Löggan byrjar á TikTok með því að gasa Egil og Rikka Magnús Jochum Pálsson skrifar 23. janúar 2026 10:54 Brot af því þegar Egill og Rikki létu piparúða sig af lögreglunni. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er byrjuð á TikTok til að miðla þar efni um störf lögreglunnar. Fyrsta myndbandið á aðganginum fjallar um piparúða og voru útvarpsmennirnir Egill Ploder Ottósson og Ríkharður Óskar Guðnason úðaðir.
Aðgangurinn „logreglan“ birti í gær tvö myndbönd, það fyrsta fjallar um piparúða og það seinna um ástæðuna fyrir veru lögreglunnar á miðlinum. „Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ætlar að byrja á TikTok. Okkur langar aðeins að leyfa ykkur að fylgjast með störfum okkar en einnig koma með fræðandi efni og kannski einhverjar leiðbeiningar. Þannig fylgist með okkur á Tiktok,“ segir Símon Geir Geirsson, sem sinnir löggæslu á lýðnetinu hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, um aðganginn. @logreglan Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er að byrja á Tiktok. Hér munum við reyna að koma með upplýsingar og fræðslu um störf lögreglu. #fyp #íslenskttiktok #fyrirþig #logreglan ♬ original sound - Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu Börnin áhugasöm um piparúðann Myndbandið um notkun piparúða er tilkomið að sögn lögregluþjóns vegna mikils áhuga ungmenna á piparúða. Í grunnskólaheimsóknum séu börnin alltaf spenntust fyrir piparúðanum, hvernig hann virkar og hvort það sé vont að vera úðaður. Þess vegna hafi lögreglan fengið útvarpsmennina Egil Ploder og Rikka G sem stýra Brennslunni á FM957 til að sýna hvernig slíkt ferli fari fram og hvernig lögreglan aðstoðar manneskju sem hefur verið úðuð. Í myndbandinu mæta Rikka og Egill (sem er þegar myndbandið er tekið ekki enn farinn í hárígræðslu) í port við lögreglustöðina á Hlemmi. Eftir smá undirbúning og fíflagang eru þeir félagar síðan úðaðir beint í augun af metra færi. @logreglan Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk vini sína í Brennslunni á FM957 til að koma og prófa mace-ið í forvarnarskyni #fyp #fm957 #brennslan #íslenskttiktok #fyrirþig @egillploder @fm957 ♬ original sound - Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu „Slakaðu á maður,“ heyrist Egill Ploder segja þegar búið er að úða góðri gusu á þá félaga. Um leið og þeir opna svo augun engjast þeir um af sársauka og eru látnir dýfa andlitunum ofan í vatnsbað. „Ég hef aldrei upplifað svona sársauka á ævinni,“ segir Egill síðar í myndbandinu og bætir við að enginn ætti að vilja prófa svona lagað. Lýsir hann því að hann myndi ekki gera slíkt aftur jafnvel þó honum byðist fimm milljónir króna fyrir það. „Það er að koma hor síðan úr fermingu hjá mér,“ segir Rikki meðan hann snýtir sér. „Ég hefði ekki getað gert mér í hugarlund. Ég vissi að þetta væri vont en þetta er versti sársauki sem ég hef upplifað á ævinni. Ég hef tvíökklabrotnað tvívegis, opið beinbrot og nýrnasteina. „Peanuts“ við hliðina á þessum viðbjóði,“ segir Rikki síðan að lokum. Einnig er hægt að sjá myndbandið á Facebook hér að neðan:
Lögreglan TikTok Samfélagsmiðlar Brennslan Mest lesið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Patrick Stewart látinn Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Fleiri fréttir Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Sjá meira