Tengslanet veikara og andleg líðan verri í dag en fyrir rýmingu Lovísa Arnardóttir skrifar 12. febrúar 2026 21:13 Hluti þeirra sem flutti úr bænum hefur snúið aftur en stór hluti þeirra sem býr annars staðar sér fyrir sér að búa þar áfram. Vísir/Vilhelm Fimmtán prósent þeirra sem svöruðu könnun Grindavíkurnefndarinnar um framtíðarsýn í Grindavík sjá fyrir sér að flytja þangað aftur á þessu ári. Þeir sem ekki ætla að flytja aftur á næstunni nefna í könnuninni óvissu um framvindu náttúruhamfaranna og að börn séu farin að festa rætur á nýjum stað.
Í niðurstöðunum kemur einnig fram að rúm tíu prósent svarenda búa aftur í Grindavík, en meirihlutinn hefur sest að annars staðar, einkum í Reykjanesbæ og á höfuðborgarsvæðinu. Um 65 prósent svarenda búa í eigin húsnæði og tæplega þrír af hverjum fjórum eru í launuðu starfi. Þó hafa 41 prósent þeirra sem eru á vinnumarkaði skipt um starf frá rýmingu. Rúm 80 prósent aðspurðra lýstu sterku tengslaneti í Grindavík en einungis 37 prósent segja að tengslanet þeirra sé sterkt í dag. Þátttaka í félagsstarfi hefur einnig dregist saman. Um 59 prósent segja andlega heilsu sína verri en fyrir rýmingu og 51 prósent líkamlega heilsu verri. Um helmingur hefur nýtt sér sálrænan stuðning og meirihluti þeirra telur hann hafa gagnast vel. Varpar ljósi á líðan og hagi Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar sem Maskína framkvæmdi meðal Grindvíkinga á tímabilinu 4. desember 2025 til 25. janúar 2026. Alls tóku 1.470 einstaklingar þátt, eða um 54 prósent bæjarbúa 18 ára og eldri. Í tilkynningu frá Grindavíkurnefndinni kemur fram að foreldrar sem svöruðu könnuninni hafi veitt upplýsingar um hagi 1.171 barns. Þannig varpi könnunin ljósi á hagi, líðan og framtíðaráform Grindvíkinga rúmum tveimur árum eftir rýmingu bæjarins þann 10. nóvember árið 2023. Samkvæmt niðurstöðum segjast 73 prósent þeirra sem svara, sem búa utan Grindavíkur, geta séð fyrir sér að búa þar áfram. Gögnin sýna jafnframt að eldri borgarar meta andlega heilsu sína betur en yngri aldurshópar, en hópurinn 50 til 59 ára upplifir mest álag á andlega líðan. Meirihluti hafi eignast nýja vini Samkvæmt svörum foreldra hafa 87 prósent barna eignast nýja vini, 78 prósent aðlagast vel í skóla og um 70 prósent stunda íþróttir eða tómstundastarf, eða svipað hlutfall og fyrir rýmingu. Þó telur rúmur þriðjungur foreldra andlega heilsu barna sinna verri en áður. Um 60 prósent foreldra telja að börn þeirra hafi þurft sálrænan stuðning í kjölfar rýmingar. Af þeim sem nýttu sér sálrænan stuðning sem var í boði í kjölfar rýmingar segir meirihluti foreldra hann hafa gagnast vel. Í tilkynningu Grindavíkurnefndarinnar segir að áhrifa rýmingar gæti enn, sérstaklega þegar kemur að félagslegum tengslum og andlegri líðan, en á sama tíma sýni gögnin merki um seiglu og virka atvinnuþátttöku meðal þátttakenda. Þá kemur einnig fram að niðurstöður könnunarinnar muni nýtast Grindavíkurnefnd og stjórnvöldum við áframhaldandi stefnumótun. Vinna sé hafin við rýnihópakönnun, en með þeirri nálgun geti fólk veitt dýpri innsýn í stöðu og líðan Grindvíkinga.
Grindavík Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Börn og uppeldi Skóla- og menntamál Geðheilbrigði Tengdar fréttir Reiknar með einu gosi í viðbót Ekki er útilokað að skjálftahrina við Eldey endi með eldgosi, að sögn prófessors í jarðeðlisfræði. Langmestu líkurnar séu þó á einu gosi til viðbótar á Sundhnúksgígaröð. Farið sé á að síga á seinni hlutann í yfirstandandi eldvirknitímabili á svæðinu. 9. febrúar 2026 13:01 Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík Bæjarstjóri Grindavíkurbæjar segir íbúa horfa björtum augum til framtíðar enda sé nóg að gera í kringum höfnina og þá séu ný fyrirtæki að opna í bæjarfélaginu. Um 900 manns eru með lögheimili í Grindavík í dag en ekki nema um 400 manns, sem eru með fasta búsetu þar. 23. janúar 2026 20:06 Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira
Reiknar með einu gosi í viðbót Ekki er útilokað að skjálftahrina við Eldey endi með eldgosi, að sögn prófessors í jarðeðlisfræði. Langmestu líkurnar séu þó á einu gosi til viðbótar á Sundhnúksgígaröð. Farið sé á að síga á seinni hlutann í yfirstandandi eldvirknitímabili á svæðinu. 9. febrúar 2026 13:01
Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík Bæjarstjóri Grindavíkurbæjar segir íbúa horfa björtum augum til framtíðar enda sé nóg að gera í kringum höfnina og þá séu ný fyrirtæki að opna í bæjarfélaginu. Um 900 manns eru með lögheimili í Grindavík í dag en ekki nema um 400 manns, sem eru með fasta búsetu þar. 23. janúar 2026 20:06