Fordæmdu börnin Þráinn Farestveit skrifar 4. febrúar 2026 18:02 Í Kveik í gær birtust enn á ný frásagnir sem eiga aldrei að þurfa að heyrast í nútímasamfélagi. Sögur um börn sem voru vistuð í úrræðum þar sem öryggi þeirra var ekki tryggt, eftirlit var lítið sem ekkert og aðstæður urðu sumum að hreinni vítiskvöl. Það sem slær mann er ekki aðeins alvarleiki frásagnanna – heldur sú staðreynd að þetta eru ekki einangruð undantekningartilvik úr fjarlægri fortíð. Þær lýsa mynstri. Kerfi sem brást. Fullorðnir sem horfðu fram hjá. Börn sem stóðu eftir varnarlaus. Eftir áralangar umræður um börn sem voru vistuð við skelfilegar aðstæður – bæði á vegum ríkis og sveitarfélaga – mætti ætla að samfélagið hefði gert upp þessa sögu. En umræðunni er fjarri því lokið henni líkur ekki með umfjöllun um Bakkakot. Hún hefur aldrei verið til lykta leidd. Þvert á móti birtast staðreyndir aftur og aftur sem sýna að við höfum ekki enn tekið á þessu með heildstæðum hætti með farsælu uppgjöri. Enn og aftur er þjóðin slegin niður með hrikalegum sögum þar sem börn hafa orðið fyrir harkalegu ofbeldi og útskúfun, kynferðislegri misnotkun og það árum saman. Rifjaðar voru upp staðreyndir sem margir vilja helst ekki horfast í augu við: að börn hafi verið vistuð við aðstæður sem engin manneskja ætti að þurfa að lifa við – hvað þá barn. Sögur um ofbeldi, niðurlægingu, ótta og algert afskiptaleysi. Þær lýsa mynstri sem var viðhaldið af fjölda sveitafélaga um áratuga skeið eins nýjast dæmið ber með sér. Aðalega voru þetta sveitabæir sem höfðu með einhverjum hætti öðlast tiltekið traust sveitafélagana á þessum tíma, traust sem í flestum tilvikum var byggt á sandi. Þetta er saga um börn sem voru sett í vistun – ekki af sjálfsdáðum – heldur vegna ákvarðana fullorðinna. Ákvarðana sem teknar voru í nafni „úrræðis“, „verndar“ eða „aðstoðar“. En þegar upp er staðið var útkoman fyrir marga hreint helvíti og óbætanlegur skaði. Lög um skipan nefndar til að kanna starfsemi vist- og meðferðarheimila fyrir börn, nr. 26/2007, tóku gildi 28. mars 2007. Vistheimilanefnd var sett á fót og rannsakaði heimili sem rekin voru af ríkinu. Sú vinna skipti máli. En það sem skiptir líka máli er það sem stjórnvöld ákváðu að rannsaka ekki og aðhafast ekkert vegna. Það eru þær staðreyndir sem nú blasa við þjóðinni. Þegar nefndarálit allsherjar- og menntamálanefndar kom fram var bent á að miklum fjölda barna hefði verið ráðstafað af stjórnvöldum á einkaheimili og að mikilvægt væri að þau fengju að gera upp vistun sína með því að hið opinbera skapaði vettvang til frásagna og ábyrgðarmats. Þetta var skýr ábending. Ég ræddi þessi mál á sínum tíma við nefndarmann vistheimilanefndar í þeirri von að vekja athygli á stöðu okkar sem vistuð vorum á heimilum sem sveitarfélög nýttu. Í því samtali var alveg ljóst að þessi heimili væru ekki til skoðunar. Afstaðan var sú að ekki væri ástæða til að sinna öðrum málum en þegar lá fyrir að skoða ætti. En staðreyndin er sú að heimilin voru fjöldamörg – og þar voru börn oft eftirlitslaus, eins og nefndarálit allsherjar- og menntamálanefndar benti á. Frá upphafi var ljóst að lögin voru afmörkuð þannig að þau náðu ekki yfir heimili sem sveitarfélög nýttu til vistunar barna – þrátt fyrir að þar hafi börn verið sett í sambærilegar aðstæður og lýst var í Breiðavíkurmálinu og öðrum sambærilegum málum. Þetta var ekki tilviljun. Þetta var pólitísk ákvörðun. Og afleiðingin var sú að stór hópur einstaklinga var útilokaður frá því sem átti að vera samfélagslegt uppgjör. Þegar vinna vistheimilanefndar hófst komu fram fjölmargar tilkynningar um áþekka háttsemi á öðrum heimilum og stofnunum en þeim sem talin voru upp í lögunum en þeim var vísaði frá og nánast sópað undir teppið. Ekki vegna þess að frásagnirnar væru ekki trúverðugar. Ekki vegna þess að brotin væru minni. Heldur vegna þess að kerfið var hannað þannig að aðeins sum málanna fengjum áheyrn. Það krefst mikils styrks að stíga fram og segja frá því sem maður upplifði við slíkar aðstæður sem barn. Að segja frá því að vera beittur ofbeldi. Að vera niðurlægður. Að vera hræddur alla daga. Að vera skilinn eftir án þess að nokkur hlustaði eða gripi inn í. Þeir sem hafa stigið fram eiga virðingu skilið. En við verðum líka að segja hlutina eins og þeir eru: margir treysta sér ekki til þess. Aðrir eru látnir, langt fyrir aldur fram. Þeir fengu aldrei réttlæti. Þeir fengu aldrei rödd. Í umræðunni um vistun barna hefur lengi verið talað eins og vandinn hafi fyrst og fremst snúist um „stofnanir“. En stærri og alvarlegri hluti sögunnar er sá sem hefur aldrei fengið sambærilegt uppgjör: vistun á heimilum og stöðum sem sveitarfélög nýttu til að koma börnum fyrir. Þegar farið er yfir frásagnir og tilkynningar sem bárust á sínum tíma blasir við að fjöldi barna var vistaður á stöðum þar sem eftirlit var í besta falli óljóst – en oft nánast ekkert. Þar voru börn oftast eftirlitslaus. Þar var ofbeldi sem átti aldrei að geta átt sér stað. Þar var þögnin kerfisbundin. Verst var að sveitarfélögin sem komu börnunum fyrir þarna hafa aldrei gert upp ábyrgð sína með raunverulegum hætti, hafi þau skömm fyrir. Við þurfum að hætta að tala um þetta eins og þetta hafi