Stálheppnir gegn C-deildarliðinu Valur Páll Eiríksson skrifar 14. febrúar 2026 14:57 Summerville var hetja Hamranna. West Ham United FC/West Ham United FC via Getty Images West Ham skreið áfram í 16-liða úrslit FA-bikarsins í fótbolta í fyrsta leik dagsins með 1-0 sigri á C-deildarliði Burton Albion eftir framlengdan leik. Makalaust var að Burton-liðum hafi ekki tekist að jafna leikinn.
Leikurinn fór fram fyrir húsfylli á Pirelli-vellinum í bílaborginni Burton og var á löngum köflum ekki að sjá að annað liðanna væri í C-deild en hitt spilandi á meðal þeirra bestu á Englandi. Eftir tíðindalítinn og markalausar 90 mínútur þurfti að framlengja leikinn. Hollenski kantmaðurinn Crysencio Summerville hefur vaðið á súðum að undanförnu og hélt uppteknum hætti er hann kom West Ham loks í forystu á fimmtu mínútu framlengingar. Skömmu síðar fékk liðsfélagi hans, Frank Potts, að líta beint rautt spjald fyrir ljótt brot. West Ham því manni færri það sem eftir lifði og Burton-menn sóttu fast að þeim. Ekki tókst að jafna leikinn, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir og ítrekuð færi Burton í framlengingu. Hamrarnir sluppu með skrekkinn. Þeir skríða áfram í 16-liða úrslit og koma sér þannig í hóp með Chelsea og Wrexham sem tryggðu sín sæti í gærkvöld.
Enski boltinn West Ham United Mest lesið Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Fótbolti Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd Fótbolti Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Fótbolti Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Íslenski boltinn Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Fótbolti Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Fótbolti Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Fótbolti Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira