Er fóturinn nokkuð vaxinn á þig aftur? Davíð Bergmann skrifar 13. febrúar 2026 12:01 Í alvörunni, stundum þá held ég að við Íslendingar séum með gullfiskaminni! Við erum þjóðin sem horfði á „gullkálfinn“ með glýju í augunum á meðan ferðatöskur voru fylltar af þýfi sem var svo flogið á einkaþotum til aflandseyja. Magalendingin eftir hrunið kom þeim sem tilbáðu gullkálfinn ekki illa, heldur almenningi. Á meðan þeir sem dýrkuðu kálfinn fóru í skjól þurfti pabbi gamli að fórna fætinum á altari niðurskurðar í heilbrigðiskerfinu. Fyrir vikið þurfti hann að þola kvalir í 16 ár, eða allt til æviloka, og gleypa á þriðja tug taflna á hverjum degi bara til þess að komast í gegnum daginn. Eitt skýrasta dæmið um firringu kerfisins er að ofan á þessar þjáningar þurfti hann að mæta reglulega í skoðun hjá hinu opinbera til að sanna fötlun sína, þrátt fyrir að fóturinn hefði verið tekinn af við hné. Kerfið þurfti nefnilega að hafa það alveg á hreinu að fóturinn væri ekki vaxinn aftur á hann. Neyðarástand í meira en áratug Þetta andvaraleysi takmarkast ekki við einstök mál. Við höfum búið við viðvarandi neyðarástand á sjúkrahúsum landsins í meira en heilan áratug. Starfsfólk og sjúklingar hafa hrópað á hjálp árum saman en við virðumst vera hætt að heyra hljóðið. Þetta hróp fer bara fram hjá eins og hver önnur lægðin sem veðurfræðingur boðar; það sama á við um fangelsismál; við kinkum kolli og höldum áfram okkar striki. Það er eins og við samþykkjum kerfishrun sem eðlilegt ástand á meðan við beinum athyglinni að björgun Úkraínu með því að kaupa vopn fyrir það land, við herlausa þjóðin. Erum við orðin endanlega klikkuð? Stoðkerfið er rjúkandi rúst og hefur verið það lengi. Við getum ekki einu sinni skaffað skólaúrræði fyrir þá sem vilja komast í iðnnám en við getum útvegað vopn fyrir aðrar þjóðir og á sama tíma er heill her af ungu fólki að glatast í úrræðaleysi og til að flýja tilgangsleysið getur verið gott að gróðursetja sig fyrir framan tölvuskjáinn og vera þó eitthvað inni í netheimum því raunveruleikinn bítur. Tölurnar tala sínu máli: Hlutfall fólks á örorku- og endurhæfingarlífeyri hækkaði um tæplega fimmtíu prósent frá árinu 2000 til 2024. Greiningum á þunglyndi, kvíða, verkjavanda, ADHD og einhverfu hefur fjölgað mest. https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-02-10-hlutfall-folks-a-ororku-haekkad-um-taeplega-fimmtiu-prosent-466597 Þetta ætti ekki að koma á óvart Svo erum við hissa að ungum öryrkjum fjölgi! Í skýrslu um forvarnir og geðrækt, sem Skrifstofa höfuðborgarsvæðisins gaf út í desember 2022, kemur fram að kerfið veit ekki einu sinni nákvæmlega hverjir eru að falla út úr námi eða vinnu. Áætlað er að 3.000 ungmenni á höfuðborgarsvæðinu séu hvorki í námi né á vinnumarkaði. Hvernig ætlum við að mæta þessum hóp þegar fjórða iðnbyltingin, sjálfvirknivæðing og gervigreind taka störfin – eða þegar ódýrt erlent vinnuafl sinnir þeim verkum sem eftir eru? Úr skýrslunni beint: „Ekki eru tiltækar nákvæmar tölulegar upplýsingar yfir ungmenni sem eiga við skólaforðun að etja, hafa ekki hafa skráð sig í framhaldsskóla, eða horfið á brott úr framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu. Hjá framhaldsskólunum er engin sérstök (miðlæg) skráning til um nemendur sem skráðir eru í skóla en mæta sjaldan eða alls ekki. Leiða má líkur að því að tölur Hagstofnunar des. 2022 um atvinnulaus ungmenni (16–24 ára) endurspegli að mestu leyti þann fjölda ungmenna á höfuðborgarsvæðinu sem eru í skólaforðun, hafa horfið frá námi og eru skráð atvinnulaus. Því má gera að því skóna að um 3000 ungmenni á höfuðborgarsvæðinu séu um þessar mundir hvorki í formlegu námi né á vinnumarkaði og talsverður hluti þeirra sæki einhvers konar þjónustu til sveitarfélaganna.“ Úrræði eru fjárfesting – Arðsemi í mannauði Ég nenni ekki að fara pent í þetta lengur líka vegna þess að ég fór með báða foreldra mína í þetta hyldýpi úrræðaleysis í þessu blessaða heilbrigðiskerfi okkar. Það að við getum ekki drullast til að hafa heilbrigðismál og menntamál í lagi en ekki á neyðarstigi er fyrir neðan frostmark en við getum sett 1000 milljónir í vopnakaup fyrir Úkraínu á sama tíma og allt er í steik hjá okkur. Vandinn leysist ekki af sjálfu sér. Það á að vera sameiginlegt forgangsverkefni ríkis og sveitarfélaga að grípa þessi 3000 ungmenni áður en þau enda á varanlegri örorku eða festast í viðjum tilgangsleysis. Atvinnuúrræði eins og Fjölsmiðjan eru frábær dæmi um það sem virkar; þar fær fólk tækifæri til að eflast og skila sínu til samfélagsins. Eitt veit ég að þessum 1000 milljónum sem fara í vopnakaup í Úkraínu væri 1000 sinnum betur varið í ungmenni okkar. Fjölsmiðjan gat sinnt 175 nemum á síðasta ári fyrir 220 milljónir. Hvað gæti hún þá gert með 1000 milljónum í viðbót? Það borgar sig margfalt að fjárfesta í forvörnum og stuðningi á meðan hægt er, frekar en að horfa ráðalaus á kostnaðinn hlaðast upp síðar í heilbrigðiskerfi sem þegar er á brúninni. Niðurstaðan: Aðstandendur þessa hóps standa frammi fyrir miklum áskorunum og þurfa á stuðningi að halda en þeir hafa líka rödd og atkvæðisrétt. Það er kominn tími til að við forgangsröðum mannauðnum okkar jafnt og öðrum hagsmunum og hættum að endurtaka sömu mistökin í kerfislægu aðgerðaleysi. Með því að grípa í taumana strax byggjum við upp sterkari einstaklinga og þar af leiðandi heilbrigðara samfélag. Þetta snýst um framtíðarsýn, raunveruleg úrræði og heilbrigða skynsemi. Höfundur er starfsmaður Fjölsmiðjunnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Davíð Bergmann Vinnumarkaður Mest lesið Að langa en geta ekki Birna Heiðarsdóttir Skoðun Tala og tala en gera ekki neitt Tómas Þór Þórðarson Skoðun Opinn tékki með fullveldið að veði Sigurður Egilsson Skoðun Hver er munurinn á Þorgerði Katrínu og Donald Trump? Júlíus Valsson Skoðun Alþingi í samstarfi við pólitísk félagasamtök? Guttormur Þorsteinsson Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson Skoðun Þegar hegðun er ákall en enginn hlustar Ásta Kristín Gunnarsdóttir Skoðun Þegar endurtekning verður að „sannleika“ Snædís Valsdóttir,Aðalsteinn Hjartarson Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar Skoðun Börn send fram og til baka Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Þekking sem mótar land, byggð og samfélag Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar barn hættir að treysta fullorðnum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Til hvers var barist og hver situr að aflanum? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver er munurinn á Þorgerði Katrínu og Donald Trump? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Tala og tala en gera ekki neitt Tómas Þór Þórðarson skrifar Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Barnamenning mótar raddir framtíðar Logi Már Einarsson skrifar Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar Skoðun Þegar hegðun er ákall en enginn hlustar Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Alþingi í samstarfi við pólitísk félagasamtök? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Að langa en geta ekki Birna Heiðarsdóttir skrifar Skoðun Misskilningur um samræmingu heilbrigðiseftirlits Pétur Halldórsson skrifar Skoðun Opinn tékki með fullveldið að veði Sigurður Egilsson skrifar Skoðun Gjaldmiðlamálið: íslenski smábáturinn eða stóra skipið sem þolir ólgusjó? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Greinarstúfur um tillögur stjórnvalda um að leggja niður heilbrigðiseftirlitin í landinu Ásdís H. Bjarnadóttir skrifar Skoðun „Hrútskýring“ á fiskveiðióstjórn Íslands Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tilmæli til borgarstjórnar, fagþekking Eyjólfur Pálsson skrifar Skoðun Málverkið tilbúið, en hver hélt á penslinum? Halla Björk Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Síðasti sjéns að mótmæla varðhaldi saklausra barna Alma Mjöll Ólafsdóttir skrifar Skoðun BRCA arfberar eiga ekki að greiða fyrir lífsnauðsynlegt áhættueftirlit Hrefna Eyþórsdóttir skrifar Skoðun Undir yfirborðinu leynist framtíðin Silja Elvarsdóttir,Hafdís Hanna Ægisdóttir skrifar Skoðun Tónlistar(niðurskurðar)borgin Reykjavík Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Hugboð, tilfinningar eða upplýst afstaða – útgáfuréttur óviss Berglind Hilmarsdóttir skrifar Sjá meira
Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann Skoðun
Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson Skoðun
Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar
Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar
Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar
Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar
Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar
Skoðun Gjaldmiðlamálið: íslenski smábáturinn eða stóra skipið sem þolir ólgusjó? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Greinarstúfur um tillögur stjórnvalda um að leggja niður heilbrigðiseftirlitin í landinu Ásdís H. Bjarnadóttir skrifar
Skoðun BRCA arfberar eiga ekki að greiða fyrir lífsnauðsynlegt áhættueftirlit Hrefna Eyþórsdóttir skrifar
Skoðun Hugboð, tilfinningar eða upplýst afstaða – útgáfuréttur óviss Berglind Hilmarsdóttir skrifar
Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann Skoðun
Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson Skoðun