Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 23. janúar 2026 20:06 Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkurbæjar, sem var nýlega gestur á opnum fundi Sjálfstæðisflokksins í Árborg. Magnús Hlynur Hreiðarsson Bæjarstjóri Grindavíkurbæjar segir íbúa horfa björtum augum til framtíðar enda sé nóg að gera í kringum höfnina og þá séu ný fyrirtæki að opna í bæjarfélaginu. Um 900 manns eru með lögheimili í Grindavík í dag en ekki nema um 400 manns, sem eru með fasta búsetu þar.
Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkurbæjar var gestur á fundi Sjálfstæðisflokksins í Árborg nýlega þar sem hann fór yfir stöðuna í bæjarfélaginu og það sem fram undan er. Boðið verður fram til sveitarstjórnar þar í vor og svo er þorrablót á næsta leiti, þannig að það er alltaf eitthvað að gerast. En óttast íbúar nýtt eldgos nú á næstunni? „Það er vissulega búið að safnast heilmikil kvika og landris mælist enn þá þannig að það getur endað með gosi og þá er það tíunda gosið á þessum slóðum til viðbótar við þrjú gos í Fagradalsfjalli, þannig að við erum bara undir það búin,” segir Fannar. Fannar segir að áætlanir vegna rýmingar séu allar til staðar komi til eldgoss núna. En hvað búa margir í Grindavík í dag? „Það eru um 900 manns með lögheimili í bænum, það eru ekki allir, sem búa þar að staðaldri en það eru svona 400 til 450 manns, sem hafa fasta búsetu þar”. Erindi Fannars tókst vel og spurðu fundarmenn hann margra spurninga.Magnús Hlynur Hreiðarsson Fannar segir að atvinnulífið sé á fullum krafti í Grindavík. „Það er fullur kraftur í atvinnulífinu, mest í kringum höfnina og það er mikið um landanir heima og heilmikil fiskvinnsla og svo er náttúrulega alls konar þjónusta sem tengist þessu. Svo erum við að fá ný fyrirtæki í bæinn þannig að við horfum björtum augum til framtíðar,” segir Fannar. En hvernig líður fólki almennt, sem býr í Grindavík? „Þeir, sem búa í Grindavík bera sig mjög vel og líður vel að vera komin heim. Það væru miklu fleiri, sem vildu vera komnir heim en það er aðeins svona verið að bíða átekta eftir að þessum látum linni. Þá held ég að það verði mjög margir, sem flytjast heim um leið og tækifæri gefst,” segir Fannar bæjarstjóri. Fannar með frænda sínum á Selfossi, Sigurði Þór Sigurðssyni, sem mættu að sjálfsögðu á fundinn til að hlusta á frænda sinn.Magnús Hlynur Hreiðarsson
Grindavík Mannfjöldi Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira