Fötluðum börnum í íþróttum fjölgar en viðhorfsbreytingu þarf hjá þjóðinni Aron Guðmundsson skrifar 14. febrúar 2026 08:02 Valdimar Gunnarsson er verkefnastjóri Allir með Vísir/Bjarni Fjöldi fatlaðra barna á grunnskólaaldri sem tekur þátt í skipulögðu íþróttastarfi hefur aukist um rúmlega helming frá því að farið var af stað með samstarfsverkefnið Allir með. Verkefnastjóri verkefnisins setur markið hærra og segir viðhorfsbreytingu þurfa til hjá þjóðinni allri.
Þrjú ár hafa liðið frá því Allir með verkefnið fór af stað í kjölfar þess að niðurstöður könnunar vörpuðu ljósi á að einungis fjögur prósent, af þeim um þrjúsund börnum með fatlanir á grunnskólaaldri hér á landi, tækju þátt í skipulögðu íþróttastarfi. Markmið verkefnisins snýr að því að fjölga tækifærum fyrir fötluð börn um land allt og mælanlegur árangur hefur náðst á fyrstu þremur árum þess. „Við höfum náð að þoka þessu aðeins áfram. Í dag eru átta og hálft prósent fatlaðra barna, af þeim þrjú þúsund fötluðu börnum á grunnskólaaldri hér á landi, sem eru í skipulögðu íþróttastarfi,“ segir Valdimar Gunnarsson, verkefnastjóri Allir með í samtali við íþróttadeild Sýnar. „Við erum tiltölulega ánægð með þá stöðu en erum búin að setja markmiðið hærra. Ætlum að ná þessu upp í tuttugu og fimm prósent eftir næstu þrjú ár. Það er búið að framlengja verkefnið um þrjú ár í viðbót, sem er gott að heyra.“ Og til þess að ná enn betri árangri þarf viðhorfsbreytingu til, ekki bara hjá íþróttahreyfingunni heldur íslensku samfélagi í heild sinni. „Við þurfum að breyta því á þann veg að það þyki eðlilegt að fötluð börn æfi íþróttir eins og ófötluð börn. Hjá sínu hverfisíþróttafélagi. Þangað erum við að stefna og þangað erum við að fara. Við þurfum öll að taka þátt í þessu, horfa á þetta með þeim augum að þetta þyki eðlilegt. Að allir sem vilji, fái og hafi tækifæri til þess að stunda íþróttir. Þangað þurfum við að komast.“ Sífellt fleiri íþróttafélög hafa farið af stað með skipulagt íþróttastarf fyrir fötluð börn og hafa tuttugu og eitt nýtt verkefnið af þeim toga litið dagsins ljós frá því farið var af stað með Allir með verkefnið. Hindranirnar á vegi þeirra sem standa að baki verkefninu eru margar og persónuverndarlög gera þeim erfitt fyrir að ná sambandi við foreldra fatlaðra barna hér á landi. „Við vitum að það eru yfir þrjú þúsund börn á grunnskólaaldri með einhvers konar fatlanir. Við getum ekki sent póst á foreldra þessara barna, við þurfum einhvern veginn að koma skilaboðum áleiðis og gerum það einna helst kannski eins og með þessu viðtali. Fjölmiðlar aðstoða okkur við að láta vita hvað sé að gerast, hvað sé í gangi. Það er alltaf að fjölga tækifærunum, út um allt. Ég hef heyrt svo ótrúlega margar jákvæðar sögur úr þessu starfi. Ég gæti skrifað heila bók um það hvað þetta er jákvætt og gefur okkur sem erum að vinna í þessu alveg ótrúlega mikið.
ÍSÍ Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Fleiri fréttir Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Liverpool með fjögurra marka endurkomu Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Sjá meira