Nálgumst 400 þúsund og um átján prósent íbúa eru erlendir ríkisborgarar Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 10. febrúar 2026 11:13 Mannlíf í miðborg Reykjavíkur. Vísir/Vilhelm Í lok árs 2025 voru íbúar á Íslandi orðnir 394.530 og vantar þannig rétt um 5.500 íbúa til að íbúafjöldi nái 400 þúsund samkvæmt nýjustu mannfjöldatölum Hagstofunnar. Íbúum fjölgaði um 1.370 á fjórða ársfjórðungi síðasta árs en erlendir ríkisborgarar eru 17,8% af heildarmannfjölda á Íslandi, eða 70.420.
Hagstofan birtir ársfjórðungslega tölur um íbúafjölda á Íslandi og í morgun voru birtar tölur vegna fjórða og síðasta ásfjórðungs ársins 2025. Tölurnar sýna meðal annars að um tíu þúsund fleiri karlar en konur búa á Íslandi, eða 202.220 samanborið við 192.090 konur og 210 kynsegin. Langflestir búa á höfuðborgarsvæðinu eða ríflega 252 þúsund manns, en ríflega 142 þúsund eru búsettir á landsbyggðinni. Á sama tímabili í fyrra var heildaríbúafjöldi á Íslandi 389.450, og hefur landsmönnum þannig fjölgað um rúmlega fimm þúsund manns á milli ára. Grafið hér að neðan sýnir fjölda þeirra sem hafa fæðst og látist eftir ársfjórðungum frá árinu 2011. „Á fjórða ársfjórðungi 2025 fæddust 1.080 börn, en 690 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 990 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Aðfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 200 umfram brottflutta en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 790 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu,” segir meðal annars í tilkynningu um nýjustu mannfjöldatölur á vef Hagstofunnar Grafið hér neðst sýnir mannfjöldabreytingar á síðasta ársfjórðungi þar sem tekið er mið af fjölda fæðinga, andláta og búferlaflutningum eftir kyni.
Mannfjöldi Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Innlent Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Innlent Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Innlent Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Innlent Fleiri fréttir Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Sjá meira