Refsað tvisvar vegna sama brots en vika leið á milli Sindri Sverrisson skrifar 12. febrúar 2026 13:00 Það sást vel í sjónvarpi þegar Giannis Agravanis missti stjórn á sér og kýldi Craig Moller. Samsett/Anton/RÚV2 Körfuboltaáhugafólk hefur klórað sér í kollinum yfir því hvers vegna Stjörnumaðurinn Giannis Agravanis virtist hafa tvívegis hlotið refsingu, með viku millibili, fyrir hnefahögg sem hann veitti Keflvíkingnum Craig Moller.
Agravanis tekur út eins leiks bann í kvöld gegn Njarðvík, eftir að hafa fengið að spila bikarúrslitaleikinn við KR á laugardag þrátt fyrir brot sitt í undanúrslitaleik við Keflavík fjórum dögum fyrr. En af hverju fékk Grikkinn 20 þúsund króna sekt á miðvikudaginn í síðustu viku, og svo líka 40 þúsund króna sekt og eins leiks bann í gær? Þannig er mál með vexti að 20 þúsund króna sektin var ekki bara vegna hnefahöggsins. Þar var um að ræða refsingu fyrir „4 tæknivillur“ á leiktíðinni. Agravanis fékk eina tæknivillu í leiknum við Keflavík og svo brottrekstrarvilluna, sem telst sem tvær tæknivillur, og hafði verið búinn að fá tæknivillu fyrr á leiktíðinni. Þessar sektir, sem eru vegna uppsafnaðra tæknivillna, fara ekki inn á borð aga- og úrskurðarnefndar enda reglurnar um þær einfaldar. Hægt er að útdeila þeim nánast sjálfvirkt. Það er ástæðan fyrir því að 20 þúsund króna sektin á Agravanis kom viku fyrr en hin raunverulega refsing vegna hnefahöggsins, sem byggði á skýrslu frá dómurum leiksins. Það var svo aga- og úrskurðarnefnd sem dæmdi Agravanis í eins leiks bann og veitti honum 40 þúsund króna sekt, eftir fund sinn í þessari viku. Á vikulegum fundum nefndarinnar eru tekin fyrir mál sem borist hafa fyrir miðnætti mánudaginn á undan, samkvæmt reglum, og því var málið ekki tekið fyrir á milli undanúrslita- og úrslitaleiks bikarkeppninnar. Það hefði hins vegar verið gert ef komið væri í úrslitakeppni í Bónus-deildinni því þá gilda sérstakar reglur um að nefndin fundi á milli leikja. Miðað við viðbrögðin í körfuboltahreyfingunni má búast við að reglunum verði breytt svo að hið sama gildi á lokastigum bikarkeppni eins og í úrslitakeppni.
VÍS-bikarinn Bónus-deild karla Stjarnan Mest lesið Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Jelena kölluð inn í landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Sjá meira