Rémi Chareyre skrifar 16. febrúar 2026 15:03 Gagnrýni er gagnleg, en aðeins svo lengi sem hún er uppbyggileg. Kolefniskvótakerfi Evrópusambandsins (ETS-kerfi) hefur enn ratað á forsíðu dagblaða og netmiðla eftir að Viðskiptaráð gaf út skýrslu um áhrif kerfisins á Ísland. Þar fær sköpunargleði skýrsluhöfunda að njóta sín og nýyrði eru smíðuð í gríð og erg til að lýsa áhrifum kerfisins, sem er þá ýmist kallað „fjarlægðarskattur“ eða „Atlantshafsálagið“. Er þá vísað til þess að kerfið leggist sérstaklega þungt á íslenskan almenning og fyrirtæki, meðal annars vegna fjarlægðar frá meginlandinu. Til að gagnrýni sé gagnleg þarf hún helst að uppfylla tvö skilyrði. Í fyrsta lagi þarf hún að benda á raunverulega ágalla, en ekki ímyndaða. Í öðru lagi þarf að hún að sýna fram á að betri lausnir séu til staðar, því þegar um alvarlegan vanda er að ræða getur aðgerðarleysi varla verið betri kostur en ófullkomnar aðgerðir. Annars er um niðurrif að ræða frekar en uppbyggilega gagnrýni. Vandinn við skýrslu Viðskiptaráðs er að hún uppfyllir hvorugt þessara skilyrða. Ágallarnir sem hún bendir á eru að mestu leyti ímyndaðir, og lausnirnar sem hún leggur til á móti eru… engar. 35% af allri olíu sem er brennd á Íslandi er brennd í flugvél.Jean-Rémi Þungar byrðar á íslensk heimili? Skoðum fyrstu staðhæfingu Viðskiptaráðs: ETS-gjöld sem leggjast á flugsamgöngur eru sögð ósanngjörn þar sem Íslendingar hafa engan annan valkost en að ferðast með flugi á meðan aðrir geta notast við lestarsamgöngur (sem er ekki alls kostar rétt því farþegasiglingar koma einnig til greina, en látum það vera). Það yrði svolítið langt mál að bera Ísland saman við allar aðrar þjóðir, og þess vegna skulum við velja okkur dæmi: Pólland. Tökum þá dæmi um einstakling á Íslandi sem vill ferðast til Alicante á Spáni. Stutt leit í leitarvél sýnir að slík flugferð með Icelandair kostar um 80.000 kr. (m.v. brottför í apríl). Flestir launþegar á Íslandi geta hins vegar fengið 20-25% afslátt af flugmiðanum í gegnum stéttarfélagið sitt, sem þýðir að raunverðið er frekar í kringum 60.000 kr. Berum þetta nú saman við Pólverja sem býr í Varsjá og vill komast til sama áfangastaðar, nema með lest, til að komast hjá því að greiða hin alræmdu ETS-gjöld. Leitarvélin sýnir nú að slík lestarferð kostar um 125.000 krónur (860 €), eða tvöfalt meira en flugferðin frá Íslandi. Pólverjinn þarf þar að auki að sýna töluverða þolinmæði þar sem ferðin tekur hvorki meira né minna en 35 klukkustundir, með minnst fjögur lestarskipti á leiðinni! Reiknimeistarar Viðskiptaráðs ímynda sér kannski að lestarferðir séu dans á rósum og kosti aðeins örfáa aura, en veruleikinn er svona, skulum við segja… aðeins ósammála. Við þurfum reyndar að leiðrétta þessar tölur því kaupmáttur launa í Póllandi er talsvert lægri en á Íslandi. Samkvæmt tölum Our World in Data var meðalgildi launa í Póllandi árið 2017 meira en helmingi lægra en á Íslandi, og þá er samt búið að leiðrétta fyrir hærra verðlagi á Íslandi. Með öðrum orðum kostar lestarmiðinn til Alicante frekar í kringum 250.000 kr. fyrir meðal-Pólverja, eða fjórum sinnum meira en flugferðin frá Íslandi. Grátkórinn til Póllands Jafnvel þótt flugmiðinn á Íslandi myndi hækka um 10.000 kr. eins og Viðskiptaráð giskar á, væri íslenski ferðalangurinn samt ennþá í margfalt betri stöðu en sá pólski. Raunar eru ferðalög til útlanda ákveðinn lúxus í Póllandi sem landsmenn geta ekki leyft sér oft: aðeins um 36% þeirra ferðast til útlanda einu sinni á ári eða oftar, á meðan Íslendingar fara að meðaltali í 2,5 utanlandsferðir á ári. Í Portúgal og Grikklandi hafa 60% íbúa aldrei komið út fyrir landsteinana! En þetta er ekki allt: á Íslandi hefur ETS-kerfið eingöngu áhrif til hækkunar á flugmiðaverði, en í löndum eins og Póllandi þar sem raforkuframleiðsla er að stórum hluta kola- eða gasknúin verður ETS-kerfið þar að auki til þess fallið að hækka raforkureikninginn hjá heimilum landsins. Í janúar birtist vísindagrein undir titilinn Regional inequality of the European ETS-2 í tímaritinu Energy Policy. Höfundarnir (tveir svissneskir hagfræðingar) komust að þeirri niðurstöðu að kerfið myndi leggjast þyngst á efnaminni þjóðir í Austur-Evrópu, svo sem Pólland, Úngverjaland og Búlgaríu. Ísland kemst ekki einu sinni á blað! Mætti ekki frekar senda grátkór Viðskiptaráðs til Póllands? Það eru reyndar engin geimvísindi í fyrrnefndri rannsókn: ETS-gjöldin eru svokallaður flatur skattur sem leggst jafnt á alla óháð efnahag, og slíkir skattar koma alltaf verst niður á þá efnaminni. Þetta er eitt dæmi um gagnrýni á ETS-kerfið sem hefði verið skiljanleg, og á þeim galla væri hægt að finna ýmsar lausnir. Við værum þá loksins komin í uppbyggilega gagnrýni… Það eina sem íslenskir neytendur þurfa að gera til að núlla út þau hræðilegu áhrif sem ETS-gjöldin munu hafa á „lífskjörin“ er að draga úr flugferðum um 10-20%, sem sagt að fækka flugferðum úr 2,5 niður í 2 á ári. Það er varla neitt til að tala um miðað við þau áhrif sem loftslagsbreytingar munu hafa á lífskjör í Evrópu almennt. Svo dæmi sé tekið glímir Spánn, einn vinsælasti áfangastaður Íslendinga, nú þegar við alvarlegan vatnsskort, þurrka, og skógarelda. Miðað við verstu sviðsmyndir gæti 75% af landinu breyst í eyðimörk á þessari öld. Frelsi eins endar þar sem frelsi annars byrjar, og þá vaknar spurningin um hvort frelsið skiptir meira máli: frelsi flugóðra Íslendinga til að fljúga til Spánar fyrir smáaura, eða frelsi Spánverja (og annara) til að búa við lífvænlegt loftslag? Höfundur er sjálfstætt starfandi blaðamaður og meðlimur í loftslagshópnum París 1,5, sem beitir sér fyrir því að Ísland leggi sitt af mörkum til að leysa loftslagsvandann. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jean-Rémi Chareyre Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar