Fórnarlömb vilja láta loka á Epstein-skjölin Samúel Karl Ólason skrifar 3. febrúar 2026 11:26 Mikið af upplýsingum í Epstein-skjölunum haffa verið afmáðar en fjöldi fórnarlamba auðjöfursins segja nöfn þeirra, póstföng og jafnvel nektarmyndir vera í skjölunum. AP/Jon Elswick Lögmenn nærri því hundrað fórnarlamba Jeffreys Epstein munu á morgun reyna að sannfæra alríkisdómara um að skipa ríkisstjórn Bandaríkjanna að loka netsvæði þar sem Epstein-skjölin svokölluðu eru aðgengileg. Fórnarlömbin segja að nöfn þeirra hafi verið opinberuð í skjölunum og að það hafi snúið lífi þeirra á hvolf.
Ráðuneytið birti á föstudaginn rúmlega þrjár milljónir blaðsíðna og fjölda mynda og myndbanda. Um er að ræða gögn sem aflað hefur verið í gegnum árin vegna rannsókna sem tengjast brotum Epsteins og annarra. Meðal annars er um að ræða tölvupósta Epsteins og önnur skilaboð, skrár sem fundust í tölvum hans á borð við myndir sem hann hafði sótt á netið og ýmislegt annað. Mörg fórnarlömb Epsteins hafa kvartað yfir því að hægt hafi verið að bera kennsl á þær út frá skjölunum sem birt voru. Pam Bondi, dómsmálaráðherra, viðurkenndi í bréfi til dómarans í gær að starfsmenn ráðuneytisins hefðu fjarlægt þúsundir skjala, mynda og myndbanda, þar sem upplýsingar sem hefði átt að fela hefðu verið opinberaðar. Hún sagði ýmislegt hafa spilað þar inn í, samkvæmt frétt New York Times. Bæði tæknilegar og mannlegar villur. Meðal þess efnis sem hefur verið fjarlægt voru nektarmyndir af ungum konum og mögulega táningum sem birtar voru fyrir mistök. Bondi og aðrir forsvarsmenn ráðuneytisins segja að skjölin verði birt aftur þegar búið sé að hylma yfir upplýsingar sem við á. Hafa fengið morðhótanir Lögmenn fórnarlamba Epsteins hafa beðið dómarann um að skipa ríkisstjórninni að loka síðunni þar sem finna má skjölin á meðan unnið sé að því að fela upplýsingar um fórnarlömbin. Þeir hafa einnig beðið dómarann um að skipa óháðan aðila til að halda utan um það ferli. Þingmennirnir sem lögðu fram frumvarpið sem á endanum þvingaði ríkisstjórnina til að opinbera Epstein-skjölin höfðu áður farið fram á að óháður aðili yrði skipaður til að halda utan um ferlið. Það þvertóku forsvarsmenn ráðuneytisins fyrir en Todd Blanche, aðstoðardómsmálaráðherra og fyrrverandi einkalögmaður Donalds Trump, hefur stýrt þessari vinnu. Sjá einnig: Enn deilt um Epstein-skjölin AP fréttaveitan segir að í bréfi sem áðurnefndir lögmenn sendu til dómarans sé haft eftir átta af fórnarlömbum Epsteins að opinberun skjalanna og nafna þeirra hafi þegar haft mikil áhrif. Meðal annars hafi þeim borist morðhótanir og ógnanir og í einu tilfelli voru bankaupplýsingar einnar konu birtar.
Bandaríkin Mál Jeffrey Epstein Erlend sakamál Tengdar fréttir Bill og Hillary Clinton samþykkja að svara spurningum um Epstein Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, og Hillary Clinton, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hafa samþykkt að bera vitni fyrir þingnefnd sem rannsakar mál Jeffrey Epstein. 3. febrúar 2026 09:28 Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað að lögsækja grínistann Trevor Noah vegna brandara sem hann sagði á Grammy-verðlaunaathöfninni. 2. febrúar 2026 19:21 Varpa loksins ljósi á umdeilt samkomulag Epsteins frá 2008 Alríkissaksóknari sem lagði til árið 2007 að Jeffrey Epstein yrði ákærður í 32 liðum, sagði meðal annars að Epstein hefði hótað einu fórnarlamba sinna, sextán ára stúlku, og sagt að „slæmir hlutir“ gætu komið fyrir hana, ef hún talaði við yfirvöld. Hann var þá sakaður um að hafa brotið á fjölda stúlkna og ungra kvenna yfir sex ára tímabil. 2. febrúar 2026 17:00 Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira
Bill og Hillary Clinton samþykkja að svara spurningum um Epstein Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, og Hillary Clinton, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hafa samþykkt að bera vitni fyrir þingnefnd sem rannsakar mál Jeffrey Epstein. 3. febrúar 2026 09:28
Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað að lögsækja grínistann Trevor Noah vegna brandara sem hann sagði á Grammy-verðlaunaathöfninni. 2. febrúar 2026 19:21
Varpa loksins ljósi á umdeilt samkomulag Epsteins frá 2008 Alríkissaksóknari sem lagði til árið 2007 að Jeffrey Epstein yrði ákærður í 32 liðum, sagði meðal annars að Epstein hefði hótað einu fórnarlamba sinna, sextán ára stúlku, og sagt að „slæmir hlutir“ gætu komið fyrir hana, ef hún talaði við yfirvöld. Hann var þá sakaður um að hafa brotið á fjölda stúlkna og ungra kvenna yfir sex ára tímabil. 2. febrúar 2026 17:00