Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Hólmfríður Gísladóttir skrifar 29. janúar 2026 06:54 Fólkið var dæmt til dauða í fyrra. Ellefu meðlimir Ming-glæpafjölskyldunnar hafa verið teknir af lífi í Kína en þeir voru meðal annars fundnir sekir um manndráp, mannrán, svik og veðmálastarfsemi.
Fjölskyldan er einn af þeim glæpahópum sem ráku bæinn Laukkaing í Mjanmar, sem var tekinn yfir af glæpaöflum og breytt í miðstöð vændis og veðmálastarfsemi. Þá var rekin þar umfangsmikil svikastarfsemi, þar sem fjöldi fólks var seldur mansali til að starfa við netglæpi. Einstaklingarnir ellefu voru handteknir árið 2023 og afhentir yfirvöldum í Kína, eftir átök milli uppreisnarhópa og hersins í Mjanmar. Stjórnvöld í Kína eru sögð hafa viljað senda skilaboð með aftökunum en umrædd starfsemi er sögð hafa færst til. Hún fari nú fram við landamæri Mjanmar að Taílandi, Kambódíu og Laos, þar sem kínversk yfirvöld hafa minni áhrif. Talið er að þúsundir einstaklinga hafi verið seldir mansali af glæpasamtökum, sem reka áðurnefnda netglæpastarfsemi. Þar af er fjöldi Kínverja en Kínverjar eru einnig meðal helstu fórnarlamba starfseminnar. Kínversk yfirvöld gripu þess vegna til þess ráðs að styðja bardagahópa í Mjanmar, sem tókst að lokum að yfirtaka Laukkaing. Fimm meðlimir Bai-glæpafjölskyldunnar hafa einnig verið dæmdir til dauða í kjölfarið og þá standa réttarhöld yfir gegn tveimur glæpafjölskyldum til viðbótar. Hér má finna umfjöllun BBC um málið.
Kína Mjanmar Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira