Táningsdóttir Kims formlegur arftaki hans Samúel Karl Ólason skrifar 12. febrúar 2026 10:30 Hér má sjá þau Ri Sol Ju og Kim Jong Un, sitthvoru megin við dóttir þeirra Kim Ju Ae á sýningu í Pyongyang í síðasta mánuði. EPA/KCNA Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, ætlar sér að tilnefnda dóttur sína sem formlegan arftaka sinn. Kim Ju Ae hefur fylgt honum eftir í opinberum heimsóknum á undanförnum mánuðum og hefur það þótt til marks um að hann vilji að hún taki við af sér þegar þar að kemur en lítið er vitað um hana.
Sérfræðingar leyniþjónustu Suður-Kóreu segja að formlegt ferli um að skilgreina arftaka Kims sé nú hafið, samkvæmt þingmönnum sem rætt hafa við blaðamenn þar í landi. Hún er byrjuð að tjá sig opinberlega um opinber málefni auk þess sem hún mætir á sífellt fleiri opinbera viðburði með föður sínum. Fylgst verður sérstaklega með því hvort hún verði viðstödd flokksþing Kommúnistaflokks Norður-Kóreu síðar í þessum mánuði og ef svo er, hvert hlutverk hennar verður. Þing þetta er haldið á fimm ára fresti og er stærsti stjórnmálaviðburður landsins. Þá er búist við því að Kim og ráðamenn hans leggi línurnar fyrir næstu fimm árin í Norður-Kóreu. Talin fædd 2013 Ekki er vitað með vissu hve gömul Kim Je Ae er en talið er að hún hafi fæðst árið 2013. Kim faðir hennar er 42 ára gamall og tók hann hana fyrst með sér á opinberan viðburð árið 2022, þegar feðginin virtu fyrir sér nýja tegund langdrægra skotflauga sem á að geta borið kjarnorkuvopn. Þá voru nokkrar myndir af þeim birtar opinberlega en hún er eina barnið sem vitað er að Kim hafi eignast með eiginkonu sinni Ri Sol Ju. Talið er að hann eigi einnig eldri son en það hefur aldrei verið viðurkennt og hann hefur aldrei sést opinberlega í Norður-Kóreu. Kim Yo Jong, systir einræðisherrans, þykir nokkuð áhrifamikil í Norður-Kóreu en um tíma var talið mögulegt að Kim vildi að hún tæki við völdum ef hann félli frá. Á þeim tíma voru fregnir af slæmri heilsu Kim reglulegar og voru iðulega sögusagnir á kreiki um að hann væri við dauðans dyr eða jafnvel kominn yfir þröskuldinn. Árið 2021 sagði leyniþjónusta Suður-Kóreu að hún væri í raun næstráðandi í Norður-Kóreu og hefur hún stýrt samskiptum einræðisríkisins við nágranna þess í suðri. Sjá einnig: Kim sagði „einföldum“ forseta Suður-Kóreu að halda kjafti Þau samskipti eru stirð. Táningsstúlka í ríki karla Heilsa Kims virðist ekki eins slæm og hún þótti um og fyrir 2020 en eins og segir í frétt BBC ríkir mikil óvissa um það af hverju Kim, sem er enn tiltölulega ungur og virðist við ágæta heilsu, sé að tilnefna þrettán ára dóttur sína sem arftaka. Norður-Kórea hefur lengi þótt mjög karllægt ríki, ef svo má segja, og þegar systir hans var talin arftaki hans voru sérfræðingar á þeim nótum að það myndi reynast henni erfitt að taka við af bróður sínum. Kim hefur þó tíma til að ryðja slóðann fyrir hana. Sjá einnig: Tók dóttur sína og erfingja með til Kína Ríkismiðlar Norður-Kóreu hafa þegar gert það að hluta til á undanförnum mánuðum og árum. Kim Ju Ae hefur reglulega birst þar á myndum með föður sínum og oftar en ekki stendur hún við hlið hans og virðist hærri en hann. Myndir sem birtar eru af Kim eru mjög táknrænar og það er mjög sjaldgæft að sjá megi einhvern standa honum jafnfætis á opinberum myndum.
Norður-Kórea Tengdar fréttir Kim ánægður með nýjar stýriflaugar Yfirvöld í Norður-Kóreu sögðu frá því í morgun að gerð hefði verið tilraun með langdræga stýriflaug sem á að geta borið kjarnorkuvopn. Tveimur slíkum var skotið á loft í gær, nokkrum dögum eftir að Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, skoðaði kjarnorkuknúinn kafbát sem verið er að smíða þar. 29. desember 2025 14:26 Til í viðræður en mun aldrei láta kjarnorkuvopnin af hendi Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, segist opinn fyrir nýjum viðræðum við Donald Trump, forseta Bandaríkjanna. Með þeim skilyrðum að Bandaríkjamenn hætti að krefjast þess að Kim láti kjarnorkuvopn sín af hendi. Það segist hann aldrei ætla að gera. 22. september 2025 12:18 „Selir“ skutu óvopnaða borgara í leyniaðgerð í Norður-Kóreu Bandarískir sérsveitarmenn skutu óvopnaða Norður-Kóreumenn til bana í misheppnaðri leyniaðgerð í upphafi árs 2019. Þar voru þeir til að koma fyrir hlerunarbúnaði sem vonast var til að gæti verið notaður til að hlera samskipti Kims Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, þegar Bandaríkjamenn voru í viðræðum við hann um kjarnorkuvopnaáætlun ríkisins. 5. september 2025 11:56 Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Sjá meira
Kim ánægður með nýjar stýriflaugar Yfirvöld í Norður-Kóreu sögðu frá því í morgun að gerð hefði verið tilraun með langdræga stýriflaug sem á að geta borið kjarnorkuvopn. Tveimur slíkum var skotið á loft í gær, nokkrum dögum eftir að Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, skoðaði kjarnorkuknúinn kafbát sem verið er að smíða þar. 29. desember 2025 14:26
Til í viðræður en mun aldrei láta kjarnorkuvopnin af hendi Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, segist opinn fyrir nýjum viðræðum við Donald Trump, forseta Bandaríkjanna. Með þeim skilyrðum að Bandaríkjamenn hætti að krefjast þess að Kim láti kjarnorkuvopn sín af hendi. Það segist hann aldrei ætla að gera. 22. september 2025 12:18
„Selir“ skutu óvopnaða borgara í leyniaðgerð í Norður-Kóreu Bandarískir sérsveitarmenn skutu óvopnaða Norður-Kóreumenn til bana í misheppnaðri leyniaðgerð í upphafi árs 2019. Þar voru þeir til að koma fyrir hlerunarbúnaði sem vonast var til að gæti verið notaður til að hlera samskipti Kims Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, þegar Bandaríkjamenn voru í viðræðum við hann um kjarnorkuvopnaáætlun ríkisins. 5. september 2025 11:56