Tala fallinna og særðra nálgast tvær milljónir Samúel Karl Ólason skrifar 27. janúar 2026 20:11 Úkraínskir hermenn að störfum nærri Pokrovsk. Getty/Maciek Musiaklek, Anadolu Eftir tæplega fjögurra ára átök nálgast fjöldi rússneskra og úkraínskra hermanna sem hafa fallið, særst eða horfið í átökunum frá því Rússar hófu innrás sína í Úkraínu tvær milljónir. Rússar eru sagðir hafa misst nærri því 1.200 þúsund menn en Úkraínumenn tæplega sex hundruð þúsund.
Þetta er niðurstaða greiningar sérfræðinga bandarísku hugveitunnar Center for Strategic and International Studies, eða CSIS, sem birt var í dag. Tölur um mannfall í átökunum hafa ávallt verið á miklu reiki og tölur sem bæði Úkraínumenn og Rússar gefa upp um mannfall hjá hvor öðrum þykja ekki áreiðanlegar. Sérfræðingar CSIS notuðust þess í stað við tölur frá yfirvöldum í Bandaríkjunum og Bretlandi, auk annarra upplýsinga. Í niðurstöðum greiningar CSIS segir að framsókn Rússa í austurhluta Úkraínu sé frá fimmtán til sjötíu metra á dag og að erfitt sé að finna hægari framsókn hers í stríði á síðustu hundrað árum. Miðað við þróunina hingað til geti fjöldi látinna og særðra hjá Rússum náð tveimur milljónum fyrir lok þessa árs. Sjá einnig: Hafa náð einu og hálfu prósenti af Úkraínu á þremur árum Sérfræðingar CSIS vísa til orða Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, frá því í desember en þar lýsti hann því yfir að rússneskir hermenn sæktu fram á allri víglínunni eins og hún leggur sig og að sigur þeirra væri vís. Þeir segja aðra hafa endurómað þessa sviðsmynd og þar á meðal háttsettir embættismenn vestanhafs. Sé rýnt í gögnin og stöðuna á víglínunni sé fátt sem bendi til þess að sigur Rússa sé vís. Þess í stað virðist sem máttur Rússlands fari minnkandi. Minni hreyfing en í fyrri heimsstyrjöldinni Í niðurstöðum CSIS segir að af áðurnefndum 1,2 milljónum hermanna séu 325 þúsund fallnir. Ekkert stórveldi hafi orðið fyrir sambærilegu mannfalli í stríði frá seinni heimsstyrjöldinni. Framganga rússneskra hermanna hafi þar að auki verið einstaklega hæg. Við Pokrovsk, sem Rússar hafa reynt að ná úr höndum Úkraínumanna um langt skeið, hafi framsóknin verið hægari en hreyfingar á víglínunni í Somme í fyrri heimsstyrjöldinni. Hvað varðar Úkraínumenn áætla sérfræðingar CSIS að á milli hundrað og 140 þúsund Úkraínumenn séu fallnir. Þá segir einnig að útlitið á efnahagssviðinu sé ekkert mikið skárra. Hagkerfi Rússlands sýni mikil veikleikamerki þó það sé líklega ekki nálægt því að falla saman. Hagvöxtur hafi dregist verulega saman og það sama eigi við bæði framleiðslu og neyslu. Verðbólga sé enn há og skortur sé á vinnuafli í Rússlandi. Þá sé Rússland að dragast verulega aftur úr þegar kemur að tækni. Blaðamenn AP fréttaveitunnar ræddu nýverið við menn frá Bangladess sem segjast hafa verið þvingaðir til herþjónustu í Rússlandi. Ítrekaðar árásir á orkuver Samhliða vandræðum Rússa á víglínunni hafa þeir einbeitt sér að dróna- og eldflaugaárásum á orkuver og innviði í Úkraínu. Kalt er á svæðinu og hefur verið um nokkuð skeið en íbúar víða um Úkraínu hafa glímt við langvarandi rafmagns- og hitaveituleysi vegna þessara árása. Þá hafa einnig átt sér stað viðræður milli Úkraínumanna og Rússa um mögulega leið að friði. Þær viðræður hafa ekki skilað árangri hingað til. Rússar hafa lagt áherslu á að úkraínskir hermenn hörfi frá stórum hluta Dónetsk-héraðs sem þeir halda enn. Svæðið þykir mjög víggirt en Pokrovsk og aðrar borgir eru á því. Úkraínumenn vilja ekki láta þetta svæði af hendi og segja að með því gætu Rússar öðlast skotpall lengra inn í Úkraínu.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Hernaður Vladimír Pútín Tengdar fréttir Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, segir að Evrópa geti ekki varið sig án Bandaríkjanna. Segja má að Rutte hafi látið Evrópuþingmenn heyra það á fundi varnar- og utanríkismálanefndar Evrópuþingsins í dag. 26. janúar 2026 23:01 Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Einn er látinn og að minnsta kosti 23 eru særðir eftir umfangsmiklar flugskeyta- og drónaárásir Rússa á Karkív og Kænugarð sem stóðu fram á morgun en borgirnar eru þær tvær stærstu í Úkraínu. 24. janúar 2026 10:13 Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Rússneskur dómstóll hefur dæmt yfirmann í úkraínska hernum fyrir að hafa sökkt beitiskipinu Moskvu, flaggskipi Rússa á Svartahafi, árið 2022. Í úrskurði herdómstóls í borginni Moskvu, sem birtur var á síðu dómstólsins en síðan fjarlægður, var í fyrsta sinn viðurkennt að Úkraínumenn hefðu sökkt skipinu með stýriflaug. 23. janúar 2026 11:04 Mest lesið Gátu ekki gefið skýr svör um mögulegt ástarsamband Innlent Uppnám í Dettifossmálinu vegna óvænts gagns Innlent „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Innlent Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Erlent Sævar las upp yfirlýsingu: „Ég treysti ákæruvaldinu ekki“ Innlent „Ég myndi segja að ég væri burðardýr“ Innlent Húsnæði fundið undir brottfararstöð Innlent Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Erlent Fréttir af dagsleyfi kynferðisbrotamanns slógu ráðherra illa Innlent Tvö alvarleg atvik hjá dagforeldri skráð Innlent Fleiri fréttir Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Sjá meira
Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, segir að Evrópa geti ekki varið sig án Bandaríkjanna. Segja má að Rutte hafi látið Evrópuþingmenn heyra það á fundi varnar- og utanríkismálanefndar Evrópuþingsins í dag. 26. janúar 2026 23:01
Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Einn er látinn og að minnsta kosti 23 eru særðir eftir umfangsmiklar flugskeyta- og drónaárásir Rússa á Karkív og Kænugarð sem stóðu fram á morgun en borgirnar eru þær tvær stærstu í Úkraínu. 24. janúar 2026 10:13
Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Rússneskur dómstóll hefur dæmt yfirmann í úkraínska hernum fyrir að hafa sökkt beitiskipinu Moskvu, flaggskipi Rússa á Svartahafi, árið 2022. Í úrskurði herdómstóls í borginni Moskvu, sem birtur var á síðu dómstólsins en síðan fjarlægður, var í fyrsta sinn viðurkennt að Úkraínumenn hefðu sökkt skipinu með stýriflaug. 23. janúar 2026 11:04