Fjörugt Food and fun framundan Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 10. febrúar 2026 14:00 Óli Hall (til hægri) framkvæmdastjóri Food and Fun er fullur tilhlökkunar fyrir hátíðinni í ár. Aðsend Matarhátíðin Food and fun verður haldin í 23. skipti hér í Reykjavík í lok febrúar þar sem sjóðheitir matreiðslumeistarar hvaðan af úr heiminum koma sem gestakokkar inn á okkar vinsælustu veitingastaði.
Hátíðin hefur notið mikilla vinsælda hérlendis, lífgað upp á skammdegið og ögrað bragðlaukum landsmanna á ýmsa vegu. View this post on Instagram A post shared by Food & Fun Reykjavik (@foodandfunreykjavik) Í fréttatilkynningu segir: „Hátíðin fer fram dagana 25. febrúar til 1. mars. Hátíðin hefur öðlast fastan sess í menningarlífi borgarinnar og er löngu orðin ein af hápunktum ársins fyrir matgæðinga. Markmið Food & Fun er að sameina einstakt íslenskt hráefni og alþjóðlega matargerðarlist, þar sem erlendir gestakokkar fá tækifæri til að nýta afurðir Íslands í nýstárlegum réttum. Hátíðin hefur vakið mikla athygli á heimsvísu og hefur reynst frábær kynning á íslenskri matargerð.“ Eftirtaldir veitingastaðir og gestakokkar koma til með að taka þátt í Reykjavík Food & Fun hátíðinni 2026: Apotek Restaurant: Danitza Gabriela (Perú) Brasa: Victor Planas (Spánn) Bryggjuhúsið: Sáfy Homola (Slóvakía) EIRIKSSON Brasserie: Flora Mikula & Beatriz Gonazales (Frakkland) Finnsson: Tom Cook (Bretland) Fiskmarkaðurinn: Mark Edwards (Bretland) Fjallkonan: Diletta Zenna (Ítalía) Geiri Smart: Jesse Miller (Bandaríkin) Hjá Jóni Restaurant: Aleksi Lukka (Finnland) Kastrup: Sylvia Vavik Flåten (Noregur / Mexíkó) La Primavera / Harpa: Luigi Pomata (Ítalía) La Primavera / Marshallhúsið: Christopher Basset (Bretland) Lóla: Adam Dahlberg (Svíþjóð) Skreið: Iñaki & Mikel Lpz. De Viñaspre (Spánn) Sumac Grill +Drinks: Paco Omaña (Portúgal) Sushi Social: Alejandro Pérez & Ismael de Jesús Olivar Avalos (Mexíkó) Tides: Diego Munoz (Perú) Tres Locos: Carlos Barragán (Mexíkó) Vox Brasserie & Bar: Ricardo Aquista (Spánn) Óli Hall, framkvæmdastjóra hátíðarinnar, getur bókstaflega ekki beðið eftir gleðinni. „Food & Fun er sannkölluð uppskeruhátíð veitingabransans og hápunktur ársins fyrir matarunnendur. Hátíðin hefur frá árinu 2002 verið hreyfiafl í íslenskri veitingamenningu og átt stóran þátt í að móta Reykjavík sem alvöru mataráfangastað,“ segir Óli og bætir við: „Með komu erlendra meistarakokka sem starfa með okkar bestu veitingastöðum skapast einstakt tækifæri til að kynnast nýjungum og leyfa bragðlaukunum að ferðast um heiminn. Þetta snýst ekki síður um að kynna íslenskt úrvalshráefni fyrir erlendum fagmanneskjum og bera hróður Íslands víða.“ Hægt verður að bóka borð inn á Dineout frá og með morgundeginum og áhugasamir geta fylgst með öllum tilkynningum hátíðarinnar hér.
Food and Fun Matur Samkvæmislífið Veitingastaðir Mest lesið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Fleiri fréttir Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Sjá meira