Sneri aftur á völlinn eftir hjartastopp Valur Páll Eiríksson skrifar 15. febrúar 2026 14:47 Það var eflaust tilfinningaþrungin stund fyrir Bove er hann spilaði fótboltaleik í fyrsta sinn í 14 mánuði í gær. Image Photo Agency/Getty Images Ítalinn Edoardo Bove spilaði í gær sinn fyrsta fótboltaleik í rúmt ár eftir að hafa farið í hjartastopp í leik með Fiorentina í desember 2024.
Bove hneig niður í leik Fiorentina við Inter þann 1. desember 2024 og óttast var um líf hans. Leikurinn var flautaður af og hann fluttur á sjúkrahús eftir fyrstu hjálp á vellinum. Bjargráður var í kjölfarið græddur í Bove sem hefur sinnt endurhæfingu síðasta árið eða svo. Bove þurfti að flytja frá heimalandinu en samkvæmt reglum ítalska knattspyrnusambandsins er leikmönnum með bjargráð ekki heimilt að spila í landinu. Bove samdi við B-deildarlið Watford á Englandi. Hann fór því sömu leið á Daninn Christian Eriksen, sem fór frá Inter á Ítalíu til Englands, eftir að bjargráður var græddur í þann danska í kjölfar hjartastopps hans í leik Danmerkur og Finnlands á EM 2021. Bove sneri loks aftur á völlinn í gær, rúmum 14 mánuðum eftir hjartaáfallið. Hann spilaði síðustu fimm mínútur leiksins í 2-2 jafntefli við Preston North End. Bove þótti mikið efni og er uppalinn hjá Roma á Ítalíu. Þessi 23 ára miðjumaður reynir nú að koma ferli sínum aftur á flug, rétt eins og téður Eriksen gerði á Englandi á sínum tíma.
Enski boltinn Ítalski boltinn Mest lesið Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Lét gamminn geisa og fær að heyra það Enski boltinn Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Íslenski boltinn Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Fótbolti Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Fótbolti Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Íslenski boltinn Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ Handbolti Fleiri fréttir Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Sjá meira