Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Árni Sæberg skrifar 4. febrúar 2026 11:41 Sigurður Arnljótsson, Kolbeinn Björnsson, Soffía T. Tryggvadóttir, Óskar F. Vilmundarson og Árni Blöndal mynda starfslið Brunns. Brunnur Stofnaður hefur verið 7,2 milljarða króna vísisjóður, Brunnur III, með þátttöku ellefu íslenskra lífeyrissjóða, Nýsköpunarsjóðsins Kríu og Silfurbergs ehf. Sjóðurinn hefur lokið áskriftarsöfnun en hefur heimild til stækkunar upp í tíu milljarða króna með þátttöku fagfjárfesta fyrir lok febrúar.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að Brunnur III fjárfesti í sprota- og vaxtarfyrirtækjum, með það markmið að styðja við öflug teymi sem byggja upp alþjóðleg fyrirtæki frá Íslandi. Brunnur Ventures GP reki einnig vísisjóðina Brunn I og Brunn II sem ábyrgðaraðili, í samvinnu við Landsbréf hf. sem rekstraraðili, sem séu hvor um sig fimm milljarða króna og 8,3 milljarða króna að stærð. Hafa fjárfest í 27 fyrirtækjum Fyrsti vísisjóðurinn, Brunnur I hafi verið stofnaður árið 2015 og hafi frá upphafi fjárfest í ellefu fyrirtækjum. Brunnur II hafi verið stofnaður 2021 og hafi frá upphafi fjárfest í sextán fyrirtækjum. Báðir sjóðirnir hafi lokið fjárfestingatímabili og séu fullfjárfestir. „Eins og fyrri sjóðir mun Brunnur III fjárfesta í sprota- og vaxtarfyrirtækjum á hugmynda-, klak- og vísistigi. Áhersla er lögð á félög á Íslandi, leidd af framúrskarandi frumkvöðlum, eru gjaldeyrisskapandi með skalanlegan rekstur, sem byggja á hugviti á sviði gervigreindar, líftækni, leikjaiðnaðar, fjártækni, hátækni, djúptækni, hugbúnaðarlausnir á fyrirtækja- og neytendamarkaði (e. B2B / B2C) ásamt orku- og matvælatækni. Sjóðurinn byggir á faglegri umgjörð og nýtir áratuga reynslu, sambönd og þekkingu fjárfestingastjóra.“ Mikilvægt að nýir vísissjóðir verði reglulega stofnaðir Haft er eftir Árna Blöndal, meðstofnanda og fjárfestingastjóra hjá Brunni, að stofnun Brunns III séu góð tíðindi fyrir íslenska nýsköpun. „Það er mikilvægt að hér á landi verði reglulega til nýir vísisjóðir. Frá 2015 hafa nú verið stofnaðir 11 vísisjóðir með aðkomu íslenskra lífeyrissjóða, nýsköpunarsjóðsins Kríu og annarra fagfjárfesta. Þessi eignaflokkur hefur sannað gildi sitt út frá ávöxtun en um leið býr þessi starfsemi til verðmæt þekkingarstörf og ýtir undir hugverkadrifinn hagvöxt.“ „Við fögnum aðkomu Nýsköpunarsjóðsins Kríu í sjóðinn. Kría er vitnisburður um hvernig aðkoma stjórnvalda gagnast við að skapa samfellu í rekstri vísisjóða á Íslandi. Það eru einstök tækifæri til að fjárfesta núna, því gervigreindin er að umbreyta atvinnugreinum, skapa nýja markaði og móta næstu kynslóð leiðandi fyrirtækja,“ er haft eftir Sigurði Arnljótssyni, meðstofnanda og fjárfestingastjóra hjá Brunni.
Nýsköpun Mest lesið Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Viðskipti innlent Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent Nýr framkvæmdastjóri Kalon Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Sjá meira