Viðskipti innlent

Yfir átta­tíu starfs­mönnum við fisk­eldi sagt upp í hópuppsögnum

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Ekki kemur fram í tilkynningu Vinnumálastofnunar hvort starfsfólkið starfaði við land- eða sjókvíaeldi. Myndin er úr safni.
Ekki kemur fram í tilkynningu Vinnumálastofnunar hvort starfsfólkið starfaði við land- eða sjókvíaeldi. Myndin er úr safni. Vísir/Einar

Alls var 84 starfsmönnum sagt upp í tveimur hópuppsögnum sem tilkynnt var um til Vinnumálastofnunar í janúar. Hópuppsagnirnar voru báðar tengdar starfsemi á sviði fiskeldis og gert ráð fyrir að öllum verði boðið starf að nýju.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vinnumálastofnun um hópuppsagnir í janúar 2026.

„Alls bárust tvær tilkynningar um hópuppsagnir í janúar 2026, þar sem 84 starfsmönnum var sagt upp störfum. Uppsagnirnar eru á sviði fiskeldis og verður öllum boðið starf að nýju. Uppsagnirnar koma flestar til framkvæmda apríl og maí 2026,“ segir í tilkynningu Vinnumálastofnunar, en lögum samkvæmt ber vinnuveitendum að upplýsa stofnunina um hópuppsagnir.

Með hópuppsögn er átt við uppsagnir atvinnurekanda á fastráðnum starfsmönnum þar sem fjöldi starfsmanna sem sagt er upp á þrjátíu daga tímabili er að minnsta kosti 10 starfsmenn í fyrirtækjum sem venjulega hafa 21-99 í vinnu, minnst 10% starfsmanna í fyrirtækjum með 100-299 í vinnu eða minnst 30 starfsmenn þar sem venjulega eru 300 eða fleiri.

Í síðasta mánuði á undan, desember 2025, bárust stofnuninni einnig tvær tilkynningar um hópuppsagnir þar sem alls 54 misstu vinnuna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×