Handbolti

Guð­mundur gerði sínu gamla liði grikk með marki á elleftu stundu

Aron Guðmundsson skrifar
Guðmundur lék hér heima með Haukum áður en hann hélt út í atvinnumennskuna
Guðmundur lék hér heima með Haukum áður en hann hélt út í atvinnumennskuna vísir / vilhelm

Guðmundur Bragi Ástþórsson tryggði TMS Ringsted jafntefli með marki á lokasekúndu leiks liðsins gegn hans gamla liði Bjerringbro-Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Lokatölur 27-27.

Það stefndi allt í sigur Bjerringbro-Silkeborg, liðið var einu marki yfir og aðeins nokkrar sekúndur eftir þegar að leikmaður liðsins, Lasse Sunde, átti skot að marki sem Simon Mizera, markvörður Ringsted varði.

Gestirnir ruku fram í sókn og þar var það Íslendingurinn Guðmundur Bragi sem kom boltanum fram hjá Marko Roganovic í marki Bjerringbro-Silkeborg og í netið á síðustu sekúndu leiksins og tryggði Ringsted þar með jafntefli í leik sem endaði 27-27. 

Þetta var annað mark leiksins hjá Guðmundi Braga og mikilvægt var það. Íslenski liðsfélagi hans, Ísak gústafsson skoraði þrjú mörk í leiknum.

Guðmundur Bragi gekk í raðir Ringsted frá Bjerringbro-Silkeborg í júlí á síðasta ári en hann var aðeins eitt ár í herbúðum Silkeborgar liðsins. 

Jafntefli kvöldsins gerir það að verkum að Ringsted er nú í 12.sæti deildarinnar með fimmtán stig. Bjerringbro-Silkeborg er í 6.sæti með nítján stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×