verið óheppileg mistök eða „sögulegar aðstæður“. Þegar sveitarfélag kemur barni fyrir í vistun, þá fylgir því skylda. Skylda til að tryggja að barnið sé öruggt. Skylda til að fylgja því eftir. Skylda til að bregðast við ábendingum. Skylda til að spyrja spurninga og fá svör. Skylda til að hafa eftirlit. Ef sveitarfélög nýttu vistunarstaði „nánast án eftirlits“, þá er það ekki bara veikleiki í kerfinu. Það er ábyrgðarleysi. Þar liggur hundurinn grafinn. Börnum var ráðstafað hingað og þangað. Þau voru flutt milli staða. Sett í úrræði sem áttu að „virka“. En enginn tryggði að þau væru örugg. Enginn tryggði að það væri raunverulegt eftirlit. Enginn tryggði að börnin hefðu rödd. Vistin reyndist mörgum börnunum erfið og stundum alger vítiskvöl, þar sem mikið ofbeldi átti sér stað, bæði andlegt, kynferðislegt og líkamlegt. Alþingi verður að horfast í augu við þessa sögu. Ekki með almennum yfirlýsingum, heldur með ábyrgð. Með því að viðurkenna að börn voru vistuð í úrræðum sem voru ekki örugg. Með því að skapa vettvang þar sem þau sem lifðu þetta af fá að segja frá. Með því að tryggja að þau standi ekki lengur fyrir utan við allt uppgjör. Við verðum að draga lærdóm af mistökum fortíðar. En til þess að það sé hægt þarf að horfast í augu við sannleikann: sveitarfélög nýttu vistunarstaði nánast án eftirlits — og börnin fengu að gjalda það dýru verði. Höfundur er framkvæmdastjóri Verndar fangahjálpar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vistheimili Mál fósturbarna á Bakkakoti Mest lesið Hverjir unnu þorskastríðin? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun Hugleiðingar flugmanns Sara Hlín Sigurðardóttir Skoðun Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson Skoðun Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson Skoðun Excel-heilafúinn í Ráðhúsinu: Þegar tónlistarnám varð munaðarvara Jónas Sen Skoðun Skutlið að sliga margar fjölskyldur Kolbrún Baldursdóttir Skoðun Þjóðargrafreitur sem ekki varð Sigurður Helgi Pálmason Skoðun Leggjum niður framtíðina Kristinn Jón Ólafsson Skoðun Andleg heilsa ungs fólks Héðinn Unnsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Kári beislaður við Vaðöldu Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Það vantar ekki enn eitt átakið – það vantar aðgerðir Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Að leita langt yfir skammt Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Framkvæmd skólastefnu fær falleinkunn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Slönguspilið og svikamyllan Teitur Atlason skrifar Skoðun Þetta er algjört möst í fríið Hildur Vattnes Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Ég vel hattana sjálf Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Við erum að selja loftslagsmálin vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Hin meinta lýðræðisveisla Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Excel-heilafúinn í Ráðhúsinu: Þegar tónlistarnám varð munaðarvara Jónas Sen skrifar Skoðun Andleg heilsa ungs fólks Héðinn Unnsteinsson skrifar Skoðun Sá maður sem ég sá á skjánum var ekki ég Gísli Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um fáránleika þess að raska grafarró þjóðskáldsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Leggjum niður framtíðina Kristinn Jón Ólafsson skrifar Skoðun Þegar umræðan og staðreyndirnar fara ekki saman Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Hverjir unnu þorskastríðin? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Dánaraðstoð snýst ekki aðeins um lækna heldur líka um sjúklinga Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Fyrirtæki sem læra hægt munu deyja hægt Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Þjóðargrafreitur sem ekki varð Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Skutlið að sliga margar fjölskyldur Kolbrún Baldursdóttir skrifar Skoðun Bætt aðgengi að nýjum lyfjum skilar víðtækum ávinningi fyrir samfélagið Ragnhildur Reynisdóttir, Pétur Magnússon skrifar Skoðun Háskólar falla á prófi í samkeppnisrétti Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Jarðhiti sem samkeppnisforskot Helga Kristín Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Ef fyrirtæki nota AI til að fækka fólki, eru þau að hugsa of smátt Vaka Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar flugmanns Sara Hlín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Mygluna burt úr Laugalækjarskóla Stefán Steingrímur Bergsson skrifar Skoðun Borgum ekki skuldir óreiðuríkja Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hvað ertu hræddur við, Jón Pétur Zimsen? Óðinn Freyr Baldursson skrifar Sjá meira
Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun
Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson Skoðun
Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson Skoðun
Skoðun Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Bætt aðgengi að nýjum lyfjum skilar víðtækum ávinningi fyrir samfélagið Ragnhildur Reynisdóttir, Pétur Magnússon skrifar
Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun
Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson Skoðun
Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson Skoðun