Eru kórallar á leið í sögubækurnar? Jean-Rémi Chareyre skrifar 24. janúar 2026 18:02 Kórallar, þessar merkilegu lífverur sem eru einhvers konar líffræðilegir blendingar (tilkomnir vegna samlífis dýrs og plöntu) hafa verið til staðar á jörðinni í hundruð milljóna ára, mun lengur en við framagosarnir úr homo sapiens fjölskyldunni. Þeir hafa augljóslega verið fjölbreyttir að stærð og fjölbreytni, en þeim hefur tekist að lifa af allar helstu umbyltingar á jörðinni. Þeir þekja aðeins um 0,2% af hafsbotninum en skaffa samt heimili fyrir um 25% sjávartegunda og eru þess vegna tákn um líffjölbreytni neðansjávar. Hins vegar þola þessar merkilegu lífverur ekki mikinn hita, og vilja helst vatn sem er ekki of súrt (reyndar er sýrustig sjávar örlítið basískt en súrnun sjávar veldur þvi að sjórinn verður síður basískur). Því miður fyrir þá er losun gróðurhúsalofttegunda frá athöfnum okkar ekki góðar fréttir, og þá sérstaklega losun CO₂, af tveimur ástæðum: hún veldur því að hitastig yfirborðsvatns hækkar og sýrustig lækkar, þar sem hafið gleypir um það bil einn þriðja af því CO₂ sem mannlegar athafnir losa. Lægra sýrustig gerir kórallinum erfiðara fyrir að byggja upp stoðgrind sína. Þó að núverandi hlýnun sé „aðeins“ um 1,5°c, þá hefur kóralþekja í Karíbahafinu þegar dregist saman um helming samanborið við 1980, samkvæmt nýlegri skýrslu frá Global Coral Reef Monitoring Network. Á þeim svæðum sem um ræðir var „aðeins“ um rúmlega eina gráðu hlýnun að ræða, og súrnun upp á 0,1 Ph-stig. En breyting sem hljómar minniháttar í okkar eyrun getur valdið umtalsvert tjón! Höfundar skýrslunnar bæta reyndar við að aðrar breytingar geta líka haft áhrif. Loftslagsbreytingar auka styrk hitabeltisfellibylja, sem geta síðan valdið alvarlegum skaða á kóralrifjum. Loftslagsbreytingar eru heldur ekki eini þátturinn sem ógnar tilveru kóralla: staðbundin mengun (þéttleiki íbúa á strandsvæðum nálægt kóröllum hefur verið að aukast), sjúkdómar og ofveiði á jurtaætum gegna einnig hlutverki (fisktegundir sem sem eru jurtaætur koma í veg fyrir offjölgun þörunga, en slíkir þörungar gera ungum kóröllum erfitt að koma sér fyrir). Þegar kórallar deyja taka þörungar við í þeirra stað. En er eitthvað hægt að gera? Já, segja höfundar skýrslunnar. Fyrst og fremst þarf augljóslega að draga úr losun eins fljótt og auðið er. En það er líka nauðsynlegt að takmarka veiðar á jurtaætum og leyfa þær tegundir kóralla að koma sér fyrir sem hafa meira þol gagnvart háu hitastigi. Þessar aðgerðir munu þó ekki duga til að bæta upp fyrir tjónið, og nú snýst baráttan fyrst og fremst um það að „bjarga því sem bjargað verður“, það er að segja að varðveita eins stóran hluta og mögulegt er af því sem eftir er af kóralrifunum. Höfundar skýrslunar gera ráð fyrir að miðað við áframhaldandi losun gæti Ph-gildið lækkað um 0,4 stig árið 2100, og flestallir hitabeltiskórallar á jörðinni verða þá annað hvort horfnir eða í dauðateygjunum. Og gervigreindin, sama hvað sumum finnst hún frábær, mun ekki koma í staðinn fyrir þá! Greinarhöfundur er sjálfstætt starfandi blaðamaður og meðlimur í loftslagshópnum París 1,5, sem beitir sér fyrir því að Ísland leggi sitt af mörkum til að leysa loftslagsvandann. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Umhverfismál Jean-Rémi Chareyre Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon Skoðun Skoðun Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar